Heppuskóli fréttir
Altt að verða klárt fyrir brottför

Ævintýraferð hjá 10. bekk Heppuskóla

Í dag luku nemendur í 10. bekk hinum geysi vinsælu samræmdu prófum. Það hefur verið venjan í Heppuskóla að fara með nemendur í ferðalag að loknum prófum og verður þar engin undantekning á þetta árið. Lagt verður af stað í sannkallaða ævintýraferð í dag og komið til baka um miðjan dag á föstudag. Ferðin er heitið á Vatnajökul og mun hópurinn gista í Jöklaseli í tvær nætur og verða dagarnir notaðir til að renna sér á skíðum, fara í gönguferðir og farið verður í útsýnisferðir á jökulinn. Á fimmtudaginn liggur leiðin síðan á Kirkjubæjarklaustur og verður komið við í Skaftafelli, stoppað við Skeiðará og ekið upp að Skeiðarárjökli. Gist verður á Klaustri aðfaranótt föstudags.

Nemendur í 8. og 9. bekk fara svo í óvissuferð á föstudaginn og á föstudagskvöldið verður síðan boðið upp á sjóðheitt sundstuð í sundlauginni fyrir 8., 9. og 10. bekk.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica