Fréttir HSSA
Bólusetningar

HPV-bólusetning gegn leghálskrabbameini.

Í lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV-bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum.

Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk.

Eldri stúlkur eiga kost á að fá bóluefnið gegn lyfseðli og með því að greiða fyrir það.

HPV eða Human Papilloma Virus er algeng veira meðal ungs fólks og smitast hún auðveldlega við kynmök. Um 80% þeirra sem stunda kynmök smitast af veirunni einhvern tímann á ævinni og geta sumar tegundir hennar valdið frumubreytingum í leghálsi. Í flestum tilfellum hverfur veiran úr líkamanum af sjálfu sér en ef sýkingar eru viðvarandi í leghálsinum geta þær með tímanum orsakað leghálskrabbamein.

HPV-bóluefnið sem bólusett er með inniheldur mótefni gegn tveimur algengustu tegundum veirunnar sem valda leghálskrabbameini. Með bólusetningu fæst um 70% vörn gegn sjúkdómnum. Þar sem bólusetningin veitir ekki fulla vörn er nauðsynlegt að fara reglulega í krabbameinsleit síðar á ævinni.

 Til að bóluefnið virki sem best þarf að bólusetja þrisvar sinnum á 6-12 mánaða tímabili og er síðasta sprautan jafnmikilvæg og sú fyrsta.

Frekari upplýsingar um (HPV-sjúkdóma) HPV-bólusetningar, leghálskrabbamein og kynfæravörtur má finna á vef landlæknisembættisins http://landlaeknir.is

Stefnt er að því að hefja bólusetningu stúlkna fæddum 1998 og 1999 á Hornafirði í seinni hluta september og fer hún fram í skólanum nema eftir öðru sé óskað.

Fréttir HSSA
Bólusetningar
Bólusetningar

13.09.2011

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica