Húfur handa nýfæddum börnum
Kvenfélagskonur um land allt hafa ákveðið að prjóna húfur handa öllum börnum sem fæðast árið 2010. Þetta er gert í tilefni þess að árið 2010 eru 80 ár eru liðin frá því að kvenfélög landsins mynduðu með sér samband, Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) og vilja konur í kvenfélögunum með þessu senda hlýja kveðju til nýrra þjóðfélagsþegna og foreldra þeirra. KÍ heldur utanum framkvæmd verkefnisins. Fyrstu húfurnar voru afhentar hér á HSSA 30. desember 2009, en áætlað er að um það bil 20 börn fæðist á þessu ári í Austur- Skaftafellssýslu, eins og síðastliðin ár.
Áætlað er að um 5000 börn muni fæðast á árinu og fara fæðingar fram á tíu stöðum á landinu; á Akranesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Neskaupsstað, Höfn, Selfossi, Vestmannaeyjum, Keflavík og Reykjavík auk heimafæðinga. Ljósmæður, sem annast fæðingar munu afhenda foreldrum húfurnar. Húfurnar eru prjónaðar úr Kambgarni frá Ístex, sem styrkir verkefnið með kostun á prentun heillaóskakorts sem fylgir hverri húfu og er fært inn á það nafn konunnar sem prjónaði húfuna og hvaða kvenfélagi hún tilheyrir. Margir, sem ekki eru í kvenfélögum, hafa sýnt áhuga á að fá að prjóna húfur og fagna kvenfélagskonur því og hvetja viðkomandi til að hafa samband við kvenfélög á hverjum stað eða við Kvenfélagasamband Íslands.
Hugmyndin að þessu verkefni er að nýta afmælisárið til að vekja athygli á því mikla og hljóðláta starfi sem kvenfélagskonur vinna vítt og breytt um landið til heilla fyrir land og þjóð.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd