Beint í leiðarkerfi vefsins.
Laus er til umsóknar staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands Hornafirði. Á stofnuninni er fæðingardeild með skilgreint þjónustustig D1. Ljósmóðir sinnir jafnframt ungbarna- og mæðravernd á heilsugæslustöð ásamt því að sinna almennum hjúkrunarstörfum. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi LMFÍ og ríkisins og stofnanasamningi HSSA.
Lesa meiraHeilbrigðisstofnun Suðausturlands barst á dögunum veglegur styrkur til kaupa á nýjum röntgen lesara. Gamli röntgenlesarinn gaf sig og því var brugðið á það ráð að leita til fyrirtækja og félagasamtaka eftir styrkjum til að kaupa nýjan lesara. Líkt og flestir vita þá var það fyrir tilstilli samfélagssöfnunar sem þessi röntgentæki voru keypt árið 2006.
Lesa meiraLandlæknir, Geir Gunnlaugsson og þrír aðrir starfsmenn embættisins voru í heimsókn hjá HSSA í gær 17. apríl. þau funduðu með stjórnendum og starfsfólki stofnunarinnar, kynntu Embætti landlæknis og kynntu sér starfsemi HSSA.
Lesa meiraStuttur fræðslufyrirlestur um „Heilsu og vellíðan“ verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:30 í Nýheimum.
Lesa meiraHeilbrigðisstofnun Suðausturlands stendur fyrir tveggja helga námskeiði í hugleiðslu og streitustjórnun dagana20.-21.apríl og svo aftur 4.-5.maí. Kennt verður frá 9-17 á laugardeginum og 9-14 sunnudag . Fyrra námskeiðið er grunnnámskeið og er undanfari þess seinna.
Lesa meiraSú nýbreytni verður tekin upp á heilsugæslustöðinni frá og með 10.apríl að bráðaerindi til vaktlæknis eftir lokun skiptiborðs verða í síma 112 í stað þess að hringja beint í vaktsíma læknis. Þar tekur sérhæfður neyðarvörður við vaktþjónustunni sem metur ástand, leiðbeinir þeim sem hringir og hefur samband við lækni ef þörf er á.
Lesa meiraLangar þig að vinna á skemmtilegum og líflegum vinnustað í sumar? Þá er tilvalið að sækja um í sumarafleysingum á HSSA. Ennþá er laust í afleysingar á legudeildum og í ræstingu á heilsugæslu.
Lesa meiraFAAS, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma hélt fræðslufund í Ekru í gær fimmtudaginn 21. febrúar. Mjög góð mæting var á fundinn sem var mjög upplýsandi og góður.
Lesa meiraReglubundin leghálsskoðun og brjóstamyndataka eru viðurkenndar aðferðir til að finna forstigsbreytingar leghálskrabbameins og brjóstakrabbamein á byrjunarstigi.
Lesa meiraStarfsfólk óskast í sumarstörf á legudeildir, heilsugæslu, dagdvöl og aðstoðarmann húsvarðar.
Lesa meiraAthygli skal vakin á því að ef óskað er eftir að fá lyfjaendurnýjun afgreidda samdægurs þarf að hafa samband við heilsugæslu fyrir kl. 12 á hádegi.
Lesa meiraÞessi ungi myndarlegi drengur fæddist þann 29. nóvember sl. Hann var 3.425gr og 50cm. Foreldrar eru Hanna Guðrún Kolbeins og Tryggvi Valur Tryggvason.
Lesa meiraÍ gær fimmtudaginn 31. janúar voru haldin þorrablót hjá dagdvöl aldraðra í Ekru og á hjúkrunardeildinni. Allir eru sammála um að vel tókst til á báðum stöðum, matur og skemmtidagskrá alveg frábær.
Lesa meiraÞað var mikil gleði hjá starfsfólki HSSA sl. föstudag 25. janúar en þá var skrifað undir nýjan þjónustusamning um rekstur stofnunarinnar.
Lesa meiraFæðingartíðni Hornfirðinga hefur verið há núna í janúar. Í dag fáum við fréttir og myndir af þremur janúarbörnum.
Lesa meiraFyrsti Hornfirðingur ársins fæddist þann 4. janúar sl. Daman hefur fengið nafnið Natalía Sól Malarz. Natalía Sól var 4.100 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Malwina og Arkadiuz Malarz.
Lesa meiraRitað var undir samning við ríkið þjónustusamningur vegna heilbrigðs- og öldrunarþjónustu hér á Hornafirði. Sveitarfélagið hefur samþætt heilbrigðis- og öldurnarþjónutu við önnur svið velferðar- og félagsmála sem það veitir. Reynslan af þessu fyrirkomulagi er mjög góð.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands nýtur góðs stuðnings Gjafa- og Minningarsjóðs Skjólgarðs.
Lesa meiraÍ haust fór Heilbrigðisstofnunin af stað með heilsueflingu fyrir starfsfólk. Það var byrjað á að bjóða starfsmönnum í heilsufarsmælingar ásamt því að lagður var fyrir spurningalisti um líðan í vinnunni, um hreyfingu og um viðhorf til hollra lífshátta.
Lesa meiraÁrlega koma upp faraldrar ýmissa niðurgangspesta og inflúensu sem ganga milli manna. Heilbrigðir einstaklingar verða misjafnlega mikið veikir og jafna sig oftast fljótlega en geta verið smitandi í nokkra daga.
Lesa meiraMargir góðir gestir heiðra heimilisfólk á HSSA á aðventunni. Í gær 19. desember komu ættingjar og vinir í jólasamveru á hjúkrunar- og sjúkradeild. Af því tilefni var Ásbirni Þórarinssyni hárskera og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur snyrtifræðingi þakkað fyrir áralanga þjónustu við heimilisfólk HSSA.
Lesa meiraUndanfarið hafa verið að greinast húðsýkingar hjá heilbrigðum börnum í Reykjavík af völdum baktería sem heita Stafýlókokkus aureus (S. Aureus) sem kallaðir eru mósar.
Af því tilefni hefur sóttvarnarlæknir Landlæknisembættisins sent frá sér dreifibréf með upplýsingum um bakteríuna, smitleiðir o.fl.
Í dreifibréfinu eru gagnlegar upplýsingar um handhreinsun og fleira sem eiga erindi til okkar allra.
Lesa meiraEinar Smári Þorsteinsson, sjúkraþjálfari hóf störf á HSSA þann 1. nóvember sl. Hann tók við af Matthildi Ásmundardóttur sem tók við framkvæmdastjórastöðu stofnunarinnar á sama tíma. Einar Smári útskrifaðist sem sjúkraþjálfari vorið 2012.
Lesa meiraSú skemmtilega hefð hefur skapast að rithöfundar sem koma til Hornafjarðar að lesa uppúr verkum sínum á aðventunni koma til okkar á hjúkrunardeildina og lesa fyrir heimilisfólk.
Lesa meiraÞað hefur lengi staðið til hjá okkur að fara inn að Smyrlabjörgum og skoða breytingarnar. Og þann 4.12. 2012 létum við verða að því. Við brunuðum í hálkunni á þremur bílum og á móti okkur tók Laufey og Birna dóttir hennar. Þær fóru með okkur í nýju bygginguna og sýndu okkur hvað búið er að gera. Þarna var líka heljarinnar piparökuhús sem Laufey var búin að gera og engin smá vinna í því. Svo fengum við þvílíkar hnallþórur, kaffi og kakó
Lesa meiraÞað hefur verið umrót á hjúkrunar- og sjúkradeildinni undanfarnar tvær vikur. Unnið er að breytingum á húsnæði til að auka rými heimilisfólks auk þess sem skipt var um dúk á borðstofu. Framkvæmdirnar eru greiddar af Fasteignum ríkissjóðs en stofnunin leigir húsnæðið af þeim.
Lesa meiraÞróttmikið og gott starf er unnið í Dagdvöl aldraðra í Ekrunni. Ýmis verkefni eru þar í gangi en einnig er tekið á móti góðum gestum og farið út í bæ að gera sér glaðan dag. Hér má sjá sýnishorn af því sem við er að vera og afurðir frá starfinu.
Lesa meiraÍ sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við stækkun á kirkjugarðinum á Höfn. Einkar vel hefur tekist til við að gera umhverfi og umgjörð garðsins fagurt og aðlaðandi.
Lesa meiraNú er aðgengileg á vef HSSA Hópslysa- og viðbragðsáætlun stofnunarinnar. Í áætluninni segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða innan heilbrigðisstofnunarinnar í kjölfar atburðar sem kallar á aukin viðbrögð hennar.
Áætlunin er unnin af Áslaugu Valsdóttur, Birni Þ Sigurbjörnssyni, Ester Þovaldsdóttur og Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur . Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008, lög um sóttvarnir nr. 19/1997, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, lög um eiturefni og hættuleg efni nr. 52/1988 auk laga um heilbrigðisstéttir og laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Lesa meiraGuðbjörg Lilja Jóhannsdóttir fæddist þann 29. september sl. Hún var 4.950gr og 55cm við fæðingu. Foreldrar Guðbjargar Lilju eru Sigrún Ólöf Björgvinsdóttir og Jóhann Hilmar Haraldsson.
Drengur Gíslason fæddist 5. október sl. Hann var 4.240gr og 53,5cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Þóra Björg Gísladóttir og Gísli Karl Ágústsson.
Stúlka Árnadóttir fæddist þann 24. október sl. hún var 3.545gr og 51cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Ragnhildur Einarsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Lesa meiraÞann 25. október sl. bauð heimilisfólk ættingjum og vinum í heimsókn á heimilið. Af því tilefni hafði starfsfólk í eldhúsi bakað rjómatertur og pönnukökur að ósk heimilisfólks. Galtt var á hjalla eins og vera ber. Kalli tók í nikkuna og var sungið af hjartans lyst.
Lesa meiraNokkur börn hafa bæst við á Hornafirði í september og október. Í dag birtum við myndir af þrem drengjum og óskum um leið fjölskyldum þeirra til hamingu með nýja fjölskyldumeðlimi!
Þann 19.september sl. fæddist Garpur Guðjónsson hann var 3.640gr og 50cm við fæðingu. Foreldrar Garps eru Þórdís Þórsdóttir og Guðjón Björnsson.
Hinrik Guðni fæddist þann 29. september hann var 3.750gr og 52cm við fæðingu. Foreldrar Hinriks Guðna eru Eva Birgisdóttir og Bjarni Ólafur Stefánsson.
Og þann 29.október eignuðust Þórey Bjarnadóttir og Björn Þorbergsson son. Drengurinn var 3.180gr og 51cm við fæðingu.
Lesa meiraMatthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum..
Lesa meiraBólusetning gegn inflúensu hefst mánudaginn 1 október n.k á heilsugæslustöð Hornafjarðar. Bólusett er virka daga frá kl 11-12. og 13.-14. til 5 október.
Lesa meiraÁ Heilbrigðisstofnunni var tekin sú ákvörðun í haust að vinna að heilsueflingarstefnu fyrir vinnustaðinn. .
Lesa meiraVið höldum áfram að birta myndir og upplýsingar um nýja Hornfirðinga.Og óskum foreldrum og syskinum til hamingju með nýja fjölskyldumeðlimi!
Ívar Örn Jónsson fæddist þann 15. maí sl. Hann var 3.565 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar Ívars Arnar eru Lena Hrönn Marteinsdóttir og Jón Birnir Jónsson.
Keyleigh Rose Dela Cruz lewandowska fæddist 15. júní sl. Foreldrar hennar eru Hergina Dela Cruz og Przemyslaw Lewandowski.
Stúlka Hafsteisdóttir fæddist 1. ágúst sl. Hún var 3.310 gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Kristín Eva Eyjólfsdóttir og Hafsteinn Oddsson.
Drengur Hafþórsson fæddist 12. ágúst sl. Hann var 3.420 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Ingibjörg Lilja Pálmadóttir og Hafþór Reynisson.
Stúlka Sigurjónsdóttir fæddist 28. ágúst sl. Hún var 3.280 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Sædís Guðmundsdóttir og Sigurjón Örn Arnarsson.
Lesa meiraÞessi myndarbörn fæddust í sumar.
Særós Kristín, fædd 2. júní. Særós var 3.990 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar dömunar eru Arnbjörg Anna Rafnsdóttir og Þorvaldur Magnússon.
Vilhelm Vigfússon fæddur 19. júlí. Hann var 4.100 gr og 53 cm við fæðingu. Foreldar Vilhelms eru Fjóla Hrafnkelsdóttir og Vigfús Ásbjörnsson.
Enok Einar Kári Bjarkason fæddur 30. ágúst. Hann var 4.520 gr og 56 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru helga Rós Sveinsdóttir og Bjarki Kárason.
Lesa meiraMiðvikudaginn 27. júní gerðu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér glaðan dag með börnum og barnabörnum þegar boðið var til grillveislu í bakgarði hjúkrunar- og sjúkradeildar. Grillaðir voru hamborgarar frá Seljavöllum með mjög svo heilsusamlegu brauði frá Jóni bakara og hollustusósu Stjána kokks. Einnig kynnti Matthildur sjúkarþjálfari drög að heilsustefnu HSSA sem að hún hefur unnið með Áslaugu Valsdóttur ljósmóður og Kristjáni Guðnasyni kokki stofnunarinnar.
Lesa meiraMánudaginn 16. apríl skelltu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér til Reykjavíkur í útskriftarferð af Fagnámskeiði 2 í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Þetta voru 30 hressar konur sem kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem tengjast þeirra störfum og gerðu sér auðvitað glaðan dag í leiðinni.
Stýrihópur Fagnámskeiðsins skipulagði ferðina í samvinnu við stjórnendur HSSA og Heimaþjónustudeildar. Sveitamennt styrkti ferðina sem gerði hópnum kleift að leigja Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til ferðarinnar og rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í Reykjavík sem kom hópnum á milli staða.
Lesa meiraHeilbrigðisstofnunni hefur borist höfðingleg gjöf frá styrktarsjóði Kiwanisumdæmisins á Islandi og Færeyjum.
Lesa meiraSíðasta vetrardag þann 18. apríl n.k. verður vetur konungur kvaddur.
Af því tilefni sláum við upp dansleik á hjúkrunardeildinni.
Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir munu leika fyrir dansi.
Aðstandendur heimilisfólks eru hvattir til að mæta og taka sporið með sínu fólki.
Dansleikurinn hefst kl. 15.30.
Heimaþjónustudeild Hornafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu/ heimilishjálp og dagvist aldraðara í Ekru.
Einnig óskast sjúkraliði í afleysingu í heimahjúkrun.
Upplýsingar um störfin gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is
HSSA óskar eftir starfsmanni við sumarafleysingar í ræstingum á hjúkrunardeil frá 16. júlí n.k. Vinnutími frá 8-14 og 3ja hver helgi.
Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is
Starfsmaður óskast til aðstoðar umsjónarmanni HSSA. Í starfinu felst m.a. garðvinna og viðhald undir leiðsögn umsjónarmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf.
Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson umsjónarmaður fasteigna HSSA í síma 861 8452 og netfang andres@hssa.is.
Lesa meira
Starfsfólk óskast í sumarstörf hjá HSSA.
Umönnun á legudeildum. Um er að ræða vaktavinnu starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði HSSA í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is
Ritarastarf og ræsting á heilsugæslu. Upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði HSSA í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is
Lesa meiraAð vanda fengum við marga góða gesti á hjúkrunar- og sjúkradeild á öskudaginn. Furðuverur og mis skelfilegar persónur komu og sungu fyrir heimilisfólk. Að launum fengu þau kleinur og djús.
Lesa meiraGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.
Lesa meiraÞann 4. janúar sl. fæddist fyrsti Hornfirðingur ársins á heimili sínu hér á Höfn. Drengurinn var 3.720 gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson. En til gamans má geta þess að Guðbjörg náði því einnig að vera fyrsti Hornfirðingur síns fæðingarárs!
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur fæddist þann 18. desember 2011. Áætlaður fæðingardagur var í byrjun janúar svo honum lá heilmikið á að koma í heiminn! Drengurinn var 3.570gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar eru Erla Rún Guðmundsdóttir og Bjarni Ingvar Bergsson.
Lesa meiraÍ kringum jólin er brugðið út af venjulegu heimilishaldi á hjúkrunardeildinni eins og á öðrum heimilum. Flest heimilisfólk getur ekki sótt viðburði utan heimilisins og kemur það sér þá vel að bein tenging er í gegnum sjónvarp við Hafnarkirkju.
Þannig geta íbúar tekið þátt í aðventukvöldi og jólatónleikum í Hafnarkirkju og messuhaldi svo eitthvað sé nefnt. Ýmsilegt er gert til að færa jólin til íbúa.
Jólasamvera var haldin 22. desember í samvinnu við góða gesti. Samkórinn og Karlakórinn Jökull hafa verið hjá okkur og börn úr Tónskóla Hornafjarðar.
Í gær 28. desember var haldið árlegt jólaball starfsmanna HSSA á deildinni var þá margt góðra gesta og kíktu þrír jólasveinar til okkar.
Lesa meiraÁ aðventunni hefur verið mikið að gera í dagvist eins og á öðrum stöðum. Eldri borgarar sem sækja dagvistina í Ekru hafa verið að vinna með mósaík, handavinnu að mála og ýmislegt fleira.
Lesa meiraNú þegar jólin eru á næsta leiti viljum við minna ykkur á að endurnýja lyf í tíma.
Einnig er vert að vekja athygli á að þeir sem hafa hækkaðan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóma ættu að gæta hófsemi í neyslu reyktra og saltaðrar matvöru.
Athugið að lokað er á heilsugæslunni á Þorláksmessu.
Vaktþjónusta í síma 8658900.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur fæddist þann 26. nóvember sl. Hann var 18 merkur og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Hulda Björk Svansdóttir og Sævar R. Guðmundsson.
Lesa meiraSkortur á D vítamíni er frekar algengur vandi hér á landi. Í mörgum frumum líkamans ( t.d. hjarta – bris –tauga – ónæmis og beinfrumum) eru viðtakar fyrir D vítamín.
Lesa meira
Í haust hafa um 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu.
Lesa meiraFullveldisdagurinn var haldinn hátíðlegur á hjúkrunardeildinni með dansleik. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku fyrir dansi við mikla ánægju heimilsfólks og gesta.
Viðburðir sem þessir létta lund og kæta enda er takmarkað hvað heimilisfólk getur sótt af viðburðum á aðventunni út í bæ. Því er mjög gaman að fá góða gesti og skemmta sér saman.
Lesa meiraFyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.
Lesa meiraHSSA hefur ásamt nú öðrum hjúkrunar- og dvalarheimilum haft frumkvæði að vinnu lyfjagæðavísa sem hafa nú verið birtir á vef Landlæknis embættisins. Sigurður Helgason læknir aðstoðar starfsmenn HSSA við þessa vinnu og færum við honum kærar þakkir fyrir það.
Lesa meiraFimmtudaginn 27. október býður heimilisfólk aðstandendum sínum í heimsókn til að gera sér glaðan dag sama. Boðið hefst kl. 15 en þá mun starfsemin og sú dægrastytting sem er í boði hjá okkur verða kynnt. Einnig verður rætt um gildi heimsókna þegar aldurinn færist yfir og færni minnkar. Spilað verður á harmónikku og sungið með aðstoð góðra gesta.
Lesa meiraTryggvi Sigurðsson frá Fagurhólsmýri í Öræfum á fyrsta Vegg vetrarins. Tryggvi er fæddur þann 6. Október árið 1931. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í Dagvist eldri borgara á Hornafirði árið 2010 og á veggnum ber að líta hluta af málverkum hans.
Lesa meiraUm sl. helgi héldu Kiwanis menn og konur, í umdæminu Ísland-Færeyjar 41. umdæmisþing hér á Höfn. Í tilefni þingsins ákvað styrktarsjóður Kiwanis að gefa nýtt heyrnarmælitæki fyrir skólahjúkrun á Hornafirði en eldra tækið var ónothæft.
Við setningu þingsins afhenti Björn Ágúst Sigurjónsson formaður styrktarsjóðsins Jónu Báru Jónsdóttur skólahjúkrunarfræðingi tækið með óskum um að það komi sér vel vegna heilsugæslu barna á Hornafirði.
Lesa meiraÍ lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV-bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum.
Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk.
Eldri stúlkur eiga kost á að fá bóluefnið gegn lyfseðli og með því að greiða fyrir það.
Lesa meiraFundurinn er liður í hugmyndavinnu við stefnumótun HSSA og bæjarstjórnar, einnig fyrstu skref umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ræða heildarskipulag svæðisins umhverfis HSSA og Ekru.
Lesa meiraÞann 23. ágúst sl. fæddist þessi myndarlegi drengur á HSSA. Hann var 4,100gr og 55 cm. Foreldarar hans eru Matthildur Ásmundardóttir og Hjálmar Sigurðsson. Starfsfólk HSSA óskar þeim Möttu, Hjálmari, Tómasi Orra og Elínu Ásu til hamingju með drenginn.
Lesa meiraSá hópur fólks sem flokkast sem aldraðir er mjög misleitur og jafnvel fjölbreyttari en aðrir aldurshópar, enda samansettur af mótuðum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Hver einstaklingur hefur lifað sínu lífi og mótast af því. Hækkandi aldur fer mis mjúklega með einstaklinginn og miklar breytingar eiga sér stað. Breytingar eins og líkamlegir eða andlegir sjúkdómar, missir og sorg eða búferlaflutningar þar sem fólk flytur í minna eigið húsnæði eða það flytur úr sínu húsnæði og inn á hjúkrunar eða dvalarheimili.
Lesa meiraÞann 11. júní sl. útskrifuðust þær Halla Sigurðardóttir, Íris Gísladóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir og Valgerður Hanna Úlfarsdóttir með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Þær stöllur hafa stundað nám sitt í fjarnámi héðan frá Hornafirði síðustu fjögur árin.
Við hjá HSSA erum stolt og ánægð með að hafa fengið þær í vinnu sem hjúkrunarfræðinga við stofnunina en Íris staldraði stutt við í þetta sinn. Hún býr nú í Noregi með fjölskyldu sinni og vinnur við hjúkrun þar.
Lesa meiraStarfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild frá og með 1. sept n.k. Um er að ræða vaktavinnu aðra hverja helgi. Tilvalið með námi eða annarri vinnu. Laun eru samkvæmt samningi Sveitarfélagsins við AFL starfsgreinafélag. Starfshlutfall 20%.
Lesa meiraÞessi myndarlega stúlka, Dominyka fæddist þann 28. júní sl. Hún var 2.522 gr og 48 cm. Foreldrar hennar eru Vita Mogylaite og Marius Kaminkas.
Lesa meiraEinar Þ. Samúelsson hjólar nú kringum landið undir slagorðinu "Á sumu má sigrast". Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla svo langa vegalengd.
Á þessari slóð http://asumumasigrast.is/dagbok má fylgjast með dagbók Einars sem núna er staddur á Hornafirði. Á sumu má sigrast er áheitasöfnun fyrir aðstandendur Bjargar Guðmundsdóttur og bróður hennar Kristinn Guðmundssonar.
Lesa meiraStarfsfólk HSSA tekur þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Þessar skemmtilegu myndir voru teknar á plani við starfsmannainngang á hjúkrunardeild nú fyrir helgi. Hjólagrindin full en bílaplanið svo til autt!
Lesa meiraHjúkrunar- og sjúkradeild HSSA hafa borist góðar gjafir nú síðustu mánuðina og viljum við koma kærum þökkum á framfæri fyrir hlýhug í garð deildarinnar og stofnunarinnar í heild.
Lesa meiraHeilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn.
Lesa meiraHeilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn. Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf stýrir verkefninu ásamt stjórn stofnunarinnar. Leitast verður við að móta áherslur fyrir HSSA sem nýtast við framtíðaruppbyggingu og alla starfsemi. Eitt af markmiðum verkefnisins er að leita eftir viðhorfum og áherslum íbúa sveitarfélagsins í þessum málaflokki.
Lesa meiraÞessi myndarlega stúlka fæddist þann 13. apríl sl. Hún var 3.030gr og 48 cm við fæðingu. Foreldar dömunnar eru Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir og Hólmar Unnsteinsson.
Lesa meiraSamráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands fundaði í gær 14. apríl með rekstararaðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Fundurinn var haldinn á Hvolsvelli og voru Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri sem situr í samráðsnefndinni og Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði á fundinum.
Megin dagskrá fundarins var um vistunarmat og lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Einnig var rætt um hugsanlega samstarfsverkefni milli heimila og samskipti við ríkisvaldið.
Þá spurðist framkvæmdastjóri HSSA um aðbúnað á hjúkrunarheimilum í umdæminu með tilliti til einbýla og fjölbýla. Þar kom fram að hvergi er hlutfall einbýla jafn lágt og á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en þau eru tvö af sextán herbergjum hjá okkur.
Lesa meiraNú erum við farin að huga að sumrinu og ráðningu afleysingafólks.
Þau störf sem eru í boði er umönnun í vaktavinnu á bæði hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Vaktavinna í eldhúsi og í ræstingu. Félagsstarf með öldruðum á hjúkrunar- og sjúkradeild og í dagvist. Móttökuritari á heilsugæslu og starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Franz Reynir fæddist þann 16. mars sl. Hann var 3.730gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Elisabeth Kruger og Rögnvaldur Reynisson.
Lesa meiraÍ dag 29. mars skrifuðu Ásgeir Gunnarsson formaður Stjórnar HSSA og Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf ehf undir samning um stefnumótunarvinnu fyrir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
Lesa meiraÞað var mikið fjör og gaman á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA sl. fimmtudag. Þá var haldið árlegt þorrablót heimilisfólks. Að sjálfsögðu var boðið uppá þorramat, skemmtidagskrá og svo dansað á meðan þróttur leyfði.
Góðir gestir tóku þátt í skemmtidagskránni. Stakir jakar sungu undir stjórn Guðlaugar Hestnes, Guðbjartur Össurarson flutti gamanmál,
Lesa meiraÍ mars nk. verður legháls- og brjóstakrabbameinsleit á vegum Krabbameinsfélags Íslands á Hornafirði. Þær konur sem eiga að koma í skoðun verða látnar vita með bréfi frá félaginu.
Lesa meiraÞann 5. janúar sl. afhenti stjórn Kvennfélagsins Óskar í Suðursveit Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur framkvæmdastjóra HSSA 200.000kr peningagjöf til hjúkrunar- og sjúkradeildar. Féinu verður varið í endurnýjun á hljómflutningstækjum deildarinnar sem komnar eru til ára sinna. Kvennfélagskonum í Suðursveit þökkum við kærlega fyrir góða gjöf.
Sú hefð hefur skapast á hjúkrunar- og sjúkradeild að hafa jólasamveru á aðventunni þar sem heimilisfólk tekur á móti góðum gestum. Í gær 21. desember var jólasamvera ársins. Sóknarpresturinn okkar, séra Sigurður ásamt þeim heiðurshjónum Kristínu Gísladóttur og Hreini Eiríkssyni lásu upp efni tengt jólunum. Samkór Hornafjarðar söng undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Lesa meiraOLE 2 verkefnið sem HSSA tekur þátt í ásamt Öldrunarheimilum Akureyrar og félagsþjónustunni í Hafnarfirði er tilnefnt til evrópsku RegioStars verðlaunanna 2011.
Lesa meiraAðventan er tími gleði, ljósa og tónlistar á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA. Það sem greinir frá hinum almenna borgara í samfélaginu er að tónlistarfólkið og gleðigjafarnir sæka heimilisfólkið heim þar sem flestir hér hafa ekki heilsu til að sækja slíka viðburði í bænum.
Þessar heimsóknir eru ómetanlegar og yndislegar. Heimilisfólk hefur fengið leikskólabörn frá Krakkakot i í heimsókn, barnakóra, tónlistarnemendur úr Tónskólanum, Gleðigjafana kór eldri borgara og Staka Jaka félaga úr Karlakórnum Jökli.
Lesa meiraNæstkomandi miðvikudag 1. desember 2010 verður tekið í notkun nýtt IP-símkerfi hjá HSSA. Það hefur í för með sér ný símanúmer. Aðalnúmer stofnunarinnar verður 470 8600 og faxnúmer 470 8601. Fyrst um sinn verður eldra númeri svarað af símsvara sem gefur upp nýtt númer. Breyting verður á öllum númerum stofnunarinnar.
Lesa meiraFimmtudaginn 18. nóvember sl. heimsóttu Árni Johnsen og Sigurður Ingi Jóhannsson þingmenn suðurkjördæmis heimilisfólk á dvalardeild. Þingmennirnir voru staddir á Hornafirði vegna íbúafundar sem haldinn var þá um kvöldið.
Lesa meiraÞessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Sóley Eir fæddist þann 1. nóvember sl.
Lesa meiraUm síðustu mánaðarmót tók formaður Hornafjarðardeildar RKÍ við prjónalesi fyrir hönd deildarinnar. Þá var kassinn góði sem afrakstri föstudagsvinnu prjónakvennanna er safnað í orðinn fullur og vel það.
Lesa meiraStarfsmannafundur var haldinn á HSSA í dag þar sem farið var yfir stöðu stofnunarinnar út frá fjárlögum fyrir árið 2011 sem birt voru þann 1. okt sl. Þetta er annar fundurinn með starfsmönnum og eru þeir haldnir til að halda upplýsingaflæði opnu milli starfsmanna og stjórnenda stofnunarinnar.
Lesa meiraÍ dag kom seinni helmingurinn af 4. bekk í heimsókn í dagvist eldri borgara. Þau fengu að prófa gamla prjónavél og að spóla.
Lesa meiraÍ gær, þann 30. september skrifuðu stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og Málefna fatlaðra undir samstarfssamning við framkvæmdastjóra Sveitamenntar, sem er fræðslusjóður almennra starfsmanna er starfa hjá sveitarfélögum og hafa félagsaðild að AFLi starfsgreinafélagi. Samningurinn felur í sér að Sveitamennt útvegar áðurnefndum málaflokkum ráðgjafa að láni í ákveðinn tíma.
Lesa meiraHjúkrunar- og sjúkradeild HSSA er í samstarfi við leikskólann Krakkakot í OLE2 verkefnavinnu. Elstu börnin á Krakkakoti koma mánaðarlega í heimsókn á hjúkrunar- og sjúkradeild til samstarfs við íbúa. Í gær 29. september ræddu þau um haustið og sungu lög tengd árstíðinni.
Lesa meiraÞað var handagangur í öskjunni á mánudaginn þegar hluti nemenda úr 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar heimsótti dagvist aldraðra. Heimsókn þeirra er hluti af verkefninu OLE2 sem HSSA tekur þátt í á vegum Norðurslóða áætluarinnar. Tilgangur verkefnisins er að leiða saman unga og aldna í hagnýtum verkefnum.
Lesa meiraÁ hverju hausti er boðið uppá inflúensubólusetningu á heilsugæslunni. Landlæknir gefur út hvaða bóluefni er notað eftir því hvaða flesnsustofn er líklegastur til að herja á landann hverju sinni.
Lesa meiraÞessi myndarlega stúlka fæddist þann 5. septembar sl.Hún var 2350gr og 49 cm við fæðingu.
Lesa meiraHér kemur mánaðarlegur fréttapistill dagvistarinnar. :)
Nú hefur dagvistin hefur nú verið lengd um klukkutíma þ.e. til kl 15. Þá höfum við meiri tíma til að fara eitthvert eftir hádegi. Síðastliðinn þriðjudag fórum við í Steinasafnið Huldustein, hjá Ásbirni og Viggu.
Lesa meiraFöstudaginn 1. júlí sl. var árlegur grilldagur dagvistar HSSA. Þrjátíu manns mættu í grillið og var mikil gleði.
Lesa meiraÞann 17. júní sl. afhenti Þorsteinn Sigurbergsson HSSA tuttugu eintök af Nýja testamnentinu fyrir hönd Gídeonfélagsins á Íslandi. Halla Sigurðardóttir hjúkrunarnemi
Lesa meiraMargir góðir gestir hafa lagt leið sína á hjúkrunar- og sjúkradeild undanfarið til að stytta heimilisfólki stundirnar. Börn frá Krakkakoti koma reglulega og spjalla við og syngja fyrir fólkið okkar. Einnig hafa barnakórar komið og skemmt, "Gleðigjafar" kór eldri borgara söng sl. sunnudag í stofunni hjá okkur.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur Ívar Goði fæddist á HSSA þann 16. apríl sl. Hann var 4.020gr við fæðingu og 53,5 cm.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur fæddist á LSH í Reykjavík þann 15. apríl sl. Hann var 4.445 gr við fæðingu.
Lesa meiraSíðasta vetrardag var slegið upp balli á hjúkrunardeildinni. Heimilisfólk bauð aðstandendum og vinum í kaffi og köku, síðan var dansað undir harmonikkuleik Kalla á Móhól.
Lesa meiraUm er að ræða störf í aðhlynningu bæði á dvalardeild og hjúkrunar- og sjúkradeild. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur Arnar Ingi Sigfússon fæddist þann 6. apríl s.l. á Landspítalanum í Reykjavík.
Lesa meiraÞessi myndarlegi drengur fæddist heima hjá sér í Garðsbrúninni 3 april s.l. Hann var 3760 gr og foreldrar hans eru Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson.
Lesa meiraSú hefð er komin á í dagvist að prjónað er til góðs á föstudögum. Mikill dugnaður hefur skilað sér í prjónavöru sem Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður Hornafjarðardeildar RKÍ tók við í dag 9. apríl. Það sem afhent var í dag eru 82 sokkar, 39 vettlingar, 19 húfur, 1 peysa, 1 trefill og 4 þvottapokar.
Lesa meiraSamkór Hornafjarðar skemmti heimilisfólki með ljúfum söng og sögum þeim tengdum sl. sunnudag 21. mars. Heimilisfólk og starfsmenn kunnu vel að meta þessa heimsókn og þakka kærlega fyrir sig.
Lesa meiraSíðustu daga hafa skjólstæðingar og starfsmenn dagvistar HSSA verið á ferðinni að kynna sér verk hornfirskra listamanna. Farið var á sýningu Guðrúnar Ingólfsdóttur "Ljóðaljós" í Kartöfluhúsinu og Árnína Guðjónsdóttir heimsótt á vinnustofu sína.
Lesa meiraStarfsfólk óskast í sumarafleysingar hjá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Um er að ræða umönnun bæði á hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild, í eldhús og ræstingar. Unnið er í vaktarvinnu samkvæmt vaktarúllu.
Lesa meiraÍ dag miðvikudaginn 10 mars, var undirritaður þjónustusamningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA) á hjúkrunardeild HSSA. Samningurinn felur í sér samstarf um læknisþjónustu, símsvörun og fleiri þætti.
Lesa meiraHeilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta .
Lesa meiraHeilbrigðisstofnun Suðausturlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hafa gert eftirfarandi samkomulag um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu sem HSSA veitir nemendum FAS.
Lesa meiraVið viljum vekja athygli á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands
Lesa meiraÞorrablót HSSA var haldið 11 febrúar síðastliðinn, fyrir þá sem þiggja þjónustu heimahjúkrunar, heimaþjónustu og dagvistar. Um 70 manns mættu á blótið sem var haldið í Ekrusalnum.
Lesa meiraÞann 11. febrúar sl. voru haldin þorrablót á vegum HSSA bæði á hjúkrunardeild og í dagvist. Á hjúkrunardeildinni hófst undirbúningurinn með hárlagningu og rúllum hjá konunum eins og vera ber. Í hádeginu var boðið uppá dýrindis þorramat sem starfsfólk mötuneytisins reiddi fram af mikilli snilld.Tók heimilisfólk þá vel til matar síns.
Lesa meiraÞessi ungi myndalegi drengur Ari Reynisson er fyrsti Hornfirðingur ársins, fæddur 9. janúar sl á Norðfirði.
Lesa meiraFyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.
Lesa meiraÍ gær fimmtudaginn 21. janúar varð Ásta Oddbergsdóttir fyrrverandi húsmóðir á Ási í Nesjum 95 ára. Af því tilefni buðu hún og fjölskylda hennar í kaffi á hjúkrunardeildinni á afmælisdaginn.
Lesa meiraNú hefur sú nýbreytin verið tekin upp að “prjóna til góðs” á föstudögum í dagvist. Þá er setið saman prjónað og spjallað, afraksturinn fer í hjálparstarf Rauða krossins.
Lesa meiraFyrir hönd heimilisfólks og starfsfólks hjúkrunar- og sjúkradeildar HSSA viljum við þakka þeim fjölmörgu einstaklingum og hópum sem komu til okkar á nýliðnu ári.
Lesa meiraHið árlega jólaball HSSA var haldið á hjúkrunardeildinni þann 27. desember s.l. Þar skemmta starfsmenn, börn þeirra og barnabörn sér með heimilisfólki sem dansaði og söng með unga fólkinu.
Lesa meiraÁ morgun fimmtudaginn 7. janúar koma 100 skammtar af bóluefni við inflúensu A (H1N1). Eru það færri skammtar en reiknað var með. Ljóst er að ekki fá allir þeir sem komnir voru á biðlista fyrir jól bólusetningu í þetta sinn.
Lesa meiraHeimasíða HSSA hssa.is er nú komin í loftið. Á síðunni má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um Heilbrigðisstofnunina og tilkynningar og fréttir frá heilsugæslunni.
Lesa meiraMánudaginn 21. desember sl. gerði heimilisfólk sér glaðan dag og fékk góða gesti í heimsókn.
Séra Sigurður var veislustjóri og tók líka lagið fyrir viðstadda. Hreinn Eiríksson las gamla jólahugvekju, Sigurður Hannesson var einnig með upplestur og Samkórinn söng undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Lesa meiraBúið er að bólusetja rúmlega 800 einstaklinga á Hornafirði nú fyrir jólin. Samkvæmt Landlæknisembættinu er von á nýjum skömmtum af bóluefni í kringum 6. janúar nk, enn er óljóst hve marga skammta við fáum.
Enn er fólk á biðlista sem kominn var um miðjan desember og þeir einstaklingar sitja fyrir í bólusetningu þegar næsta sending af bóluefni kemur .
Opnað verður aftur fyrir pantanir í fyrstu viku janúar.
Lesa meira
Fæðingardeild HSSA verður lokuð frá og með 3. júlí til 10. ágúst vegna sumarleyfa.
Lesa meiraÁ síðasta bæjarstjórnarfundi var gerð bókun þar sem fram kemur að bæjarráð fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð.
Lesa meira
Starfsfólk HSSA tekur þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Þessar skemmtilegu myndir voru teknar á plani við starfsmannainngang á hjúkrunardeild nú fyrir helgi. Hjólagrindin full en bílaplanið svo til autt!
Lesa meira
Hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA hafa borist góðar gjafir nú síðustu mánuðina og viljum við koma kærum þökkum á framfæri fyrir hlýhug í garð deildarinnar og stofnunarinnar í heild.
Lesa meira