Á HSSA er gott og öflugt félagsstarf
Fastir liðir eru t.d. upplestur og söngur haldið er þorrablót, jólasamvera og ýmsar aðrar skemmtanir.
Á HSSA, hjúkrunar- og sjúkradeild starfar Þorbjörg Helgadóttir félagsliði við félagsstarf.
Hlutverk slíkrar þjónustu á hjúkrunar- og sjúkradeild er að örva félagslegt samneyti, virkni og innihaldsríkt líf hjá heimilisfólki. Tómstundaiðja og samvera er mikilvægur þáttur fyrir heimilisfólk og mikil örvun felst í umhverfisbreytingu.
Heimilisfólk á þess einnig kost að sækja virknistarf út af heimiliseiningunni í dagvist í Ekru.
Fastir liðir á deildinni eru t.d. upplestur og söngur haldið er þorrablót, jólasamvera og ýmsar aðrar skemmtanir.
Góðir gestir sækja deildina heim í viku hverri. t.d. séra. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur sem auk þess að sinna sálgæslu og trúarlegu starfi, les bókmenntir fyrir heimilisfólk. Nemendur úr Tónskóla Hornafjarðar, leikskólunum Krakkakoti og Lönguhólum, Sigurður Hannesson skjalavörður kemur reglulega yfir veturinn og les uppúr gömlum skjölum.
Auk þess höfum við notið heimsókna hinna ýmsu listamanna sem heimsækja okkur reglulega eða koma við á leið um bæinn.
Markmið félagsstarfs er að:
· auka virkni heimilismanna og koma í veg fyrir einangrun
· örva félagslegt samneyti og létta lund.
Á dvalardeild sinnir starfsfólk deildarinnar félagslega þættinum með upplestri, spilum o.fl. og heimilisfólk sækir einnig félagsstarf í Dagdvölina í Ekru.
HSSA á stórt og gott bókasafn sem nýtist heimilisfólki og starfsfólki.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


