Aðventa á HSSA!
Margir góðir gestir heiðra heimilisfólk á HSSA á aðventunni. Í gær komu ættingjar og vinir í jólasamveru. Af því tilefni var Ásbirni Þórarinssyni hárskera og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur snyrtifræðingi þakkað fyrir áralanga þjónustu við heimilisfólk HSSA.
En Ásbjörn hefur komið reglulega og klippt sína kúnna á deildinni frá því að hann hóf störf fyrir um fjörutíu árum.
Einnig færði Elísabet Einarsdóttir sjúkraliði stofnuninni peningagjöf að upphæð 150.000.- frá Hirðingjunum, en það er hópur kvenna sem hefur um 2ja mánaða skeið selt notaða hluti fyrir lítið þar sem áður var Verslun Steingríms.
Undanfarið höfum við fengið heimsóknir frá krökkum á Krakkakoti, úr Tónskóla Hornafjarðar og fimmtudaginn 13. desember fengum við Regínu Ósk og félaga hennar til okkar með tónlistarflutning.
Þriðjudaginn 18. desember bauð Laufey Guðmundsdóttir heimilisfólki á rúntinn um bæinn að skoða jólaljósin og vakti það mikla lukku. Sumir fóru meira að segja tvisvar.
Heimilisfólk og starfsfólk þakkar kærlega fyrir góðar heimsóknir og hlýjan hug velunnara sinna.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd