Íbúar Sveitarfélagsins eru hvattir til þess að gefa kost á sér
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn.
Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf stýrir verkefninu ásamt stjórn stofnunarinnar. Unnið er að því að móta áherslur fyrir HSSA sem nýtast við framtíðaruppbyggingu og alla starfsemi. Eitt af markmiðum verkefnisins er að leita eftir viðhorfum og áherslum íbúa sveitarfélagsins í þessum málaflokki. Í þessu skyni verður myndaður sérstakur rýnihópur íbúanna og hefur stofnunin óskað eftir áhugasömum einstaklingum til þess að taka þátt í vinnufundi hópsins sem verður miðvikudaginn 18. maí kl. 16:00 – 19:00.
Leitað er eftir einstaklingum af báðum kynjum, á ólíkum aldri og með búsetu bæði í dreifbýli og þéttbýli sveitarfélagsins. Íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru hvattir til þess að gefa kost á sér á þennan vinnufund.Áhugasamir þurfa að gefa sig fram við HSSA fyrir n.k. föstudag, 13. maí, í síma 470 8600 eða með tölvupósti á netfanginu: hssa@hssa.is
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd