Ungbarnavernd
Tímapantanir í skoðanir alla virka daga frá kl 08.00-16.00 í síma 470 8600.
Markmið ungbarnaverndar er að fylgjast með vexti og þroska barnsins,sjá um ónæmisaðgerðir og veita fræðslu og ráðgjöf eftir þörfum.
Fyrstu 4 vikurnar eftir fæðinguna fer ljósmóðir stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar en eftir það fara skoðanir fram á heilsugæslustöðinni.
Fyrsta læknisskoðun er við 6 vikna aldur. Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi/ljósmóður og heimilislækni til skólaaldurs.
Ráðgjöf af ýmsu tagi m.a. um brjóstagjöf, mataræði og slysavarnir er mikilvægur þáttur ungbarnaverndarinnar og hefðbundnar bólusetningar eru framkvæmdar í skoðunum.
Áslaug Valsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir sér um ungbarnavernd til 18 mánaða aldurs og Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur sér um 2 1/2 og 4 ára skoðun.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


