Fréttir HSSA
Dagvist HSSA

Styrkur til samþættingar heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.

Veittir voru styrkir til verkefnis um heilsueflandi heimsóknir til aldraðra í Hveragerði, samstarfsverkefnis heilbrigðis- og félagsþjónustu á Héraði um áfengisvarnir, mat á árangri samþættrar heimahjúkrunar og félagsþjónustu í Kópavogi, úttektar á fagráði um heilsuvernd á Akureyri, þróunar- og reynsluverkefnis um samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu í Skagafirði, verkefnis um samþættingu heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði, um innleiðingu samþættrar og notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar í heimahjúkrun í Norðurþingi og loks verkefnis um innleiðingu matskerfisins RAI-HC í heimaþjónustu og árangursmælinga við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Styrkurinn sem kom í hlut HSSA og málefna fatlaðra er 200.000 krónur. Hann mun nýtast mjög vel í þá vinnu sem er í gangi við samþættingu heimaþjónustunnar.

Fréttir HSSA
Dagvist HSSA
Dagvist HSSA

10.02.2012

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica