Hótel Höfn

Beint í leiðarkerfi vefsins.

Ágrip af sögu

Ágrip af sögu Hótels Hafnar

Árni go Þórhalldur Dan (Mynd: Saga Hafnar)Rekja má sögu Hótels Hafnar aftur til haustsins 1959 þegar Árni Stefánsson og Þórhallur Dan Kristjánsson þáðu boð Ásgríms Halldórssonar kaupfélagsstjóra Kaupfélags Austur-Skaftfellinga um að taka við rekstri Hótels Skálholts, sem var í eigu kaupfélagsins. Hótelið stóð við höfnina og var til húsa í Hvammi (öðru nafni Skálholti) sem um langt skeið var íbúðarhús útgerðarmannanna Jóns J. Brunnan og Sigurðar Ólafssonar.
Rekstur Hótels Skálholts gekk allvel undir stjórn Árna og Þórhalls og eiginkvenna þeirra, systranna Svövu og Ólafar Sverrisdætra. Sífellt fleiri ferðamenn, bæði innlendir og erlendir, heimsóttu Höfn upp úr 1960 og brátt kom að því að hótelið annaði ekki eftirspurn eftir gistingu. Árið 1963 sóttu Árni og Þórhallur um lóð undir nýtt hótel, lítið eitt fyrir innan þorpið sem þá taldi aðeins um 700 íbúa. Bygging hótelsins hófst 17. maí 1965. Veitingasalur, sem rúmaði 120-130 manns í sæti, og eldhús voru tekin í gagnið 1. október 1966 og herbergisálma með 20 herbergjum á þremur hæðum var opnuð 17. júní árið eftir. Nýbyggingin hlaut nafnið Hótel Höfn og með tilkomu þess lagðist rekstur Hótels Skálholts niður. Árið 1971 voru tekin í notkun 20 herbergi í viðbyggingu við herbergisálmuna. Þar með var komið gistirými fyrir 68 manns og skiptist það í 28 tveggja manna herbergi og 12 eins manns herbergi.
Um miðjan níunda áratuginn var útbúinn veitingasalur á neðri hæð vesturálmu hótelsins og nokkrum árum síðar var gerð breyting á anddyrinu þegar tekin var í gagnið lítil viðbygging.
Eigendur Hótels Hafnar gerðu ýmislegt til að örva viðskiptin. Um tíma átti hótelið litlar rútur og bauð upp á skoðunarferðir um nágrannasveitirnar allt suður í Öræfi, vínbar var opnaður, haldnir almennir dansleikir um helgar og herbergi leigð út til fiskvinnslufólks. Hótelið var einnig vettvangur árshátíða, ráðstefna, funda og annars konar samkoma. Nauðsynlegt var að nýta húsið eins og kostur var því nýtingin á gistirými fór vel niður fyrir 50% á ársgrundvelli þótt hún kæmist upp í um 90% yfir hásumarið.
Allt frá upphafi hefur Hótel Höfn lagt áherslu á að veita fagmannlega þjónustu og einnig tóku eigendurnir virkan þátt í starfseminni, ásamt því að sinna annarri vinnu og heimilisstörfum. Þegar Þórhallur Dan lést árið 1975, langt um aldur fram, helgaði Árni sig stjórn hótelsins. Eftir langan og farsælan rekstur seldu Árni og Svava og Ólöf hótelið í árslok 1996. Nýr eigandi var Ferðaskrifstofa Íslands en árið 2001 urðu aftur eigendaskipti þegar hjónin Gísli Vilhjálmsson og Þórdís Einarsdóttir og Óðinn Eymundsson og Elísabet Jóhannesdóttir keyptu hótelið. Gísli og Óðinn eru matreiðslumenn að mennt og höfðu rekið veitingastaðinn Ósinn á Höfn frá árinu 1990.

Tungumál

  • Dansk
  • Deutsch
  • English

Þú ert hér: Forsíða > Ferðaþjónusta > Hótel Höfn > Hótel Höfn > Ágrip af sögu

Um Hótel Höfn

  • Forsíða Hótel
  • Fréttir Hótel Höfn
  • Ágrip af sögu
  • Staðsetning
  • Gisting
  • Veitingar
  • Myndasafn
  • Ráðstefnur og fundir
  • Hafa samband

Hótel Höfn | Víkurbraut | 780 Hornafirði | TEL 478 1240 | Fax 478 1996 | info@hotelhofn.is

Við vekjum athygli á

[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]

Málverkasýning

[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]

Barnastarf

[Upplýsingamiðstöð]

Upplýsingamiðstöð

[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]

Gönguleiðir

[Mennning og söfn]

Menning og söfn

[Afþreying]

Afþreying

Hótel Höfn, sól og sumar Hópurinn tilbúinn að fara af stað Hotel-Hofn_IMG_6351 Frá Humarhátíð 1994
Þetta vefsvæði byggir á Eplica