Frá HSSA varðandi inflúensu og aðrar umgangspestir
Árlega koma upp faraldrar ýmissa niðurgangspesta og inflúensu sem ganga milli manna. Heilbrigðir einstaklingar verða misjafnlega mikið veikir og jafna sig oftast fljótlega en geta verið smitandi í nokkra daga.
Mikilvægt er að fólk taki það rólega á meðan veikindin ganga yfir, hugi að því að drekka vel og sé meðvitað um gildi handþvottar og almenns hreinlætis.
Á legudeildum liggja skjólstæðingar sem geta verið mjög viðkvæmir fyrir þessum sýkingum og verða því oft alvarlega veikir ef þeir smitast. Því viljum við beina því til aðstandenda að ef þú hefur verið með niðurgang, uppköst eða einkenni eins og beinverki, höfuðverk eða hita undanfarna 2 sólarhringa biðjum við þig um að fresta heimsókninni.
Einnig viljum við benda á mikilvægi handhreinsunar sem forvörn við dreifingu sýkinga. Í andyri á heilsugæslu og við inngang á hjúkrunar- og sjúkradeild eru standar með handspritti sem við hvetjum fólk til að nýta sér við komu og brottför.
Vakin skal athygli á því að ennþá getur fólk látið bólusetja sig gegn inflúensu á heilsugæslunni. Það er ekki endilega of seint þótt inflúensan sé komin.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd