10 ástæður
Ástæðurnar 10
Það eru a.m.k. 10 ástæður af hverju SkjáVarp hentar vel sem auglýsingamiðill
-
SkjáVarp er í útsendingu alla daga 24 tíma á sólarhring.
-
Auglýsandi er ekki bundinn ákveðnum skiladegi á auglýsingu til birtingar.
-
Auðvelt er að breyta auglýsingu eftir að hún hefur verið birt.
-
Allir í sveitarfélaginu Hornafirði og allir landsmenn ná SkjáVarpi.
-
Ekki þarf að leita í blaðabunka að SkjáVarpi, þú bara kveikir á næsta sjónvarpi eða ferð í næstu tölvu.
-
SkjáVarp er hluti af tilveru þeirra sem búa í sveitarfélaginu.
-
Efst á baugi er ávallt á SkjáVarpi.
-
SkjáVarp er ekki auglýsingapési sem endar í ruslinu.
-
SkjáVarp hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn öflugasti upplýsinga- og
auglýsingamiðill í Sveitarfélaginu Hornafirði -
Þú sérð auglýsingar á Skjávarpi aftur og aftur.



