Fréttir HSSA

Drengur Guðmundsson fæddur!

Þessi myndar piltur fæddist þann 8. apríl sl. á Akureyri.Hann er sonur Rósu Daníelsdóttur og Guðmundar Þórðarsonar á Hnappavöllum. Lesa meira
 

Gjafir frá Kvenfélaginu Vöku

Kvenfélagskonur úr Kvenfélaginu Vöku í Nesjum komu færandi hendi fyrir Hvítasunnu. Þær færðu hjúkrunar- og dvalardeild pakka sem í voru dúkar fyrir deildirnar. Hssa þakkar hlýjan hug til deildanna og var mjög gaman að dekka upp með nýjum dúkum um hvítasunnuna. Lesa meira
 

Laus staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

Laus er til umsóknar staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands Hornafirði. Á stofnuninni er fæðingardeild með skilgreint þjónustustig D1. Ljósmóðir sinnir jafnframt ungbarna- og mæðravernd á heilsugæslustöð ásamt því að sinna almennum hjúkrunarstörfum. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi LMFÍ og ríkisins og stofnanasamningi HSSA.

Lesa meira
 

Nýr röntgenlesari á heilsugæslu HSSA

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands barst á dögunum veglegur styrkur til kaupa á nýjum röntgen lesara. Gamli röntgenlesarinn gaf sig og því var brugðið á það ráð að leita til fyrirtækja og félagasamtaka eftir styrkjum til að kaupa nýjan lesara. Líkt og flestir vita þá var það fyrir tilstilli samfélagssöfnunar sem þessi röntgentæki voru keypt árið 2006.

Lesa meira
 

Landlæknir í heimsókn

Landlæknir, Geir Gunnlaugsson og þrír aðrir starfsmenn embættisins voru í heimsókn hjá HSSA í gær 17. apríl. þau funduðu með stjórnendum og starfsfólki stofnunarinnar, kynntu Embætti landlæknis og kynntu sér starfsemi HSSA.

Lesa meira
 

BÍLLAUSI DAGURINN

BÍLLAUSI DAGURINN á Höfn verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 17.apríl! Lesa meira
 

Fræðslufyrirlestur um heilsu og vellíðan

Stuttur fræðslufyrirlestur um „Heilsu og vellíðan“ verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:30 í Nýheimum.

Lesa meira
 

Minnum á námskeið í hugleiðslu og streitustjórnun

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands stendur fyrir tveggja helga námskeiði í hugleiðslu og streitustjórnun dagana20.-21.apríl og svo aftur 4.-5.maí. Kennt verður frá 9-17 á laugardeginum og 9-14 sunnudag . Fyrra námskeiðið er grunnnámskeið og er undanfari þess seinna.

Lesa meira
 

Ný vaktþjónusta hjá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

Sú nýbreytni verður tekin upp á heilsugæslustöðinni frá og með 10.apríl að bráðaerindi til vaktlæknis eftir lokun skiptiborðs verða í síma 112 í stað þess að hringja beint í vaktsíma læknis. Þar tekur sérhæfður neyðarvörður við vaktþjónustunni sem metur ástand, leiðbeinir þeim sem hringir og hefur samband við lækni ef þörf er á.

Lesa meira
 

Námskeið í hugleiðslu og streitustjórnun

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands stendur fyrir tveggja helga námskeiði í hugleiðslu og streitustjórnun dagana 20.-21.apríl og svo aftur 4.-5.maí. Lesa meira
 

Sólrún Freyja og Svavar Breki fædd!

Tvíburarnir Sólrún Freyja og Svavar Breki fæddust þann 15. febrúar sl. Sólrún Freyja var 2.500 gr og 47 cm fæðingu og Svavar Breki 2.700 gr og 46 cm. Foreldrar þeirra eru Hugrún Harpa Reynisdóttir og Trausti Magnússon. Lesa meira
 

Sumarvinna!!

Langar þig að vinna á skemmtilegum og líflegum vinnustað í sumar? Þá er tilvalið að sækja um í sumarafleysingum á HSSA. Ennþá er laust í afleysingar á legudeildum og í ræstingu á heilsugæslu.

Lesa meira
 

Elín Rós er fædd!

Þessi myndarlega dama sem fengið hefur nafnið Elín Rós fæddist þann 8. febrúar sl. Elín Rós var 3.326 gr og 49 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Birna Sæmundsdóttir og Eymundur Ragnarsson. Lesa meira
 

Hafsteinn Þór fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Hafsteinn Þór fæddist þann 29. janúar sl. Hafsteinn Þór var 4.305 gr og 53 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Sandra Lind Ingvaldsdóttir og Hlynur Guðmundsson. Lesa meira
 

"Af hverju lætur hún mamma svona"

FAAS, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma hélt fræðslufund í Ekru í gær fimmtudaginn 21. febrúar. Mjög góð mæting var á fundinn sem var mjög upplýsandi og góður.

Lesa meira
 

Krabbameinsleit á Hornafirði.

Reglubundin leghálsskoðun og brjóstamyndataka eru viðurkenndar aðferðir til að finna forstigsbreytingar leghálskrabbameins og brjóstakrabbamein á byrjunarstigi.

Lesa meira
 

Sumarstörf á HSSA!!

Starfsfólk óskast í sumarstörf á legudeildir, heilsugæslu, dagdvöl og aðstoðarmann húsvarðar.

Lesa meira
 

Lyfjaendurnýjanir!

Athygli skal vakin á því að ef óskað er eftir að fá lyfjaendurnýjun afgreidda samdægurs þarf að hafa samband við heilsugæslu fyrir kl. 12 á hádegi.

Lesa meira
 

Nóvember prins!

Þessi ungi myndarlegi drengur fæddist þann 29. nóvember sl. Hann var 3.425gr og 50cm. Foreldrar eru Hanna Guðrún Kolbeins og Tryggvi Valur Tryggvason.

Lesa meira
 

Þorrablót á HSSA!

Í gær fimmtudaginn 31. janúar voru haldin þorrablót hjá dagdvöl aldraðra í Ekru og á hjúkrunardeildinni. Allir eru sammála um að vel tókst til á báðum stöðum, matur og skemmtidagskrá alveg frábær.

Lesa meira
 

Þjónustusamningur í Höfn!

Það var mikil gleði hjá starfsfólki HSSA sl. föstudag 25. janúar en þá var skrifað undir nýjan þjónustusamning um rekstur stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Nýjir Hornfirðingar!

Fæðingartíðni Hornfirðinga hefur verið há núna í janúar. Í dag fáum við fréttir og myndir af þremur janúarbörnum.

Lesa meira
 

Natalía Sól fyrsti Hornfirðingur ársins!!

Fyrsti Hornfirðingur ársins fæddist þann 4. janúar sl. Daman hefur fengið nafnið Natalía Sól Malarz. Natalía Sól var 4.100 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Malwina og Arkadiuz Malarz.

Lesa meira
 

Endurnýjun þjónustusamnings HSSA við ríkið

Ritað var undir samning við ríkið þjónustusamningur vegna heilbrigðs- og öldrunarþjónustu hér á Hornafirði. Sveitarfélagið hefur samþætt heilbrigðis- og öldurnarþjónutu við önnur svið velferðar- og félagsmála sem það veitir. Reynslan af þessu fyrirkomulagi er mjög góð.

Lesa meira
 

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs.

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands nýtur góðs stuðnings Gjafa- og Minningarsjóðs Skjólgarðs.

Lesa meira
 

Hornfirðingar 2012!

Árið 2012 var frekar gjöfult fyrir Hornafjörð. 23 nýir Hornfirðingar litu dagsins ljós. Kynjaskiptingin var drengjum í vil eins og verið hefur undanfarin ár, 15 drengir en 8 stúlkur. Lesa meira
 

Vinnustaðargreining á HSSA haustið 2012

Í haust fór Heilbrigðisstofnunin af stað með heilsueflingu fyrir starfsfólk. Það var byrjað á að bjóða starfsmönnum í heilsufarsmælingar ásamt því að lagður var fyrir spurningalisti um líðan í vinnunni, um hreyfingu og um viðhorf til hollra lífshátta.

Lesa meira
 

Frá HSSA varðandi inflúensu og aðrar umgangspestir

Árlega koma upp faraldrar ýmissa niðurgangspesta og inflúensu sem ganga milli manna. Heilbrigðir einstaklingar verða misjafnlega mikið veikir og jafna sig oftast fljótlega en geta verið smitandi í nokkra daga.

Lesa meira
 

Aðventa á HSSA!

Margir góðir gestir heiðra heimilisfólk á HSSA á aðventunni. Í gær 19. desember komu ættingjar og vinir í jólasamveru á hjúkrunar- og sjúkradeild. Af því tilefni var Ásbirni Þórarinssyni hárskera og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur snyrtifræðingi þakkað fyrir áralanga þjónustu við heimilisfólk HSSA.

Lesa meira
 

Leiðbeiningar til foreldra vegna húðsýkinga af völdum MÓSA

Undanfarið hafa verið að greinast húðsýkingar hjá heilbrigðum börnum í Reykjavík af völdum baktería sem heita Stafýlókokkus aureus (S. Aureus) sem kallaðir eru mósar.

Af því tilefni hefur sóttvarnarlæknir Landlæknisembættisins sent frá sér dreifibréf með upplýsingum um bakteríuna, smitleiðir o.fl.

 

Í dreifibréfinu eru gagnlegar upplýsingar um handhreinsun og fleira sem eiga erindi til okkar allra.

Lesa meira
 

Nýr sjúkraþjálfari á HSSA!

Einar Smári Þorsteinsson, sjúkraþjálfari hóf störf á HSSA þann 1. nóvember sl. Hann tók við af Matthildi Ásmundardóttur sem tók við framkvæmdastjórastöðu stofnunarinnar á sama tíma. Einar Smári útskrifaðist sem sjúkraþjálfari vorið 2012.

Lesa meira
 

Góðir gestir á aðventu.

Sú skemmtilega hefð hefur skapast að rithöfundar sem koma til Hornafjarðar að lesa uppúr verkum sínum á aðventunni koma til okkar á hjúkrunardeildina og lesa fyrir heimilisfólk.

Lesa meira
 

Dagsferð á Smyrlabjörg

Það hefur lengi staðið til hjá okkur að fara inn að Smyrlabjörgum og skoða breytingarnar. Og þann 4.12. 2012 létum við verða að því. Við brunuðum í hálkunni á þremur bílum og á móti okkur tók Laufey og Birna dóttir hennar. Þær fóru með okkur í nýju bygginguna og sýndu okkur hvað búið er að gera. Þarna var líka heljarinnar piparökuhús sem Laufey var búin að gera og engin smá vinna í því. Svo fengum við þvílíkar hnallþórur, kaffi og kakó

Lesa meira
 

Framkvæmdir á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA.

Það hefur verið umrót á hjúkrunar- og sjúkradeildinni undanfarnar tvær vikur. Unnið er að breytingum á húsnæði til að auka rými heimilisfólks auk þess sem skipt var um dúk á borðstofu. Framkvæmdirnar eru greiddar af Fasteignum ríkissjóðs en stofnunin leigir húsnæðið af þeim.

Lesa meira
 

Svipmyndir frá Dagdvöl aldraðra í Ekru

Þróttmikið og gott starf er unnið í Dagdvöl aldraðra í Ekrunni. Ýmis verkefni eru þar í gangi en einnig er tekið á móti góðum gestum og farið út í bæ að gera sér glaðan dag. Hér má sjá sýnishorn af því sem við er að vera og afurðir frá starfinu.

Lesa meira
 

Þakkir frá Hafnarsókn.

Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við stækkun á kirkjugarðinum á Höfn. Einkar vel hefur tekist til við að gera umhverfi og umgjörð garðsins fagurt og aðlaðandi.

Lesa meira
 

Heimboð á dvalardeild 21. nóvember.

Heimilisfólk á dvalardeild gerði sér glaðan dag í gær með því að bjóða ættingjum og vinum í kaffiboð. Af því tilefni var Líknarnefnd Lions einnig boðið heim og þeim þakkað fyrir stofustóla sem Lionsklúbbur Hornafjarðar gaf deildinni. Lesa meira
 

Leikskólabörn í heimsókn.

Á dögunum fékk heimilisfólk á hjúkrunar- og sjúkradeild góða gesti í heimsókn frá leikskólanum Lönguhólum. Það er alltaf líf og fjör í þessum heimsóknum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Lesa meira
 

Hópslysa- og viðbragðsáætlun HSSA

Nú er aðgengileg á vef HSSA Hópslysa- og viðbragðsáætlun stofnunarinnar. Í áætluninni segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða innan heilbrigðisstofnunarinnar í kjölfar atburðar sem kallar á aukin viðbrögð hennar.

Áætlunin er unnin af Áslaugu Valsdóttur, Birni Þ Sigurbjörnssyni, Ester Þovaldsdóttur og Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur . Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008, lög um sóttvarnir nr. 19/1997, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, lög um eiturefni og hættuleg efni nr. 52/1988 auk laga um heilbrigðisstéttir og laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Lesa meira
 

Tvær dömur og einn piltur!

Guðbjörg Lilja Jóhannsdóttir fæddist þann 29. september sl. Hún var 4.950gr og 55cm við fæðingu. Foreldrar Guðbjargar Lilju eru Sigrún Ólöf Björgvinsdóttir og Jóhann Hilmar Haraldsson.

 

Drengur Gíslason fæddist 5. október sl. Hann var 4.240gr og 53,5cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Þóra Björg Gísladóttir og Gísli Karl Ágústsson.

 

Stúlka Árnadóttir fæddist þann 24. október sl. hún var 3.545gr og 51cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Ragnhildur Einarsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Lesa meira
 

Heimboð 25. október sl.

Þann 25. október sl. bauð heimilisfólk ættingjum og vinum í heimsókn á heimilið. Af því tilefni hafði starfsfólk í eldhúsi bakað rjómatertur og pönnukökur að ósk heimilisfólks. Galtt var á hjalla eins og vera ber. Kalli tók í nikkuna og var sungið af hjartans lyst.

Lesa meira
 

Nýfæddir drengir!

Nokkur börn hafa bæst við á Hornafirði í september og október. Í dag birtum við myndir af þrem drengjum og óskum um leið fjölskyldum þeirra til hamingu með nýja fjölskyldumeðlimi!

 

Þann 19.september sl. fæddist Garpur Guðjónsson hann var 3.640gr og 50cm við fæðingu. Foreldrar Garps eru Þórdís Þórsdóttir og Guðjón Björnsson.

 

Hinrik Guðni fæddist þann 29. september hann var 3.750gr og 52cm við fæðingu. Foreldrar Hinriks Guðna eru Eva Birgisdóttir og Bjarni Ólafur Stefánsson.

 

Og þann 29.október eignuðust Þórey Bjarnadóttir og Björn Þorbergsson son. Drengurinn var 3.180gr og 51cm við fæðingu.

Lesa meira
 

Matthildur Ásmundardóttir ráðin Framkvæmdastjóri HSSA

Matthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum..

Lesa meira
 

Árleg inflúensubólusetning!

Bólusetning gegn inflúensu hefst mánudaginn 1 október n.k á heilsugæslustöð Hornafjarðar. Bólusett er virka daga frá kl 11-12. og 13.-14. til 5 október.

Lesa meira
 

Heilsuefling á HSSA!

Á Heilbrigðisstofnunni var tekin sú ákvörðun í haust að vinna að heilsueflingarstefnu fyrir vinnustaðinn. .

Lesa meira
 

Fleiri nýir Hornfirðingar!!

Við höldum áfram að birta myndir og upplýsingar um nýja Hornfirðinga.Og óskum foreldrum og syskinum til hamingju með nýja fjölskyldumeðlimi!

 

Ívar Örn Jónsson fæddist þann 15. maí sl. Hann var 3.565 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar Ívars Arnar eru Lena Hrönn Marteinsdóttir og Jón Birnir Jónsson.

 

Keyleigh Rose Dela Cruz lewandowska fæddist 15. júní sl. Foreldrar hennar eru Hergina Dela Cruz og Przemyslaw Lewandowski.

 

Stúlka Hafsteisdóttir fæddist 1. ágúst sl. Hún var 3.310 gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Kristín Eva Eyjólfsdóttir og Hafsteinn Oddsson.

 

Drengur Hafþórsson fæddist 12. ágúst sl. Hann var 3.420 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Ingibjörg Lilja Pálmadóttir og Hafþór Reynisson.

 

Stúlka Sigurjónsdóttir fæddist 28. ágúst sl. Hún var 3.280 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Sædís Guðmundsdóttir og Sigurjón Örn Arnarsson.

Lesa meira
 

Nýir Hornfirðingar!!

Þessi myndarbörn fæddust í sumar.

 

Særós Kristín, fædd 2. júní. Særós var 3.990 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar dömunar eru Arnbjörg Anna Rafnsdóttir og Þorvaldur Magnússon.

 

Vilhelm Vigfússon fæddur 19. júlí. Hann var 4.100 gr og 53 cm við fæðingu. Foreldar Vilhelms eru Fjóla Hrafnkelsdóttir og Vigfús Ásbjörnsson.

 

Enok Einar Kári Bjarkason fæddur 30. ágúst. Hann var 4.520 gr og 56 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru helga Rós Sveinsdóttir og Bjarki Kárason.

Lesa meira
 

Grillveisla og heilsustefna HSSA.

Miðvikudaginn 27. júní gerðu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér glaðan dag með börnum og barnabörnum þegar boðið var til grillveislu í bakgarði hjúkrunar- og sjúkradeildar. Grillaðir voru hamborgarar frá Seljavöllum með mjög svo heilsusamlegu brauði frá Jóni bakara og hollustusósu Stjána kokks. Einnig kynnti Matthildur sjúkarþjálfari drög að heilsustefnu HSSA sem að hún hefur unnið með Áslaugu Valsdóttur ljósmóður og Kristjáni Guðnasyni kokki stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Kynnisferð starfsmanna til Reykjavíkur!

Mánudaginn 16. apríl skelltu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér til Reykjavíkur í útskriftarferð af Fagnámskeiði 2 í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Þetta voru 30 hressar konur sem kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem tengjast þeirra störfum og gerðu sér auðvitað glaðan dag í leiðinni.

 

Stýrihópur Fagnámskeiðsins skipulagði ferðina í samvinnu við stjórnendur HSSA og Heimaþjónustudeildar. Sveitamennt styrkti ferðina sem gerði hópnum kleift að leigja Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til ferðarinnar og rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í Reykjavík sem kom hópnum á milli staða.

Lesa meira
 

Kiwanis gefur heyrnarmælingartæki.

Heilbrigðisstofnunni hefur borist höfðingleg gjöf frá styrktarsjóði Kiwanisumdæmisins á Islandi og Færeyjum.

Lesa meira
 

Dansleikur á hjúkrunardeild!

Síðasta vetrardag þann 18. apríl n.k. verður vetur konungur kvaddur.

Af því tilefni sláum við upp dansleik á hjúkrunardeildinni.

Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir munu leika fyrir dansi.

Aðstandendur heimilisfólks eru hvattir til að mæta og taka sporið með sínu fólki.

Dansleikurinn hefst kl. 15.30.

 

Óliver Snær, fæddur 26. janúar 2012!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Óliver Snær fæddist þann 26. janúar sl. Óliver Snær var 3.775 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Óli Stefán Flóventsson. Lesa meira
 

Sumarstörf!

Heimaþjónustudeild Hornafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu/ heimilishjálp og dagvist aldraðara í Ekru.

Einnig óskast sjúkraliði í afleysingu í heimahjúkrun.

Upplýsingar um störfin gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is

 

HSSA óskar eftir starfsmanni við sumarafleysingar í ræstingum á hjúkrunardeil frá 16. júlí n.k. Vinnutími frá 8-14 og 3ja hver helgi.

Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is

 

Starfsmaður óskast til aðstoðar umsjónarmanni HSSA. Í starfinu felst m.a. garðvinna og viðhald undir leiðsögn umsjónarmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf.

Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson umsjónarmaður fasteigna HSSA í síma 861 8452 og netfang andres@hssa.is.

 

Lesa meira
 

Starfsmenn á námskeiði í sérhæfðri endurlífgun!

Eins og vera ber sækja starfsmenn námskeið sem stofnunin bíður uppá í sí- og endurmenntun. Fyrr í vikunni sóttu sjúkraflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar námskeið í sérhæfðri endurlífgun á vegum Sjúkraflutningaskólans. Námskeið sem þessi eru fastur punktur í endurmenntun starfsmanna og viðheldur þekkingu þeirra og hæfni. Lesa meira
 

Sumarstörf – HSSA

Starfsfólk óskast í sumarstörf hjá HSSA.

 

Umönnun á legudeildum. Um er að ræða vaktavinnu starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði HSSA í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is

 

Ritarastarf og ræsting á heilsugæslu. Upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði HSSA í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is

Lesa meira
 

Öskudagsfjör!

Að vanda fengum við marga góða gesti á hjúkrunar- og sjúkradeild á öskudaginn. Furðuverur og mis skelfilegar persónur komu og sungu fyrir heimilisfólk. Að launum fengu þau kleinur og djús.

Lesa meira
 

Gunnar Ernir er fæddur!

Þessi myndarpiltur sem fengið hefur nafnið Gunnar Ernir fæddist þann 19. febrúar sl. Gunnar Ernir var 4.060 gr og 54 cm við fæðingu. Foreldrar eru Hulda Valdís Gunnarsdóttir og Jón Garðar Bjarnason. Lesa meira
 

Steinn Dagur er fæddur!

Þessi myndarpiltur sem fengið hefur nafnið Steinn Dagur fæddist þann 13. febrúar sl. Hann var 4 kg og 50 cm við fæðingu. Steinn Dagur er sonur Sirgíðar Dóru Karlsdóttur og Árna H. Steinssonar. Lesa meira
 

Sara Björg fæddist 22. janúar!

Þessi unga dama sem fengið hefur nafnið Sara Björg fæddist þann 22. janúar sl. Hún var 3.795 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar Söru Bjargar eru Ingi Þór Ómarsson og Monika Anna Biadala. Lesa meira
 

Þorrablót 2012.

Þorri var haldinn hátíðlegur hér á hjúkrunardeildinni og í dagvist aldraðra í Ekrunni eins og svo oft áður. Borðaður var þorramatur og skemmtiatriði voru í höndum margra góðra vina sem komu og glöddu okkur öll á þessum góða degi. Lesa meira
 

Styrkur til samþættingar heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.

Lesa meira
 

Freyja fæddist 27. janúar!

Þessi myndardama sem fengið hefur nafnið Freyja fæddist á heimili sínu hér á Hornafirði þann 27. janúar sl. Daman var 3.120 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar Freyju eru Sigrún Bessý Guðmundsdóttir og Margeir Guðmundsson. Lesa meira
 

Aron Fannar fæddist 24. janúar!

Þessi myndarpiltur sem fengið hefur nafnið Aron Fannar fæddist þann 24. janúar sl. Aron Fannar var 3.710 gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Sandra Sigmundsdóttir og Kristinn Þór Óskarsson. Lesa meira
 

Fyrsta barn ársins 2012 - drengur Gunnarsson!

Þann 4. janúar sl. fæddist fyrsti Hornfirðingur ársins á heimili sínu hér á Höfn. Drengurinn var 3.720 gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson. En til gamans má geta þess að Guðbjörg náði því einnig að vera fyrsti Hornfirðingur síns fæðingarárs!

Lesa meira
 

Nýir hornfirðingar 2011

Heyrst hefur að bæjarbúar velti fyrir sér hve stór árgangur 2011 hafi verið!

 

Lesa meira
 

drengur Bjarnason fæddur 18. des 2011!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 18. desember 2011. Áætlaður fæðingardagur var í byrjun janúar svo honum lá heilmikið á að koma í heiminn! Drengurinn var 3.570gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar eru Erla Rún Guðmundsdóttir og Bjarni Ingvar Bergsson.

Lesa meira
 

Jólahald á hjúkrunardeild.

Í kringum jólin er brugðið út af venjulegu heimilishaldi á hjúkrunardeildinni eins og á öðrum heimilum. Flest heimilisfólk getur ekki sótt viðburði utan heimilisins og kemur það sér þá vel að bein tenging er í gegnum sjónvarp við Hafnarkirkju.

Þannig geta íbúar tekið þátt í aðventukvöldi og jólatónleikum í Hafnarkirkju og messuhaldi svo eitthvað sé nefnt. Ýmsilegt er gert til að færa jólin til íbúa.

Jólasamvera var haldin 22. desember í samvinnu við góða gesti. Samkórinn og Karlakórinn Jökull hafa verið hjá okkur og börn úr Tónskóla Hornafjarðar.

Í gær 28. desember var haldið árlegt jólaball starfsmanna HSSA á deildinni var þá margt góðra gesta og kíktu þrír jólasveinar til okkar.

Lesa meira
 

Aðventan í dagvist, Ekru.

Á aðventunni hefur verið mikið að gera í dagvist eins og á öðrum stöðum. Eldri borgarar sem sækja dagvistina í Ekru hafa verið að vinna með mósaík, handavinnu að mála og ýmislegt fleira.

Lesa meira
 

Lyfjaendurnýjanir - opnunartími heilsugæslu.

Nú þegar jólin eru á næsta leiti viljum við minna ykkur á að endurnýja lyf í tíma.

Einnig er vert að vekja athygli á að þeir sem hafa hækkaðan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóma ættu að gæta hófsemi í neyslu reyktra og saltaðrar matvöru.

 

Athugið að lokað er á heilsugæslunni á Þorláksmessu.

Vaktþjónusta í síma 8658900.

Lesa meira
 

Ægir Þór Sævarsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 26. nóvember sl. Hann var 18 merkur og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Hulda Björk Svansdóttir og Sævar R. Guðmundsson.

Lesa meira
 

D-vítamin (öðru nafni kalsíferól)

Skortur á D vítamíni er frekar algengur vandi hér á landi. Í mörgum frumum líkamans ( t.d. hjarta – bris –tauga – ónæmis og beinfrumum) eru viðtakar fyrir D vítamín.

 

Lesa meira
 

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Í haust hafa um 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu.

Lesa meira
 

Dansað inní desember.

Fullveldisdagurinn var haldinn hátíðlegur á hjúkrunardeildinni með dansleik. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku fyrir dansi við mikla ánægju heimilsfólks og gesta.

Viðburðir sem þessir létta lund og kæta enda er takmarkað hvað heimilisfólk getur sótt af viðburðum á aðventunni út í bæ. Því er mjög gaman að fá góða gesti og skemmta sér saman.

Lesa meira
 

Inflúensan er komin til landsins!

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.

Lesa meira
 

Ólafur Ægir Ólafsson er fæddur!

Þessi myndar drengur sem fengið hefur nafnið Ólafur Ægir fæddist 2. nóvember sl. Hann var 3.240gr og 49 cm við fæðingu. Foreldrar Ólafs Ægis eru Harpa Særós Magnúsdóttir og Ólafur Jónsson. Lesa meira
 

Höfðu frumkvæði að vinnu lyfjagæðavísa

HSSA hefur ásamt nú öðrum hjúkrunar- og dvalarheimilum haft frumkvæði að vinnu lyfjagæðavísa sem hafa nú verið birtir á vef Landlæknis embættisins. Sigurður Helgason læknir aðstoðar starfsmenn HSSA við þessa vinnu og færum við honum kærar þakkir fyrir það.

Lesa meira
 

Fjölskyldudagur heimilisfólks HSSA

Fimmtudaginn 27. október býður heimilisfólk aðstandendum sínum í heimsókn til að gera sér glaðan dag sama. Boðið hefst kl. 15 en þá mun starfsemin og sú dægrastytting sem er í boði hjá okkur verða kynnt. Einnig verður rætt um gildi heimsókna þegar aldurinn færist yfir og færni minnkar. Spilað verður á harmónikku og sungið með aðstoð góðra gesta.

Lesa meira
 

Kynslóðir mætast.

Það er gleði og ánægja á hjúkrunardeildinni þegar lítil börn koma í heimsókn með foreldrum sínum. Meðfylgjandi myndir eru teknar við slík tækifæri. Ragna Stefánsdóttir heldur á syni Matthildar sjúkraþjálfa á annarri myndinni en á hinni er Jóna Margrét að greiða Bertu. Börnin komu með henni í því tilefni sem gleður og kætir heimilisfólk og starfsmenn. Lesa meira
 

Fyrsti veggur vetrarins á Bókasafninu

Tryggvi Sigurðsson frá Fagurhólsmýri í Öræfum á fyrsta Vegg vetrarins. Tryggvi er fæddur þann 6. Október árið 1931. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í Dagvist eldri borgara á Hornafirði árið 2010 og á veggnum ber að líta hluta af málverkum hans.

Lesa meira
 

Kiwanis gefur heyrnamælitæki til skólaheilsugæslu.

Um sl. helgi héldu Kiwanis menn og konur, í umdæminu Ísland-Færeyjar 41. umdæmisþing hér á Höfn. Í tilefni þingsins ákvað styrktarsjóður Kiwanis að gefa nýtt heyrnarmælitæki fyrir skólahjúkrun á Hornafirði en eldra tækið var ónothæft.

 

Við setningu þingsins afhenti Björn Ágúst Sigurjónsson formaður styrktarsjóðsins Jónu Báru Jónsdóttur skólahjúkrunarfræðingi tækið með óskum um að það komi sér vel vegna heilsugæslu barna á Hornafirði.

Lesa meira
 

Árleg inflúensubólusetning hefst 3. október n.k.

Bólusetning gegn inflúensu hefst mánudaginn 3 október n.k á heilsugæslustöð Hornafjarðar. Bólusett er virka daga frá kl 11-12. og 13.-14. til 7 október. Eftir það virka daga milli kl 11-12. Ekki þarf að panta tíma. Lesa meira
 

Alþjóðlegi hjartadagurinn

Sunnudaginn 25. september n.k er hinn árlegi Alþjóðlegi hjartadagur haldinn hátíðlegur. Að því tilefni hvetjum við alla til að huga að hreyfingu og hollu mataræði. Lesa meira
 

HPV-bólusetning gegn leghálskrabbameini.

Í lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV-bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum.

 

Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk.

 

Eldri stúlkur eiga kost á að fá bóluefnið gegn lyfseðli og með því að greiða fyrir það.

Lesa meira
 

Vinnu- og hugmyndafundur um uppbyggingu og framtíð heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á svæðinu við Víkurbraut.

Fundurinn er liður í hugmyndavinnu við stefnumótun HSSA og bæjarstjórnar, einnig fyrstu skref umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ræða heildarskipulag svæðisins umhverfis HSSA og Ekru.

Lesa meira
 

drengur Ragnarsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur, sonur Jónu Margrétar Jónsdóttur og Ragnars Más Alfredssonar fæddist þann 9. ágúst sl. Drengurinn var 3,655 gr og 49 cm. Starfsfólk HSSA óskar foreldrum og stóru systur til hamingju með drenginn. Lesa meira
 

drengur Hjálmarsson er fæddur!

Þann 23. ágúst sl. fæddist þessi myndarlegi drengur á HSSA. Hann var 4,100gr og 55 cm. Foreldarar hans eru Matthildur Ásmundardóttir og Hjálmar Sigurðsson. Starfsfólk HSSA óskar þeim Möttu, Hjálmari, Tómasi Orra og Elínu Ásu til hamingju með drenginn.

Lesa meira
 

Listin að eldast með reisn.

Sá hópur fólks sem flokkast sem aldraðir er mjög misleitur og jafnvel fjölbreyttari en aðrir aldurshópar, enda samansettur af mótuðum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Hver einstaklingur hefur lifað sínu lífi og mótast af því. Hækkandi aldur fer mis mjúklega með einstaklinginn og miklar breytingar eiga sér stað. Breytingar eins og líkamlegir eða andlegir sjúkdómar, missir og sorg eða búferlaflutningar þar sem fólk flytur í minna eigið húsnæði eða það flytur úr sínu húsnæði og inn á hjúkrunar eða dvalarheimili.

Lesa meira
 

Ný útskrifaðir hjúkrunarfræðingar!

Þann 11. júní sl. útskrifuðust þær Halla Sigurðardóttir, Íris Gísladóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir og Valgerður Hanna Úlfarsdóttir með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Þær stöllur hafa stundað nám sitt í fjarnámi héðan frá Hornafirði síðustu fjögur árin.

 

Við hjá HSSA erum stolt og ánægð með að hafa fengið þær í vinnu sem hjúkrunarfræðinga við stofnunina en Íris staldraði stutt við í þetta sinn. Hún býr nú í Noregi með fjölskyldu sinni og vinnur við hjúkrun þar.

Lesa meira
 

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild!!

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild frá og með 1. sept n.k. Um er að ræða vaktavinnu aðra hverja helgi. Tilvalið með námi eða annarri vinnu. Laun eru samkvæmt samningi Sveitarfélagsins við AFL starfsgreinafélag. Starfshlutfall 20%.

Lesa meira
 

drengur Einarsson er fæddur!

Þessi myndarlegi piltur fæddirst þann 12. júlí sl. Hann var 3.430gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Eva S. Ragnarsdóttir og Einar Björn Einarsson. Lesa meira
 

Ari Jökull er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Ari Jökull fæddist þann 5. júlí sl. Hann var 3.745 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar Ara Jökuls eru Íris H. Jóhannsdóttir og Óskar Arason. Lesa meira
 

Dominyka er fædd!

Þessi myndarlega stúlka, Dominyka fæddist þann 28. júní sl. Hún var 2.522 gr og 48 cm. Foreldrar hennar eru Vita Mogylaite og Marius Kaminkas.

Lesa meira
 

Hjólað kringum landið - dagbókarfærsla.

Einar Þ. Samúelsson hjólar nú kringum landið undir slagorðinu "Á sumu má sigrast". Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla svo langa vegalengd.

Á þessari slóð http://asumumasigrast.is/dagbok má fylgjast með dagbók Einars sem núna er staddur á Hornafirði. Á sumu má sigrast er áheitasöfnun fyrir aðstandendur Bjargar Guðmundsdóttur og bróður hennar Kristinn Guðmundssonar.

Lesa meira
 

Kynnisferð vegna stefnumótunar HSSA

Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands ásamt fulltrúa starfsmanna, framkvæmdaráði HSSA og ráðgjafa frá R3-ráðgjöf, lögðu land undir fót dagana 6 til 8 júní. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðbúnað og húsnæði nokkurra heilbrigðisstofnana á suður- og vesturlandi. Heimilin, stofnanirnar sem heimsótt voru, eru Klausturhólar Klaustri, Lundur Hellu, Ás Hvergerði, Jaðar Ólafsvík, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, heilsugæslan Mosfellsbæ, Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing, Hjúkrunarheimili Grundar í Mörkinni og Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi. Einnig áttum við fund í Velferðarráðuneytinu með Guðbjarti Hannessyni ráðherra. Lesa meira
 

Drengur Örvarsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 1. júní sl. Hann var 3.730 gr og 51 cm. Foreldrar drengsins eru Elín Dögg Haraldsdóttir og Örvar Hugason. Lesa meira
 

Daniel Már er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Daniel Már fæddist þann 7. maí sl. Hann var 4.520 gr og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Joanna Skrzypkowska og Ágúst M. Ágústsson. Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna!

Starfsfólk HSSA tekur þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Þessar skemmtilegu myndir voru teknar á plani við starfsmannainngang á hjúkrunardeild nú fyrir helgi. Hjólagrindin full en bílaplanið svo til autt!

Lesa meira
 

Góðar gjafir!

Hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA hafa borist góðar gjafir nú síðustu mánuðina og viljum við koma kærum þökkum á framfæri fyrir hlýhug í garð deildarinnar og stofnunarinnar í heild.

Lesa meira
 

Stúlka Valgeirsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega dama fæddist þann 10. maí sl. Hún var 3.480 gr og 50 cm. Foreldarar hennar eru Þórhildur Vala Sigursveinsdóttir og Valgeir Jónsson. Lesa meira
 

Íbúar Sveitarfélagsins eru hvattir til þess að gefa kost á sér

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn.

Lesa meira
 

Stúlka Jónsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 6. maí sl. Hún var 3.470 gr og 49 cm. Foreldrar dömunar eru Katrín S. Guðmundsdóttir og Jón K. Guðmundsson. Lesa meira
 

Vilt þú taka þátt í stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum?

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn. Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf stýrir verkefninu ásamt stjórn stofnunarinnar. Leitast verður við að móta áherslur fyrir HSSA sem nýtast við framtíðaruppbyggingu og alla starfsemi. Eitt af markmiðum verkefnisins er að leita eftir viðhorfum og áherslum íbúa sveitarfélagsins í þessum málaflokki.

Lesa meira
 

Zoila Ýr er fædd!

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Ziola Ýr Pepito Mantilla fæddist þann 19. apríl sl. Hún var 3.000gr og 48cm. Foreldarar Zoilu Ýrar eru Amor Joy Magno Pepito og Bobby Falcon Mantilla. Lesa meira
 

Stúlka Hólmarsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 13. apríl sl. Hún var 3.030gr og 48 cm við fæðingu. Foreldar dömunnar eru Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir og Hólmar Unnsteinsson.

Lesa meira
 

Fundur með rekstraraðilum hjúkrunarheimila í heilbrigðisumdæmi Suðurlands

Samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands fundaði í gær 14. apríl með rekstararaðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Fundurinn var haldinn á Hvolsvelli og voru Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri sem situr í samráðsnefndinni og Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði á fundinum.

 

Megin dagskrá fundarins var um vistunarmat og lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Einnig var rætt um hugsanlega samstarfsverkefni milli heimila og samskipti við ríkisvaldið. 

Þá spurðist framkvæmdastjóri HSSA um aðbúnað á hjúkrunarheimilum í umdæminu með tilliti til einbýla og fjölbýla. Þar kom fram að hvergi er hlutfall einbýla jafn lágt og á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en þau eru tvö af sextán herbergjum hjá okkur.

Lesa meira
 

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Frá áramótum hafa tæplega 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu. Samkvæmt því sem lesa má úr mati þátttakendanna voru þeir almennt ánægðir með námið og töldu að það myndi stuðla að því að þeir gætu sinnt störfum sínum af meiri fagmennsku. Lesa meira
 

Sumarvinna á HSSA!

Nú erum við farin að huga að sumrinu og ráðningu afleysingafólks.

Þau störf sem eru í boði er umönnun í vaktavinnu á bæði hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Vaktavinna í eldhúsi og í ræstingu. Félagsstarf með öldruðum á hjúkrunar- og sjúkradeild og í dagvist. Móttökuritari á heilsugæslu og starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.

Lesa meira
 

Franz Reynir er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Franz Reynir fæddist þann 16. mars sl. Hann var 3.730gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Elisabeth Kruger og Rögnvaldur Reynisson.

Lesa meira
 

Stefnumótun HSSA

Í dag 29. mars skrifuðu Ásgeir Gunnarsson formaður Stjórnar HSSA og Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf ehf undir samning um stefnumótunarvinnu fyrir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.

Lesa meira
 

Drengur Sigurjónsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 11. mars sl. Hann var 3345 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Jóna Stína Bjarnadóttir og Sigurjón M. Skúlason. Lesa meira
 

Matthias er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Matthias fæddist þann 28. febrúar sl. hann var 4.155gr og 53 cm við fæðingu. Foreldrar Matthiasar eru Mahder Zewdu Kebede og Guðmundur Ragnarsson. Lesa meira
 

Stúlka Guðmundsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 17. febrúar sl. Hún var 3.205 gr og 51 cm. Foreldrar hennar eru Heiðrún Högnadóttir og Guðmundur Gunnarsson. Lesa meira
 

Drengur Björnsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 8. febrúar sl. Hann var 3.175gr og 50cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Þórey Bjarnadóttir og Björn B. Þorbergsson. Lesa meira
 

Svanur Snær er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Svanur Snær fæddist þann 19. janúar sl. Hann var 4.0 kg við fæðingu. Foreldrar Svans Snæs eru Yrma Rosas Rengifo og Jóhann P. Kristjánsson. Lesa meira
 

Þorrablót heimilisfólks HSSA

Það var mikið fjör og gaman á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA sl. fimmtudag. Þá var haldið árlegt þorrablót heimilisfólks. Að sjálfsögðu var boðið uppá þorramat, skemmtidagskrá og svo dansað á meðan þróttur leyfði.

 

Góðir gestir tóku þátt í skemmtidagskránni. Stakir jakar sungu undir stjórn Guðlaugar Hestnes, Guðbjartur Össurarson flutti gamanmál,

Lesa meira
 

Hópleit Krabbameinsfélags Íslands

Í mars nk. verður legháls- og brjóstakrabbameinsleit á vegum Krabbameinsfélags Íslands á Hornafirði. Þær konur sem eiga að koma í skoðun verða látnar vita með bréfi frá félaginu.

Lesa meira
 

Fyrsti hornfirðingur ársins!!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 19. janúar sl. Hann var 3.325gr og 51cm. Foreldrar hans eru Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Sigursteinn Reynisson. Lesa meira
 

Kvenfélagið Ósk styrkir hjúkrunar- og sjúkradeild,

Þann 5. janúar sl. afhenti stjórn Kvennfélagsins Óskar í Suðursveit Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur framkvæmdastjóra HSSA 200.000kr peningagjöf til hjúkrunar- og sjúkradeildar. Féinu verður varið í endurnýjun á hljómflutningstækjum deildarinnar sem komnar eru til ára sinna. Kvennfélagskonum í Suðursveit þökkum við kærlega fyrir góða gjöf.

 

Reynir Þór, fæddist 9. desember!

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Reynir Þór fæddist þann 9. desember sl. Reynir var 3.010gr og 47cm. Foreldrar Reynis Þórs eru Sólveig María Hauksdóttir og Páll Ásgeir Jónsson. Lesa meira
 

GLEÐILEGA HÁTÍÐ!

Heimilisfólk og starfsfólk HSSA óskar samferðafólki sínu og öllum íbúum sveitarfélagsins gleðilegrar jólahátíðar. Kærar þakkir til þeirra fjölmörgu sem litu til okkar í heimsókn, hvort sem er til að stytta stundir með spjalli, lestri, söng eða tónlistarflutningi. Síðast í morgun komu rauðklæddir sveinar og sungu jólalög og afmælissönginn fyrir einn heimilismann.
 

Jólasamvera 2010

Sú hefð hefur skapast á hjúkrunar- og sjúkradeild að hafa jólasamveru á aðventunni þar sem heimilisfólk tekur á móti góðum gestum. Í gær 21. desember var jólasamvera ársins. Sóknarpresturinn okkar, séra Sigurður ásamt þeim heiðurshjónum Kristínu Gísladóttur og Hreini Eiríkssyni lásu upp efni tengt jólunum. Samkór Hornafjarðar söng undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.

Lesa meira
 

Jólaundirbúningur - lyfjaendurnýjanir!

Vinsamlegast athugið að endurnýja lyf tímanlega fyrir jólin. Heilsugæslustöðin verður lokuð frá kl 13.00 á Þorláksmessudag. Lesa meira
 

Helgileikur og bókakynning

Góðir gestir hafa heimsótt heimilisfólk á hjúkrunar- og sjúkradeild í dag. Börn frá Krakkakoti komu og fluttu helgileik. Félagar leikaranna komu með og nutu sýningarinnar með heimilisfólki. Eftir hádegi komu rithöfundar og kynntu bækur sínar. Lesa meira
 

OLE 2 verkefnið tilnefnt til evrópsku RegioStars verðlaunanna 2011.

OLE 2 verkefnið sem HSSA tekur þátt í ásamt Öldrunarheimilum Akureyrar og félagsþjónustunni í Hafnarfirði er tilnefnt til evrópsku RegioStars verðlaunanna 2011.

Lesa meira
 

Aðventan á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA

Aðventan er tími gleði, ljósa og tónlistar á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA. Það sem greinir frá hinum almenna borgara í samfélaginu er að tónlistarfólkið og gleðigjafarnir sæka heimilisfólkið heim þar sem flestir hér hafa ekki heilsu til að sækja slíka viðburði í bænum.

 

Þessar heimsóknir eru ómetanlegar og yndislegar. Heimilisfólk hefur fengið leikskólabörn frá Krakkakot i í heimsókn, barnakóra, tónlistarnemendur úr Tónskólanum, Gleðigjafana kór eldri borgara og Staka Jaka félaga úr Karlakórnum Jökli.

Lesa meira
 

Drengur Kjartans- og Önnuson er fæddur!

Þessi myndarlegi piltur fæddist á HSSA þann 6. desember sl. Hann var 4.960gr og 58cm. Foreldrar drengsins eru Anna Jóna Úlfarsdóttir og Kjartan Berg Rútsson. Lesa meira
 

Drengur Ægisson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 18. nóvember sl. Hann var 3.175gr og 50cm. Foreldrar hans eru Hafdís Hauksdóttir og Ægir Olgeirsson. Lesa meira
 

Björg Sveinsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Björg fæddist þann 8. nóvember sl. Daman var 3.890gr og 53 cm. Lesa meira
 

Ný símanúmer á HSSA frá 1. des 2010

Næstkomandi miðvikudag 1. desember 2010 verður tekið í notkun nýtt IP-símkerfi hjá HSSA. Það hefur í för með sér ný símanúmer. Aðalnúmer stofnunarinnar verður 470 8600 og faxnúmer 470 8601. Fyrst um sinn verður eldra númeri svarað af símsvara sem gefur upp nýtt númer. Breyting verður á öllum númerum stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Dansleikur á hjúkrunardeild

Föstudaginn 19. nóvember gerði heimilisfólk á hjúkrunar- og sjúkradeild sér dagamun. Haldinn var dansleikur í setustofu deildarinnar. Hilmar og fuglarnir léku undir dansi og skemmtu heimilisfólki og gestum þeirra. Lesa meira
 

Þingmenn heimsóttu dvalardeild

Fimmtudaginn 18. nóvember sl. heimsóttu Árni Johnsen og Sigurður Ingi Jóhannsson þingmenn suðurkjördæmis heimilisfólk á dvalardeild. Þingmennirnir voru staddir á Hornafirði vegna íbúafundar sem haldinn var þá um kvöldið.

Lesa meira
 

Sóley Eir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Sóley Eir fæddist þann 1. nóvember sl.

Lesa meira
 

Prjónað til góðs í Dagvist

Um síðustu mánaðarmót tók formaður Hornafjarðardeildar RKÍ við prjónalesi fyrir hönd deildarinnar. Þá var kassinn góði sem afrakstri föstudagsvinnu prjónakvennanna er safnað í orðinn fullur og vel það.

Lesa meira
 

Starfsmannafundur á HSSA

Starfsmannafundur var haldinn á HSSA í dag þar sem farið var yfir stöðu stofnunarinnar út frá fjárlögum fyrir árið 2011 sem birt voru þann 1. okt sl. Þetta er annar fundurinn með starfsmönnum og eru þeir haldnir til að halda upplýsingaflæði opnu milli starfsmanna og stjórnenda stofnunarinnar.

Lesa meira
 

4. bekkur í Dagvist - OLE2

Í dag kom seinni helmingurinn af 4. bekk í heimsókn í dagvist eldri borgara. Þau fengu að prófa gamla prjónavél og að spóla.

Lesa meira
 

Ráðgjafi að láni.

Í gær, þann 30. september skrifuðu stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og Málefna fatlaðra undir samstarfssamning við framkvæmdastjóra Sveitamenntar, sem er fræðslusjóður almennra starfsmanna er starfa hjá sveitarfélögum og hafa félagsaðild að AFLi starfsgreinafélagi. Samningurinn felur í sér að Sveitamennt útvegar áðurnefndum málaflokkum ráðgjafa að láni í ákveðinn tíma.

Lesa meira
 

Brúum kynslóðabilið - OLE2

Hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA er í samstarfi við leikskólann Krakkakot í OLE2 verkefnavinnu. Elstu börnin á Krakkakoti koma mánaðarlega í heimsókn á hjúkrunar- og sjúkradeild til samstarfs við íbúa. Í gær 29. september ræddu þau um haustið og sungu lög tengd árstíðinni.

Lesa meira
 

Brúum kynslóðabilið - OLE2

Það var handagangur í öskjunni á mánudaginn þegar hluti nemenda úr 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar heimsótti dagvist aldraðra. Heimsókn þeirra er hluti af verkefninu OLE2 sem HSSA tekur þátt í á vegum Norðurslóða áætluarinnar. Tilgangur verkefnisins er að leiða saman unga og aldna í hagnýtum verkefnum.

Lesa meira
 

Árleg inflúensubólusetning hefst 24. september.

Á hverju hausti er boðið uppá inflúensubólusetningu á heilsugæslunni. Landlæknir gefur út hvaða bóluefni er notað eftir því hvaða flesnsustofn er líklegastur til að herja á landann hverju sinni.

Lesa meira
 

Þorgerður Jónsdóttir er fædd!

Þorgerður Jónsdóttir fæddist þann 11. september sl. Hún er dóttir Ingibjargar Guðmundsdóttur og Jóns Þorbjörns Ágústssonar. Lesa meira
 

Stúlka Birgisdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 5. septembar sl.Hún var 2350gr og 49 cm við fæðingu.

Lesa meira
 

September fréttir frá Dagvist.

Hér kemur mánaðarlegur fréttapistill dagvistarinnar. :)

 

Nú hefur dagvistin hefur nú verið lengd um klukkutíma þ.e. til kl 15. Þá höfum við meiri tíma til að fara eitthvert eftir hádegi. Síðastliðinn þriðjudag fórum við í Steinasafnið Huldustein, hjá Ásbirni og Viggu.

Lesa meira
 

drengur Stefánsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur, sonur Jónínu Guðjónsdóttur og Stefáns Jónssonar fæddist þann 25. ágúst sl. Lesa meira
 

stúlka Jónsdóttir er fædd!!

Jón Björnsson og Kristrún Ýr Gylfadóttir eignuðust þessa myndar stúlku þann 18. ágúst sl. Hún var 4180g og 52 cm við fæðingu. Lesa meira
 

Björg Kristjánsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Björg fæddist 17. ágúst sl. Foreldrar hennar eru Sigrún Gylfadóttir og Kristján Rúnar Hauksson. Lesa meira
 

Lejla er fædd!!

Þessi myndarlega stúlka Lejla Mujkic fæddist þann 27. júlí sl. Hún var 3745 gr og 52 cm. Foreldrar hennar eru Senida og Jasmin Lesa meira
 

Frá dagvist.

Fimmtudaginn 15 júlí fórum við á vinnustofuna hjá Sigurði Einarssyni sem er staðsett í Miklagarði. Þar er hann að gera fallega muni úr hreindýrshornum og steinum og hann er líka að selja "Siggakrem", en það er krem sem hann hefur verið að þróa í 14 ár og er áburðurinn mjög græðandi. Lesa meira
 

Grillað í dagvist!

Föstudaginn 1. júlí sl. var árlegur grilldagur dagvistar HSSA. Þrjátíu manns mættu í grillið og var mikil gleði.

Lesa meira
 

Miguel er fæddur!

Þessi myndalegi drengur Miguel Domasiewicz fæddist 29. júní sl og var þá 3400 gr. Lesa meira
 

Freyja Tjörvadóttir er fædd!

Þessi myndalega stúlka sem fengið hefur nafnið Freyja fæddist þann 22. júní sl. Hún var 3975 gr og 52 cm. Lesa meira
 

Emilía Ósk er fædd!

Þessi myndalega stúlka Emilía Ósk Jóhannsdóttir fæddist þriðja júní sl. Hún var 5.020gr. Lesa meira
 

Gídeonfélagið á Íslandi gefur HSSA Nýja testamentið.

Þann 17. júní sl. afhenti Þorsteinn Sigurbergsson HSSA tuttugu eintök af Nýja testamnentinu fyrir hönd Gídeonfélagsins á Íslandi. Halla Sigurðardóttir hjúkrunarnemi

Lesa meira
 

Góðir gestir.

Margir góðir gestir hafa lagt leið sína á hjúkrunar- og sjúkradeild undanfarið til að stytta heimilisfólki stundirnar. Börn frá Krakkakoti koma reglulega og spjalla við og syngja fyrir fólkið okkar. Einnig hafa barnakórar komið og skemmt, "Gleðigjafar" kór eldri borgara söng sl. sunnudag í stofunni hjá okkur.

Lesa meira
 

Ívar Goði er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur Ívar Goði fæddist á HSSA þann 16. apríl sl. Hann var 4.020gr við fæðingu og 53,5 cm.

Lesa meira
 

Drengur Finnsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist á LSH í Reykjavík þann 15. apríl sl. Hann var 4.445 gr við fæðingu.

Lesa meira
 

Veturinn kvaddur á hjúkrunardeild.

Síðasta vetrardag var slegið upp balli á hjúkrunardeildinni. Heimilisfólk bauð aðstandendum og vinum í kaffi og köku, síðan var dansað undir harmonikkuleik Kalla á Móhól.

Lesa meira
 

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á HSSA í sumar!

Um er að ræða störf í aðhlynningu bæði á dvalardeild og hjúkrunar- og sjúkradeild. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi.

Lesa meira
 

Stúlka Ingólfsdóttir er fædd!

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 4. apríl s.l. á LSH í Reykjavík. Stúlkan var 3.370gr við fæðingu. Foreldrar hennar eru Árdís Erna Halldórsdóttir og Ingólfur Reynisson. Lesa meira
 

Arnar Ingi Arens Sigfússon er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur Arnar Ingi Sigfússon fæddist þann 6. apríl s.l. á Landspítalanum í Reykjavík.

Lesa meira
 

Drengur Gunnarsson er fæddur!

Þessi myndarlegi drengur fæddist heima hjá sér í Garðsbrúninni 3 april s.l. Hann var 3760 gr og foreldrar hans eru Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson.

Lesa meira
 

Dugnaður í dagvist.

Sú hefð er komin á í dagvist að prjónað er til góðs á föstudögum. Mikill dugnaður hefur skilað sér í prjónavöru sem Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður Hornafjarðardeildar RKÍ tók við í dag 9. apríl. Það sem afhent var í dag eru 82 sokkar, 39 vettlingar, 19 húfur, 1 peysa, 1 trefill og 4 þvottapokar.

Lesa meira
 

Söngskemmtun á hjúkrunar- og sjúkradeild

Samkór Hornafjarðar skemmti heimilisfólki með ljúfum söng og sögum þeim tengdum sl. sunnudag 21. mars. Heimilisfólk og starfsmenn kunnu vel að meta þessa heimsókn og þakka kærlega fyrir sig.

Lesa meira
 

Dagvist á ferðinni.

Síðustu daga hafa skjólstæðingar og starfsmenn dagvistar HSSA verið á ferðinni að kynna sér verk hornfirskra listamanna. Farið var á sýningu Guðrúnar Ingólfsdóttur "Ljóðaljós" í Kartöfluhúsinu og Árnína Guðjónsdóttir heimsótt á vinnustofu sína.

Lesa meira
 

SUMARSTÖRF

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar hjá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Um er að ræða umönnun bæði á hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild, í eldhús og ræstingar. Unnið er í vaktarvinnu samkvæmt vaktarúllu.

Lesa meira
 

Samstarfssamningur milli HSSA og HSu.

Í dag miðvikudaginn 10 mars, var undirritaður þjónustusamningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA) á hjúkrunardeild HSSA. Samningurinn felur í sér samstarf um læknisþjónustu, símsvörun og fleiri þætti.

Lesa meira
 

Búið að bólusetja 1.190 einstaklinga á Hornafirði gegn svínainflúensu A(H1N1)

Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta .

Lesa meira
 

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hafa gert eftirfarandi samkomulag um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu sem HSSA veitir nemendum FAS.

Lesa meira
 

Nýr vefur Sjúkratrygginga Íslands.

Við viljum vekja athygli á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands

Lesa meira
 

Öskudagur

Það var mikið líf og fjör hjá okkur á HSSA eins og á öðrum stöðum í gær öskudag en margir krakkar lögðu leið sína til okkar að syngja og fengu kakó, djús og kökur fyrir sönginn. Lesa meira
 

Stúlka Valdimarsdóttir er fædd!

Þessi myndarstúlka fæddist á fæðingardeild HSSA þann 15. febrúar sl. Foreldrar hennar eru Aðalheiður Fanney Björnsdóttir og Valdimar Ingólfsson. Lesa meira
 

Þorrablót HSSA

Þorrablót HSSA var haldið 11 febrúar síðastliðinn, fyrir þá sem þiggja þjónustu heimahjúkrunar, heimaþjónustu og dagvistar. Um 70 manns mættu á blótið sem var haldið í Ekrusalnum.

Lesa meira
 

Þorrablót HSSA.

Þann 11. febrúar sl. voru haldin þorrablót á vegum HSSA bæði á hjúkrunardeild og í dagvist. Á hjúkrunardeildinni hófst undirbúningurinn með hárlagningu og rúllum hjá konunum eins og vera ber. Í hádeginu var boðið uppá dýrindis þorramat sem starfsfólk mötuneytisins reiddi fram af mikilli snilld.Tók heimilisfólk þá vel til matar síns.

Lesa meira
 

Verkefnafundur í OLE2.

Framkvæmdaráð HSSA þ.e. Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir eru nú staddar í Þórshöfn í Færeyjum á vinnufundi í OLE2 verkefninu. Lesa meira
 

Fyrsti Hornfirðingur ársins.

Þessi ungi myndalegi drengur Ari Reynisson er fyrsti Hornfirðingur ársins, fæddur 9. janúar sl á Norðfirði.

Lesa meira
 

Tannverndarvikan 2010

Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.

Lesa meira
 

Ásta Oddbergsdóttir fyrrverandi húsmóðir á Ási í Nesjum 95 ára.

Í gær fimmtudaginn 21. janúar varð Ásta Oddbergsdóttir fyrrverandi húsmóðir á Ási í Nesjum 95 ára. Af því tilefni buðu hún og fjölskylda hennar í kaffi á hjúkrunardeildinni á afmælisdaginn.

Lesa meira
 

Það er líf og fjör í Dagvist alla virka daga.

Nú hefur sú nýbreytin verið tekin upp að “prjóna til góðs” á föstudögum í dagvist. Þá er setið saman prjónað og spjallað, afraksturinn fer í hjálparstarf Rauða krossins.

Lesa meira
 

Nýárskveðja

Fyrir hönd heimilisfólks og starfsfólks hjúkrunar- og sjúkradeildar HSSA viljum við þakka þeim fjölmörgu einstaklingum og hópum sem komu til okkar á nýliðnu ári.

Lesa meira
 

Jólaball HSSA 2009.

Hið árlega jólaball HSSA var haldið á hjúkrunardeildinni þann 27. desember s.l. Þar skemmta starfsmenn, börn þeirra og barnabörn sér með heimilisfólki sem dansaði og söng með unga fólkinu.

Lesa meira
 

Bólusetning A (H1N1)

Á morgun fimmtudaginn 7. janúar koma 100 skammtar af bóluefni við inflúensu A (H1N1). Eru það færri skammtar en reiknað var með. Ljóst er að ekki fá allir þeir sem komnir voru á biðlista fyrir jól bólusetningu í þetta sinn.

Lesa meira
 

Húfur handa nýfæddum börnum

Fyrstu húfurnar voru afhentar hér á HSSA 30. desember 2009, en áætlað er að um það bil 20 börn fæðist á þessu ári í Austur- Skaftafellssýslu, eins og síðastliðin ár. Lesa meira
 

Heimasíða HSSA í loftið

Heimasíða HSSA hssa.is er nú komin í loftið. Á síðunni má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um Heilbrigðisstofnunina og tilkynningar og fréttir frá heilsugæslunni.

Lesa meira
 

Jólasamvera heimilisfólks á hjúkrunardeild

Mánudaginn 21. desember sl. gerði heimilisfólk sér glaðan dag og fékk góða gesti í heimsókn.

Séra Sigurður var veislustjóri og tók líka lagið fyrir viðstadda. Hreinn Eiríksson las gamla jólahugvekju, Sigurður Hannesson var einnig með upplestur og Samkórinn söng undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.

Lesa meira
 

Bólusetning H1N1 - svínaflensu

Búið er að bólusetja rúmlega 800 einstaklinga á Hornafirði nú fyrir jólin. Samkvæmt   Landlæknisembættinu er von á nýjum skömmtum af bóluefni  í kringum 6.  janúar nk, enn er óljóst hve marga skammta við fáum.

Enn er fólk á biðlista sem kominn var um miðjan desember og þeir einstaklingar sitja fyrir í bólusetningu þegar næsta sending af bóluefni kemur .

Opnað verður aftur fyrir  pantanir  í fyrstu viku janúar.

 

Lesa meira
 

Sumarlokun fæðingardeildar

Fæðingardeild HSSA verður lokuð frá og með 3. júlí til 10. ágúst vegna sumarleyfa.

Lesa meira
 

Bæjarráð fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við sveitarfélagið

Á síðasta bæjarstjórnarfundi var gerð bókun þar sem fram kemur að bæjarráð fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð.

Lesa meira
 

Fréttir HSSA
Zoila Ýr 19.04.2011
Zoila Ýr 19.04.2011

26.04.2011

Zoila Ýr er fædd!

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Ziola Ýr Pepito Mantilla fæddist þann 19. apríl sl. Hún var 3.000gr og 48cm. Foreldarar Zoilu Ýrar eru Amor Joy Magno Pepito og Bobby Falcon Mantilla. Starfsfólk HSSA óskar nýbökuðum foreldrum innilega til hamingju með dömuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica