Þorrablót HSSA.
Þann 11. febrúar sl. voru haldin þorrablót á vegum HSSA bæði á hjúkrunardeild og í dagvist.
Þann 11. febrúar sl. voru haldin þorrablót á vegum HSSA bæði á hjúkrunardeild og í dagvist. Á hjúkrunardeildinni hófst undirbúningurinn með hárlagningu og rúllum hjá konunum eins og vera ber. Í hádeginu var boðið uppá dýrindis þorramat sem starfsfólk mötuneytisins reiddi fram af mikilli snilld.Tók heimilisfólk þá vel til matar síns. Formleg þorrablóts dagskrá var svo í eftirmiðdaginn þar sem séra Sigurður var veislustjóri. Guðbjartur Össurarson flutti annál í bundnu máli, Kristín Gísladóttir og Hreinn Eiríksson fóru með gamanmál. Örn Arnarson og Haukur Þorvalds hituðu svo upp með gömlum textum eftir Aðalbjörn Úlfarsson heitinn fyrir hljómsveitina Hilmar og fulgana sem léku undir dansi við mikla gleði viðstaddra.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd