Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð 2013

Humarhátíð 2013 verður 28.-30. júní, undirbúningur fyrir hátíðna er nú þegar hafinn. Vonir standa til að brottfluttir og íbúar Hornafjarðar eigi eftir að skemmta sér og sínum saman þessa helgi. Lesa meira
 

Hleinin færir sig um set

Þeir sem héldu að eftir breytingarnar á Pakkhúsinu myndi Hleinina vanta á Humarhátíð geta tekið gleði sína á ný. Lesa meira
 

Mikil stemning fyrir Sindraballinu með Á móti sól

Að sögn Valda Einars þá er að byggjast upp mikil stemning fyrir ballinu með Á móti Sól sem fer fram í Íþróttahúsinu á laugardagskvöld frá miðnætti til fjögur. Lesa meira
 

Það er komið að því - Þjóðakvöld Kvennakórsins fer fram á morgun fimmtudag

Árlegt Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður haldið hátíðlegt í Mánagarði fimmtudaginn 21. júní. Nú í ár verður athyglinni beint að Serbíu, Króatíu og Bosníu

Lesa meira
 

Markaðir á Humarhátíð

Nú styttist í Humarhátíð á Höfn  og er aðeins 24 dagar þar til hátíðin verður sett. Fjölbreytt dagskrá verður á hátíðinni og þar má nefna grímubúningakepni í skrúðgöngu, kassabílarallí, Töfrafjör: námskeið og sýning,  skemmtidagskrá á sviði

Lesa meira
 

Humarhátíð 2012

Nú líður að 20. bæjarhátíð Hornfirðinga, Humarhátíð, en hún verður haldin helgina 22-24 júní 2012. Undanfarin ár hefur hátíðin verið haldin fyrstu helgina í júlí en á opnum fundi í vetur kom skýrt fram að Hornfirðingar vilja sjá breytingar

Lesa meira
 

Auglýst starf verkefnastjóra fyrir Humarhátíð

Vegna tæknilegra vandamála þá hefur verið ákveðið að framlengja umsóknafrest vegna umsóknar um stöðu verkefnastjóra fyrir Humarhátíð 2012, til 13. mars

Lesa meira
 

Leitað að verkefnastjóra fyrir Humarhátíð 2012

Humarhátíðarnefnd auglýsir lausa stöðu formanns/verkefnastjóra Humarhátíðarnefndar 2012. Gert er ráð fyrir sveigjanlegum vinnutíma og laun eru eftir samkomulagi. Lesa meira
 

Humarhátíð 2011 lokið

Humarhátíð á Hornafirði lauk á sunnudag eftir eindæma blauta helgi. Varla hefur lekið dropi úr lofti frá því í lok maí en um leið og Humarhátíð hófst af krafti þá dembdist niður rigningin og hætti ekki fyrr en seint á sunnudegi.

Lesa meira
 

Hátíðardagskrá færð inní íþróttahús

Vegna mikillar rigningar og bleytu hefur verið ákveðið að færa dagskrá á hátíðarsviði inní íþróttahús Hafnar.

Lesa meira
 

Humarhátíð gegnur vel þrátt fyrir bleytu

Humarhátíð á Hornafirði var sett formlega á föstudagskvöldinu á sviðinu við hátíðarsvæðið eftir skrúðgöngu frá bensínstöð N1 við Vesturbraut. Lúðrasveit Hornafjarðar leiddi gönguna, en ágætis þátttaka var í henni þrátt fyrir rigningu.

Lesa meira
 

Arfleifð á Humarhátíð

Bekkjarsysturnar Gunnhildur Stefánsdóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir lærðu báðar að prjóna og sauma í grunnskólanum á Hornafirði. Lesa meira
 

Lag Humarhátíðar árið 2011

Lag Humarhátíðar í ár er frægast í flutningi hljómsveitarinnar Aerosmith undir nafninu Dude looks like a lady, en eftir að það hefur verið beinþýtt yfir á „hornfirsku“, ef svo má að orði komast, þá heitir það „Ég fer á Humarhátíð“,

Lesa meira
 

Valdimar

Hljómsveitin Valdimar hefur verið að gera það gott upp á síðkastið og sendi fyrir skömmu út sína fyrstu plötu, Undraland

Lesa meira
 

Stúdíósýning Hlyns Pálmasonar á Graðaloftinu

Hlynur Pálmason verður með sýninu á Graðaloftinu eins og undanfarnar Humarhátíðir og nefnist hún einfaldlega Graðaloftið

Lesa meira
 

Gingó með listmuni til sölu í Miklagarði á Humarhátíð

Vinnustofa Gingó í Miklagarði opnar á föstudagskvöldinu klukkan 20:00 á Humarhátíð.

Lesa meira
 

Uppistandararnir Innrásarvíkingarnir á Humarhátíð

Innrásarvíkingarnir verða með uppistand í Sindrabæ klukkan 16:00 á laugardeginum á Humarhátíð. Þeir félagar eru að fara með sýninguna sína um landið í sumar.

Lesa meira
 

Ferðafélag Austur - Skaftafellssýslu

Ferðafélag Austur - Skaftfellinga er með mjög metnaðarfulla dagskrá í Humarhátíðarvikunni og býður upp á fjölbreyttar gönguferðir um nágrenni Hornafjarðar dagana 26. til 30. júní. Allar göngurnar eru kenndar við fisk á einn eða annan hátt.

Lesa meira
 

Tolli opnar sýningu á verkum sínum í Kartöfluhúsinu

Sýning á verkum Tolla opnar 30. júní í Kartöfluhúsinu. Tolli kom fram á sjónarsviðið sem einn af upphafsmönnum nýja málverksins í byrjun níunda áratugarins.

Lesa meira
 

Hvernig á að spila Hornafjarðarmanna?

Hvernig á að spila Hornafjarðarmanna? Hornafjarðarmanni hefur verið einkennismerki Humarhátíðar í gegnum árin og hefur verið mjög vinsæll. Spilið er eitt afbrigði mannaspils og sagt er að séra Eiríkur Helgason í Bjarnanesi sé höfundur af því upprunalega.

Lesa meira
 

Kúadellulottó

Kúadellulóttó hvað er nú það Einn af föstu liðum á Humarhátíðinn hefur verið Kúadellulóttó. En hvað er kúadellulóttó?

Lesa meira
 

HUMARHÁTÍÐ SUMARIÐ 2011

Humarhátíð á Hornafirði verður fyrstu helgina í júlí að vanda. Hátíðin verður með nokkuð hefðbundnu sniði en nýjungarnar í ár verða verkefnið Ekki lúra of lengi á vegum Ferðafélags Austur - Skaftafellssýslu en það stendur fyrir fjölda skemmtilegra ferða vikuna fyrir Humarhátíð.

Lesa meira
 

Humarhátíð 2010 lokið

Þá er Humarhátíð í ár lokið og gekk hún ljómandi vel sé tekið mið af veðurfarinu sem við höfðum því miður enga stjórn á. Dagskráin riðlaðist lítillega vegna veðurs en hún var flutt inn í íþróttahúsið á laugardeginum.

Lesa meira
 

Pillaðu þig á Humarhátíð

Snillingarnir í Parket hafa nú sett saman Humarhátíðarlag fyrir hátíðina í ár. Hér er á ferðinni grípandi rokk og ról að hætti þeirra Parket sveina. Það var Hafþór Smári Imsland sem að tók upp lagið fyrir sveitina og hljóðblandaðiAllir aðdáendur Humarhátíðar og Parkets eru hvattir til að hlusta á lagið og um að gera að læra textann utan að fyrir kvöldið.

Lesa meira
 

Big Band tónleikar í Nýheimum

Big band tónleikar verða í Nýheimum á laugardag á Humarhátíð klukkan 15:00. Í hljómsveitinni eru nemendur og kennarar Tónskóla Austur - Skaftafellssýslu, ásamt fyrrverandi nemendurm skólans.

Lesa meira
 

Lolla verður kynnir á Humarhátíð 2010

Ólafía Hrönn Jónsdóttir, betur þekkt sem Lolla verður kynnir á Humarhátíð á Höfn í ár. Lolla er Hornfirðingum góðkunn þar sem hún ólst upp á Hornafirði ásamt systrum sínum, sem enn eru búsettar hér.

Lesa meira
 

Var það Gangári?

Gangárinn er náungi nokkur sem hefur verið uppi frá því fyrstu menn muna. Hann man allt sem gerst hefur, þekkir hvern krók og kima hvert sem litið er til sjávar eða sveita.

Lesa meira
 

Vox Fox með tónleika í Hafnarkirkju á laugardaginn

Raddbandið VoxFox verður með tónleika á Humarhátíð næstkomandi laugardag kl. 17:00 í Hafnarkirkju. Auk þess mun bandið koma fram á aðalsviði hátíðarinnar á föstudagskvöldið. VoxFox flytur tónlist án undirleiks eða A Cappella.

Lesa meira
 

Unglingahljómsveitir á Humarhátíð

Það er löngu orðið ljóst að bærinn okkar hefur alið og á helling á flottu og færu tónlistarfólki hvort sem um er að ræða blásturshljóðfæraleika, unga söngvara eða gamla rokkhunda.

Lesa meira
 

Dagskrá Humarhátíðar hefst í kvöld klukkan 20:00 í Nýheimum

Í kvöld hefst Humarhátíð 2010 og byrjar gamanið í Nýheimum klukkan 20:00 með fyrirlestri frá Gumma í Matís um humar en í kjölfarið af honum stíga svo Nanna Imsland og Hrafn Eiríksson á svið og flytja íslensk lög í bland við ítalskar aríur og djass.

Lesa meira
 

Tónleikar í Nýheimum með Nönnu Imsland og Hrafni Eiríkssyni

Nanna Halldóra Imsland og Hrafn Eiríksson opna Humarhátíð formlega í kvöld klukkan 21:00 tónleikum í Nýheimum .

Lesa meira
 

Fata- og fylgihlutasýningin „Íslenska konan“ á Humarhátíð

Sýningin nefnist  „Íslenska konan“ og hugmyndin bakvið sýninguna er að sýna hversu glæsilegar konur eru óháð aldri, vaxtarlagi, menntun, starfi eða stöðu.  15-20 flottar fyrirsætur sína fjölbreyttar vörur en inn í sýninguna fléttast líka tónlist, ljósmyndir, textar og fleira. Lesa meira
 

Fyrirlestur um humar í Nýheimum klukkan 20:00

Á morgun miðvikudag mun Guðmundur í Matís vera með áhugaverðan fyrirlestur um humar í Nýheimum klukkan 20. Í fyrirlestrinum fjallar Guðmundur vítt og breitt um humar.

Lesa meira
 

Kæru íbúar!

Humarhátíð er framundan og nú þurfum við að hugsa fyrir skreytingum, þótt fyrr hefði verið! Lesa meira
 

Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð

Á síðustu Humarhátíð fór ekki fram hjá neinum að margir mjög hæfileikaríkir ljósmyndarar finnast á Hornafirði og því verður spennandi að sjá afrakstur þessa árs.

Lesa meira
 

Flugukastkennslaá Humarhátíð

Júlíus Guðmundsson, sportveiðimaður, leiðsögumaður og fluguveiðimaður af Guðs náð, verður með flugukastkennslu á föstudags og laugardagsmorgun um Humarhátíðarhelgina.

Lesa meira
 

Flóamarkaður á Humarhátíð

Á Humarhátíð hefur ætíð tíðkast að heimamenn og fleiri einstaklingar bjóði upp á söluvarning af ýmsum toga til sölu fyrir gesti Humarhátíðar. Lesa meira
 

Mikligarður á Humarhátíð 2010

Á sýningum listamannanna má fólk búast við að sjá verk unnin úr sandi,  hreindýrshorni, tré, járni og leir, sem og ljósmyndir  sem fanga bæði  náttúru og mannlíf í Ríki Vatnajökuls Lesa meira
 

Götuhátíðir á Humarhátíð

Í gegnum árin hefur Humarhátíð ætíð hafist á svokölluðum hverfahátíðum. Á síðustu árum hefur þátttaka í þessu skemmtilega uppátæki minnkað en þess má geta að við Hornfirðingar vorum einna fyrstir til að hefja bæjarhátíðir á þennan hátt.

Lesa meira
 

Sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellsýslu bjóða upp á grillað lambakjöt á Humarhátíð

Á næstkomandi Humarhátíð munu sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellssýslu bjóða gestum og gangandi upp á grillað lambakjöt í samstarfi við Meistarafélag kjötiðnaðarmanna, sem mun sjá um matseldina.

Lesa meira
 

Rökræður Hugans

Föstudaginn 2. júlí klukkan 17:00 opnar sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Nýheimum. Á opnuninni verða verk úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars afhent sveitarfélaginu við formlega athöfn.

Lesa meira
 

Svartar sálir snúa aftur.

Árið 1968 var að mörgu leiti merkilegt ár. Þá var 68-kynslóðin svokallaða í blóma lífsins, ungt fólk hafði hátt víða um veröld, fjölbreytni tónlistar var sem aldrei fyrr og það var gaman að vera til.

Lesa meira
 

Gleði og rythmasveitin Rauðir Dreglar með uppákomu á Humarhátíð

Gleði-og rithmasveitin Rauðir Dreglar voru stofnaðir fyrir mörgum árum og æfðu stíft en þeir hafa komið fram m.a. á árshátíðum Kvennakórs Hornafjarðar og á Humarhátíð.

Lesa meira
 

Vinna við skipulagningu Humarhátíðar 2010 er í fullum gangi og er dagskráin nú að verða tilbúin

Margra grasa er að gæta og eins og svo oft áður eru heimamenn þar í stóru hlutverki

Lesa meira
 

Undirbúningur fyrir Humarhátíð 2010 hafinn

Undirbúningur fyrir humarhátíð sumarsins er nú hafin af fullum krafti

Lesa meira
 

Humarhátíð haldin árlega í Risør í Noregi.

Nú þegar Humarhátíðin á Höfn nálgast er gaman að segja frá því að Humarhátíðir eru haldnar á fleiri stöðum en hér

Lesa meira
 

Skiptimarkaður með íþróttavörur

Við fótboltamömmurnar ákváðum að stofna til skiptimarkaðar á íþróttamóti Humarhátíðarinnar.

Lesa meira
 

Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð á föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí

Ljósmyndamaraþonið mun verða bæði á föstudag og laugardag á Humarhátíð.

Lesa meira
 

Fyrirlestur um humar á Humarhátíð

Á Humarhátíð mun Guðmundur í Matís vera með áhugaverðan fyrirlestur um humar.

Lesa meira
 

Humarlagið 2009

Það hefur verið í umræðunni í nokkur ár að búa til sérstakt Humarhátíðarlag á hverju ári líkt og gert er varðandi Þjóðhátíð í Eyjum og fleiri hátíðir.

Lesa meira
 

Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð

Allar myndir sem berast í maraþonið verða svo settar inn í myndasafnið á humar.is

Lesa meira
 

Munir og myndir vegna sögusýningar um Humarhátíð

Áætlað er að búa til sögusýningu um Humarhátíð í ár, en þetta sumarið er það sautjánda sem hátíðin hefur verið haldin.

Lesa meira
 

Hið árlega þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar framundan!!!

Nú er komið að hinu sívinsæla þjóðarkvöldi þar sem alltaf komast færri að en vilja.  Vinsældir Þjóðarkvöldsins hafa aukist með ári hverju enda er það hin fullkomna byrjun á Humarhátíð Hornfirðinga.

Lesa meira
 

Það fer að styttast í þetta!

Senn fer að líða að Humarhátíð sem verður á sama tíma og síðustu ár, eða fyrstu helgina í júlí.

Lesa meira
 

Peningalyktin verður ekki um helgina

Eins og allir hafa orðið varir við er bræðslan komin í gang, og loksins segja margir! En stundum vill fylgja starfseminni lykt sem mörgum finnst óþægileg en flestir þekkja sem peningalykt - og ekki að ósekju. Vefurinn hafði samband við Ingva Sigurðsson framkvæmdastjóra fiskimjölsverksmiðjunnar og sagði hann að ekki yrði brætt neitt yfir helgina. Við ætlum ekki að angra nábúa okkar og aðra sem hér eru með peningalyktinni meðan humarhátíðin stendur yfir. Ingvi segir að Fiskimjölsverksmiðjan sé búin öllum þeim búnaði sem krafist er í svona verksmiðju en það sé bara ekki hægt að losna algjörlega við lyktina frá bræðslunni en við ætlum að gera enn betur og endurbæta þennan búnað og erum með mann í vinnu til að finna út hvað er árangursríkast og best. Lesa meira
 

Akurey komin í hátíðarbúning

Karlarnir í karlakórnum Jökli unnu fram á nótt við að koma Akurey í hátíðarbúning og hefði mátt halda að þarna væri vinnuflokkur úr slipp að störfum, svo faglegir voru þeir. Á meðan héldu kvennakórskonur sitt þjóðarkvöld í Sindrabæ þar sem hvert sæti var skipað og vel það. Að sögn gesta þeirra slógu þær algjörlega í gegn og verða að huga að stærra húsi fyrir næsta þjóðarkvöld þar sem Sindrabær er orðinn of lítill. Bestfiskmenn verða með humar framreiddan á ýmsa vegu við Akureynna um helgina. Þar verður hægt að gæða sér á grilluðum humar í pylsubrauði en það sló rækilega í gegn í fyrra. Einnig verður hægt að kaupa heila grillbakka af humri og drykkjarföng. Lesa meira
 

Humarhátíð á Lönguhólum

Humarhátíð á leikskólanum Lönguhólum hófst kl 8 í morgun, þá var garðurinn skreyttur, flaggað og "Kæra Höfn" diskurinn settur í tækið. Mikið er búið að vera að gera hjá börnunum í að búa til skraut og vera í leikjum eftir hádegið. Gátu svo þau sem vildu fengið andlitsmálun og margt annað skemmtilegt var í boði. Í hádeginu var borðað úti eins og mjög oft, í þetta skiptið voru pylsur í tilefni dagsins. Þegar verið var að byrja að borða kom þessi góða gróðrarskúr sem börnin kipptu sér nú ekki upp við, en svo fór að rigna hressilega seinnipartinn. Lesa meira
 

Útimarkaður á Heppunni

Á laugardaginn verður haldinn útimarkaður í gömlu rústunum á Heppunni. Skorað er að Hornfirðinga að hreinsa nú ærlega til í bílskúrum og geymslum og taka þátt í þessari uppákomu. Markaðurinn hefst klukkan 14 og þurfa bílskúrsbraskarar þá að vera búnir að koma sér fyrir. Áhugasamir braskarar tilkynna þátttöku sína í síma 470 8050, það kostar ekkert að vera með en hver og einn kemur með borð undir sitt hafurtask. Grúskarar ættu að geta fundið ýmislegt áhugavert, fótanuddtæki, stráhatta og strápils, gamlar plötur, bolla og glös og ýmislegt annað áhugavert. Frést hefur af ungri snót sem undirbýr tiltekt í fataskápnum og ætlar að selja bílfarma af fatnaði, skóm og öðru sem prýtt getur ungar snótir. Lesa meira
 

Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins

Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum! Lesa meira
 

Hulda Rós og Rökkurtríóið í Pakkhúsinu

Annað kvöld, miðvikudaginn 2. júlí verða tónleikar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Eru tónleikarnir haldnir í samstarfi við Menningarmiðstöð Hornafjarðar og má einnig segja að þetta sé fyrsti viðburður Humarhátíðar á Höfn sem fer fram næstu helgi. Á þessum tónleikum kemur fram hin tiltölulega nýja hljómsveit Hulda Rós og Rökkurtríóið. Hljómsveitin hefur nú þegar komið fram á tveimur tónlistarhátíðum á þessu ári, Norðurljósablús á Höfn og Hammondhátíð á Djúpavogi og fengið góða dóma. Hljómsveitina skipa Sigurður Guðnason á gítar, Bjartmar Ágústsson á kontrabassa og rafbassa, Eymundur Ragnarsson á trommur, Heiðar Sigurðsson á píanó og hammond ásamt Huldu Rós Sigurðardóttur sem syngur. Lesa meira
 

Óskað eftir sjálfboðaliðum

Að halda Humarhátíð krefst markviss undirbúnings og mikillar vinnu. Margar hendur koma að því að gera hverja Humarhátíð að veruleika og sjálfboðaliðar leggja sitt að mörkum til þess að hátíðin megi heppnast sem best. Mörg félagasamtök hafa komið að skipulagningu og undirbúningi Humarhátíðarinnar í gegnum árin. Nægir þar að nefna Kiwanisklúbbinn ÓS, Karlakórinn Jökul, Kvennakór Hornafjarðar, Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Í ár er hátíðin í höndum knattspyrnudeildarinnar og björgunarfélagsins. Starfsmaður er framkvæmdastjóri Sindra, Valdemar Einarsson. Björgunarfélagið og knattspyrnudeildin reyna að sjálfsögðu eftir fremsta megni að manna þau störf sem þarf að manna á hátíðinni. En það er alltaf hægt að nýta fleira fólk á öllum aldursstigum t.a.m. í gæslu á dansleikjum og á hátíðarsvæðinu. Lesa meira
 

List og líf á Humarhátíð

Það verður mikið um að vera á Humarhátíð og bætist stanslaust í dagskránna. Það er frábært að sjá allt þetta úrval og það að áhersla sé lögð á hornfirskar hljómsveitir er til eftirbreytni. Fjölbreyttar sýningar að tryggja að flestir finni eitthvað við sitt hæfi og um að gera að flakka á milli sýninga, sýna sig og sjá aðra um leið og við njótum þess sem allir þessir listamenn hafa fram að færa. Í júní hefur verið starfandi listasamiðja fyrir börn á aldrinum 9- 16 ára og má búast við að þátttakendur í henni láti að sér kveða á Humarhátíð með leik og söng. Hafa Siggi Palli og Halldóra séð um hana og krakkarnir fjölmennt til þeirra. Verður spennandi að fylgjast með þeim en þegar nær dregur Humarhátíðinni fáum við betur að vita hvar þau verður að finna Lesa meira
 

Töfrar á Humarhátíð

Nú styttist í árlega Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hún verður eins og venjulega haldin fyrstu helgina í júlí, þ.e. 4. – 6. júlí. Að venju verður dagskráin fjölbreytt á hátíðinni og þetta árið er lögð sérstök áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa. Að sjálfsögðu vonumst við til þess að sem flestir sæki okkur heim þessa helgi og fái tækifæri til þess að kynnast Hornafirði og Hornfirðingum. Þess vegna er mikilvægt að allir sem vettlingi geta valdið leggist á eitt til þess að bærinn verði eins snyrtilegur og mögulegt er fyrir Humarhátíðina. Ekki er neinum blöðum um það að fletta að snyrtilegur bær stuðlar að skemmtilegri hátíð. Lesa meira
 

Amerískt kvöld hjá Kvennakórnum

Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður á sínum stað í Sindrabæ fimmtudaginn 3.júlí eða í byrjun Humarhátíðar. Að venju verður mögnuð skemmtidagskrá, hlaðborð og söngur svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem 4.júlí, þjóðhátíðardagur BNA er daginn eftir fannst þeim kvennakórskonum tilvalið að vera með norður-amerískt þema í þetta sinn. Þær hafa lagt mikið upp úr því að finna allt sem amerískt er og búast má við ýmiskonar amerískum mat, drykk og hver veit nema Clinton láti sjá sig? A.m.k. hefur frést af þeim kvennakórskonum úti í Ameríku í samningaviðræðum við fallega og fræga fólkið! Einnig sást til þeirra Ernu og Ingibjargar þar sem þær laumuðust á miðilsfund. Hver veit hvað hefur komið út úr því? Lesa meira
 

Tónlistin í fyrirrúmi á Humarhátið

Að venju skipar tónlistin veigamikið hlutverk á Humarhátíð. Eins og venjulega verður úrval tónlistarmanna mikið. Að þessu sinni verða hornfirskir tónlistamenn í meirihluta á þetta árið. Hulda Rós og Rökkurtríóið verða í Pakkhúsinu á miðvikudagskvöldinu. Parket spilar á bryggjuballinu á föstudagskvöldið og á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. Hornafjarðarkvöldið í Sindrabæ verður á sínum stað á föstudagskvöldið og þar verður Kusk ásamt Jonna og félögum í hljómsveitinni Undur og heyrst hefur að Mæðusveitin Sigurbjörn verði á Kaffi Horninu. Í Pakkhúsinu spila Bjartur Logi, Gulli kennari, Bjössi tengdasonur Sæma múrara að ógleymdum hinum geðþekka pípara og trommuleikar Braga Kalla en þessi hljómsveit kallar sig Ungmennafélagið. Laugardagskvöldið spilar síðan Kuskið í Pakkhúsinu. Síðan hafa verið uppi raddir um það að Hljómsveit Hauks Þorvalds spili á Víkinni á laugardagskvöldið. Það má því með sanni segja að þetta árið segjum við; hornfirskt, já takk. Lesa meira
 

Lögð áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa

Eins og flestir vita þá styttist nú óðfluga í Humarhátíð en hún er eins og alltaf haldin fyrstu helgina í júlí. Setning hátíðarinnar þetta árið verður því föstudaginn 4. júlí og stendur hátíðin fram á sunnudaginn 6. júlí. Að venju verður mikið um að vera og lögð áhersla á það í dagskránni að höfða til sem flestra aldurshópa. Á þessari Humarhátíð verður einnig lögð sérstök áhersla á heimatilbúið skemmtiefni, þ.e. að Hornfirðingar sjálfir sjá um skemmta sjálfum sér og öðrum gestum. Það þarf samt ekki að koma neinum á óvart að Felix Bergsson mætir á Humarhátíð þetta árið og nú með Gunna vini sínum. Þeir félagar ætla að stjórna skemmtidagskránni á sviðinu á föstudags – og laugardagskvöldinu. Eins koma þeir til með að starta Kassabílarallinu og stjórna söngvarakeppni barna. Það má kannski segja að Felix sé að verða jafn sjálfsagður gestur á Humarhátíð og humarinn sjálfur. Lesa meira
 

Hvar fær maður humar á Humarhátíð?

Hver er tilgangurinn með Humarhátíðinni? Um hvað snýst hún eiginlega? Það eru margir sem spyrja sig þessara spurninga og svörin eru eflaust jafn mörg og þeir sem reyna að svara þeim vegna þess að upplifun fólks á hátíðinni er mjög mismunandi. Það sem einum finnst ómissandi þáttur í hátíðahöldunum finnst öðrum kannski ekki eins spennandi eins og gengur. En eitt geta allir verið sammála um og það er að Humarhátíð á Hornafirði snýst um gómsætt sjávarfang, humarinn. Humarinn og humarvinnsla er eitt af einkennismerkjum Hornafjarðar og margir öfunda okkur af framboðinu á Humri hér á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að halda því á lofti að humarinn er hornfirsk afurð og Humarhátíðin er liður í því. Lesa meira
 

Góða skemmtun á Humarhátíð

Nú er Humarhátíðin alveg að skella á. Vonandi er fólk komið í hátíðarskap og tilbúið að skemmta sér vel um helgina. Í kvöld kl. 20:00 má segja að hátíðarhöldin byrji með þýsku skemmtikvöldi kvennakórsins í Sindrabæ. Stelpurnar í kórnum eru nýkomnar úr endurnærandi ferð til Þýskalands og ætla og kynna fyrir okkur hinum siði og venjur þýskumælandi þjóðar. Spænska kvöldið tókst frábærlega hjá kórnum í fyrra og ekki er vafi á því að stemningin verður sú sama ef ekki meiri í kvöld. Forsala aðgöngumiða er í Tangó í miðbæ og kostar miðinn einungis 2000 kr. Sölumenn á vegum Humarhátíðarnefndar hafa gengið í hús undanfarin kvöld til þess að selja armbönd sem gilda inn á hátíðarsvæðið. Armböndin kosta 2000 kr. fyrir fullorðna og gilda þau inn á hátíðarsvæðið á bryggjunni, í pakkhúsið, í Sindrabæ og í Akureyna þann tíma sem hátíðin er í gangi. Lesa meira
 

Armbönd – stórdansleikur

Armbönd á hátíðarsvæðið kosta 2000 kr.- fyrir fullorðna og 1000 kr.- fyrir börn. Armbönd fyrir fullorðna gilda á hátíðarsvæðið á bryggjunni, í pakkhúsið, í Sindrabæ og í Akureyna föstudag og laugardag. Armbönd fyrir börn gilda á hátíðarsvæðið og í leiktæki föstudag og laugardag. Vert er að minnast á að frítt er á leiksýningar fyrir börnin í Sindrabæ á laugardaginn kl. 11:00 og 15:00. Stórdansleikur í íþróttahúsinu verður á laugardagskvöldið og miðaverð þar er 2500 kr.- líkt og verið hefur undanfarin ár. Lesa meira
 

Þýskt skemmtikvöld í Sindrabæ

Kvennakórinn heldur sitt árlega þjóðarkvöld fimmtudaginn 28.júní í Sindrabæ og hefur þar með Humarhátíðina. Í fyrra voru þær kvennakórskonur með spænskt kvöld sem vakti mikla lukku og komust færri að en vildu. Að þessu sinni er þýskt þema, en kvennakórinn er nýkominn úr söngferð í Þýskalandi og hafa alla ferðina verið að undirbúa skemmtikvöldið og safna heimildum. Um reisuna má lesa betur síðar þegar ferðapistillinn verður birtur. Verður lögð áhersla á að skapa þýskt andrúmsloft, með knæpustemningu og harmonikku-tónlist. Boðið verður upp á þýskan mat, tónlist og söngatriði og ekki síst (al) þjóðleg skemmtiatriði. M.a. koma Heidi og Pétur og eins og hefð er komin á þá verður ljóðalestur í beinni þýðingu. Lesa meira
 

Fjölbreytt dagskrá á Humarhátíð

Hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga fer fram nú um helgina. Að þessu sinni eru það knattspyrnudeild Sindra og Björgunarfélag Hornafjarðar sem standa að hátíðinni og sjá um framkvæmd hennar. Forsvarmaður hátíðarinnar er Valdemar Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra. Dagskrá hátíðarinnar er með nokkuð hefðbundnu sniði en alltaf leynast einhverjar nýjungar inn á milli. Þar má t.d. nefna fyrirlestur um humar á vegum Matís, tónleika með Heimilstónum og Jón Víðis töframann. Einnig er vert að minnast á það að hinn geysivinsæli skemmtikraftur Sveppi verður kynnir hátíðarinnar ásamt Felix Bergssyni sem er okkur Hornfirðingum að góðu kunnur fyrir störf sín á undangengnum humarhátíðum. Á hátíðinni verða líka fastir liðir sem alltaf vekja kátínu. Kassabílarallý verður á sínum stað, Humarhátíðarmót í golf og heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna. Lesa meira
 

Skrúðgangan á Humarhátíð

Nú styttist í hina árlegu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hátíðin fer fram helgina 29. júní – 1. júlí. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að taka forskot á sæluna með því að halda þjóðakvöld í Sindrabæ fimmtudaginn 28. júní. Verður vafalaust jafn mikið stuð þar og á spænska kvöldinu í fyrra sem kvennakórinn hélt þá í Sindrabæ. Jafnframt verður lifandi tónlist á Víkinni sama kvöld. Skrúðganga Humarhátíðarinnar leggur af stað frá tjaldstæðinu föstudagskvöld kl. 20:00 og verður stefnan sett á bryggjuna líkt og undanfarin ár. Ýmis faratæki frá Menningarmiðstöðinni verða í fararbroddi skrúðgöngunnar að þessu sinni. Stefnt er að því að hátíðin verði formlega sett kl. 20:30 á bryggjunni og fellur það í hlut Bjargar Erlingsdóttur, framkvæmdastjóra Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, að setja hátíðina með formlegum hætti. Að lokinni setningu tekur við skemmtidagskrá á sviði, markaðstemning, leiktæki og útidansleikur svo eitthvað sé nefnt. Lesa meira
 

Humarhátíð og 110 ára afmæli Hafnar

Líkt og flestir eflaust vita þá verður þetta viðburðaríkt sumar á Hornafirði. Nægir þar að nefna Unglingalandsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina. Humarhátíðin verður á sínum stað helgina 29. júní – 1. júlí. Einnig fagnar Sveitarfélagið Hornafjarðar 110 ára afmæli Hafnar og snemma á þessu ári var ákveðið tengja saman dagskrá Humarhátíðar og 110 ára afmælisins. Það ætti því að vera nóg um að vera á Hornafirði þessa helgi og vonandi geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Lesa meira
 

Humarhátíð haldin helgina 29. júní – 1. júlí

Ákveðið hefur verið að Humarhátíð okkar Hornafirðinga verði haldin helgina 29. júní – 1. júlí. Ástæðan fyrir því að þessi helgi varð fyrir valinu er sú að helgina eftir fer fram Landsmót UMFÍ í Kópavogi og þá fer stór hluti Sindramanna í Kópavoginn til þess að kynna Unglingalandsmótið sem haldið verður á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Þess vegna var talið farsælast að halda Humarhátíðina þessa helgi. Aðstandendur hátíðarinnar verða að þessu sinni Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Bæjarráð Hornfjarðar ákvað fyrir skömmu að hækka fjárframlag bæjarins til Humarhátíðarinnar. Þessu aukafjárframlagi var sérstaklega ætlað að liðka til fyrir nefndinni svo hún gæti keypt vinnu. Humarhátíðarnefnd hefur nú þegar ráðið starfsmann í hlutastarf. Þessi ráðstöfun kemur til með að hjálpa til með alla skipulagningu fyrir hátíðina. Lesa meira
 

Vel lukkuð Humarhátíð

Humarhátíðin á Höfn sem nú er haldin var 14. árið í röð fór mjög vel fram. Dagskrá hátíðarinnar var með hefðbundnum hætti þetta árið. Hún hófst á Spænsku kvöldi í Sindrabæ á fimmtudagskvöldinu þar sem Kvennakórskonur buðu upp á mat og skemmtiatriðum með spænskum hætti. Þótti kvöldið heppnast mjög vel og heyrðist víða að vonandi væri þessi þáttur hátíðarinnar kominn til að vera. Eftir Skrúðgöngu á föstudeginum fóru fram hátíðarhöld niður á bryggju þar sem Hjalti Þór Vignisson setti humarhátíðina. Veðrið á hátíðinni var mjög breytilegt, bæði rigning, sól og vindur en þokkalegt veður á laugardeginum. Lesa meira
 

Spænskt kvöld í Sindrabæ

Kvennakór Hornafjarðar er með eitt af þeim atriðum sem ríða á vaðið á Humarhátíðinni og verður það spænskt kvöld í Sindrabæ og hefst það í kvöld kl.19:30. Eins og nafnið gefur til kynna þá verður kvöldið með spænsku yfirbragði og verður maturinn og drykkir sem þar verður á borð borið með spænskum hætti. Kvennakórskonur kalla kokkinn sinn José Banderas og segja þær hann einn þann fremsta í heimi í spænskri matargerð. Það verður ekki bara matur og drykkur sem verður í boði því kvennakórskonur bjóða einnig upp á skemmtiatriði og hefur heyrst úr herbúðum þeirra að þar munu m.a. verða sýndir flamenco dansar. Lesa meira
 

Humarhátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga er að nálgast. Hátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní á hátíðarsvæðinu okkar við höfnina. Að venju verða þó einhver atriði á fimmtudeginum áður en hátíðin er formlega sett. Sú venja hefur skapast undanfarin ár að mikið er lagt upp úr að fjölskyldudagskrá sé í hávegum höfð á hátíðinni. Hátíðin í ár verður engin undantekning frá því. Hoppukastalar verða fyrir börnin, kassaklifur, skemmtidagskrá á hafnarsvæðinu auk margs annars sem verður á boðstólum fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin Á móti Sól mun halda uppi stemningunni á hafnarsvæðinu og hún mun líka spila á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Í ár mun Humarhátíðarnefnd ekki standa fyrir neinum hverfahátíðum en þess í stað mun skrúðganga leggja af stað frá íþróttahúsinu kl. 20:00 á föstudagskvöldinu. Þó ekki verði um neinar formlegar hverfahátíðir að ræða að þessu sinni hvetur Humarhátíðarnefnd fólk að sjálfsögðu til þess að hittast í sínum hverfum, gera sér glaðan dag og fjölmenna í skrúðgönguna. Lesa meira
 

Skráning hafin í kassabílarallið

Landsbankinn á Höfn er nú byrjaður að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem verður haldið á Humarhátíðinni. Þeir sem skrá sig hjá Landsbankanum fá límmiða, skráningarmiða og reglur. Á síðustu humarhátíð tóku 13 bílar þátt í keppninni og 19 árið á undan. Að sögn Sigríðar Guðbjargar Garðarsdóttir hjá Landsbankanum þá er stefnt að því að enn fleiri taki þátt í keppninni í ár og hvetur hún pabba, mömmur og alla sem geta vettlingi valdið að byrja að smíða. Sigurvegarar í síðustu keppni voru Kristófer Hansson og Kristinn A Lúðvíksson með tímann 19,79 sek., önnur verðlaun hlutu Hannes Halldórsson og Eggert H Þórhallsson og þriðju verðlaun hlutu Þorgils Snorrason og Jón Páll Sveinsson með tímann 20.20 sek. Farandbikar fyrir flottasta bílinn hlutu Jón Bjarni Sindrason og Kolbrún Lilja Skúladóttir á Jöklajeppa-bíl, settur saman úr tveim hjólbörum. Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn hlutu systkinin Hákon Logi Stefánsson og Sædís Harpa Stefánsdóttir á akandi gróðurhúsi með lifandi blómum. Lesa meira
 

Styttist í Humarhátíð

Eins og allir vita þá er farið að styttast mjög í hina árvissu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Það er alltaf viss tilhlökkun sem fylgir því að fara á Humarhátíð. Þetta ár líkt og undanfarin ár er stefnt að því að hafa Humarhátíðina eins fjölskylduvæna og hægt er þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Að þessu sinni fer hátíðin fram dagana 30. júní – 2. júlí. Hátíðarsvæðið okkar verður eins og undanfarin ár á bryggjunni. Þar verður skemmtidagskrá á föstudagskvöldinu, á laugardaginn og á laugardagskvöldinu. Stórdansleikur verður síðan að venju haldinn í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. |nl|Það er von okkar að Hornfirðingar fjölmenni á hátíðina sem endranær og hjálpi eins og alltaf mikið við undirbúninginn. Það er mikil vinna að standa að hátíð sem þessari og því þurfa margar hendur að koma að verkinu svo vel takist til. Lesa meira
 

Undirbúningur fyrir Humarhátíð kominn í fullan gang

Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 30. júní til 2. júlí. Verið er að vinna í því að fá eina af vinsælli hljómsveitum landsins til þess að skemmta á hátíðinni. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina. Lesa meira
 

Vefmyndavélin kominn á sinn stað

Nú er vefmyndavélin komin í gagnið fyrir Humarhátíðina fyrir þá sem vilja fylgjast með því sem fram fer á hátíðarsvæðinu í beinni útsendingu. Á humarhátíðinni í fyrra þá skiptu heimsóknir á vefvélina tugum þúsunda og sannaði vefvélin notkunargildi sitt. Það var ekki óalgengt að gestir hátíðarinnar væru í GSM samandi við vini og ættingja bæði hérlendis og erlendis beint fyrir framan vélina og þá bæði með mynd og hljóð. Vefmyndavélin sem er staðsett á Hafnarvoginni vísar á Pakkhúsið með yfirsýn yfir Pakkhúsið, Heinina og göngusvæðið milli Pakkhússins og Hafnarvogarinnar. |nl| Lesa meira
 

Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið

Þó dálítið sé blautt hér á Hornafirði núna er undirbúningur fyrir humarhátíðina í fullum gangi. Krakkarnir í vinnuskólanum eru á fullu við að slá og raka og fegra bæinn, byrjað er að flytja gáma á hátíðarsvæðið við höfnina, vefmyndavélarnar komnar á sinn stað og eins og á góðum heimilum er allt tilbúið til að taka á móti þeim sem koma vilja á humarhátíðina. Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið því samkvæmt upplýsingum Hrafns Guðmundssonar veðurfræðings á veðurútliti fyrir hátíðina mun verða einhver væta í fyrramálið en upp úr hádeginu fer að stytta upp og rofa til og útlit á góðu veðri seinni part dagsins. Á laugardag spáir Hrafn mjög góðu hátíðarveðri, hægri suðlægri átt, gæti orðið smá raki um morguninn þó ekkert sem skiptir máli og hiti 12-14°. Lesa meira
 

Styttist í Humarhátíð

Nú eru aðeins nokkrir dagar í það að Humarhátíð hefjist og spennan og eftirvæntingin magnast í hugum fólks. Undirbúningsnefndin vinnur nú hörðum höndum að lokaskipulagningu hátíðarinnar og það er svo sannarlega að mörgu að hyggja. Í þessari viku munu starfsmenn hátíðarinnar ganga í hús og selja armband Humarhátíðarinnar, en það veitir gestum humarhátíðarinnar aðgang að öllum helstu skemmtunum á hátíðarsvæðinu ef frá er skilinn stórdansleikurinn í íþróttahúsinu með Skítamóral á laugardagskvöldinu. Það er von nefndarinnar að fólk taki vel á móti sölufólkinu á næstu dögum því eins og allir vita þá kostar svona hátíð mikla peninga og vinnu og því er mikilvægt að vel takist til. Lesa meira
 

Undirbúningur humarhátíðar í fullum gangi

Humarhátíðarnefnd vinnur hörðum höndum að því þessa dagana að leggja lokahönd á undirbúning Humarhátíðarinnar sem haldin verður 1. – 3. júlí. Að hátíðinni standa að þessu sinni Björgunarsveit Hornafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Mikil metnaður hefur verið lagður í dagskrána að þessu sinni sem endranær og að því stefnt að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðardögunum. Hljómsveitin landskunna, Skítamórall heldur stórdansleik í íþróttahúsinu, golfmót verður haldið, hljómsveitin Kusk skemmtir í Pakkhúsi, boðið verður upp á leiktæki við Ásgarð svo fátt eitt sé nefnt. Hverfahátíðirnar skipa mikilvægan sess í hugum margra Humarhátíðargesta og varla hægt að hugsa sér að Humarhátíð hefjist án hverfahátíða. Enn á eftir að finna hverfastjóra fyrir Miðbæ og Sílavík og er hér með auglýst eftir þeim. Lesa meira
 

Skítamórall á Humarhátíð

Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 1. til 3. júlí n.k. Búið er að gera samning við eina af vinsælustu hljómsveitum landsins og er það Skítamórall sem mun sjá til þess að allir skemmti sér sem allra best. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina. Lesa meira
 

Í lok Humarhátíðar 2004

“Ein af þeim bestu” voru orð eins aðstandenda Humarhátíðarinnar og er víst að hann á sér nokkuð marga skoðanabræður. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina sem nú var haldin í 12 skiptið. Hátíðin í ár einkenndist af fjölskyldu stemningu og nálgaðist sitt upphaflega markmið sem er að vera fjölskylduhátíð fremur en unglingasamkoma. Veður var hið besta yfir hátíðina, stillt og milt alla dagana og hitastig um 10 gráður. Áberandi var hversu hreinn og snyrtilegur bærinn var á meðan á hátíðarhöldunum stóð og þegar þau voru búin og má því þakka hreinsunarliðinu sem var að störfum allan tímann. Lesa meira
 

Heimsmeistaramótið um helgina

Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna fer fram að venju í íþróttahúsinu á öðrum degi Humarhátíðar og byrjar það kl. 12:00. Albert Eymundsson mótsstjóri og frumkvöðull Hornafjarðarmanna hefur veg og vanda með mótinu eins og undanfarin ár. Á síðustu Humarhátíð var það Birgir Björnsson sem hlaut Hunarskálina og titillinn Heimsmeistari í Hornafjarðarmanna 2003. Búist er við harðri keppni og stóra spurningin hver fær titilinn í ár. Reiknað er með að það verði spilað á 40-50 borðum. Í fyrra voru það 129 manns sem tóku þátt í mótinu og mörg ný andlit. Lesa meira
 

Undirbúningur fyrir Humarhátíðina gengur vel

Nú styttist í Humarhátíðina og allt er að smella saman, byrjað að setja upp humarmerkin sem hafa skreitt ljósastauranna í útbænum og niður á hátíðarsvæðinu við bryggjuna. Hverfahátíðarnefndir eru búnar að boða til fundar og nokkrar þegar byrjaðrar að undirbúa skemmtiatriðin. Gengið hefur verið í hús og armbönd seld þeim sem ætla á humarhátíðina. Armböndin gilda fyrir alla viðburði á hátíðinni nema á dansleikinn sem verður í Íþróttahúsinu laugardagskvöldið. Þeir sem ekki hafa fengið heimsókn frá sölufólki geta keypt armböndin í Martölvunni í Miðbæ eða í björgunarsveitarbílnum sem verður staðsettur við Pakkhúsið. Ath best er að vera búinn að tryggja sér armbönd áður en haldið er á hátíðarsvæðið. Lesa meira
 

Nokkur pláss í söngvakeppnina

Fyrsta æfing hjá krökkunum fyrir söngvakeppnina sem verður á Humarhátíðinni á laugardeginum kl.14 fór fram um helgina og mættu 9 krakkar og verða þau samtals með 6 atriði. Eins og á síðustu Humarhátíð þá er gert ráð fyrir 10 söngatriðum og því er enn pláss fyrir nokkra krakka sem vilja koma fram. Æfingarnar fara fram í Tónskólanum í Sindrabæ og þeir sem aðstoða krakkana er ekki af verri endanum, en það eru félagarnir Haukur Þorvalds og Jóhann Morávek. Á síðustu Humarhátíð vakti söngvakeppnin mikla athygli og komu þar margir krakkar fram sem eflaust eiga eftir að láta að sé kveða í tónlistarbransanum í framtíðinni. Lesa meira
 

Á Humarhátíð - Sól á rauðum kjól

Myndverkamaðurinn „gjess“ er eitt af birtingarformum Guðjóns Sigvaldasonar leikstjóra, en hann er Hornfirðingum kunnur fyrir uppsetningar sínar á ýmsum leikverkum hér á Höfn. Það eru þó ekki allir sem vissu að myndlist allskonar er einnig eitt af því sem hann tekur sér fyrir hendur, þó að vísu mætti ráða í það t.d með leikmyndinni á leikverkinu „Stræti“ sem sett var upp í Mánagarði 1996, þá hefur líka mátt sjá hugmyndavinnu hans í útfærslu búninga og ýmiskonar gerva á fyrri Humarhátíðum, en hann stjórnaði fríðum flokki Hornfirðinga í götuleikhúsi bæjarins hér á árum áður. Lesa meira
 

Skráning hafin í kassabílarall

Nú er byrjað að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem er orðinn fastur hluti af Humarhátíðinni. Það er Landsbankinn á Höfn sem stendur fyrir rallinu eins og venjulega. Keppnin verður á laugardeginum eftir hádegi. Í fyrra voru það 19 krakkar sem tóku þátt í keppninni. Að sögn Sigurborgar Helgadóttur hjá Landsbankanum þá eru það ekki bara strákar sem taka þátt, stelpurnar hafa líka sótt í sig veðrið. Í rallinu er keppt um hverjir eiga hraðskreiðustu og flottustu bílana. Allir þátttakendur fá verðlaun en fyrir flottasta bílinn er veittur farandbikar. Lesa meira
 

Árni Johnsen skemmtir á Humarhátíð

Bryggjusöngur mun hljóma þetta árið á Humarhátíð því vísnasöngvarinn og fyrrverandi þingmaðurinn Árni Johnsen mun skemmta gestum hátíðarinnar á föstudagskvöldið. Valin lög munu hljóma úr 100 laga prógrammi sem Árni hefur sett saman. Árni segir að þetta sé mjög góð upphitun fyrir þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og er reynsla hans af Hornfirðingum sé sú að þeir erum mjög fljótir að taka með sér lagið. Árni sagði í samtali við humar.is frá eftirminnilegri ferð hingað austur þegar að hann var á ferð með samgöngunefnd þegar hún heimsóttir Hornafjörð og Djúpavog. Kom nefndin við á Hótel Vatnajökli um það leiti sem opna átti hótelið sem var eftir tvo daga og ætlaði nefndin að hitta Skarphéðin Larsen hótelhaldara en fékk þær fréttir að hann hafi verið fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur og því ekki getað tekið á móti nefndinni. Lesa meira
 

Búið að fylla alla sölugámana

Eins og undanfarin ár hefur verið mikil ásókn í aðstöðu í sölugámum á hátíðarsvæðinu á Humarhátíðinni þar sem gestir og gangandi hafa getað keypt ýmislegt skemmtilegt. Þar hefur m.a. verið að finna humar, sælgæti, ferskan fisk, fatnað, harðfisk, fatnaður, minjagripi, kakó, kaffi ýmis afþreyingartól. Að þessu sinni þá er ekki fleiri pláss á lausu og fengu færri en vildu. Stefnt er að því á næstu humarhátíð að auka svæðið sem verður fyrir sölugámana og anna með því eftirspurn. Við gámana bætist síðan Sindratjaldið en þar rúmast 6 söluaðilar. Lesa meira
 

Humarhátíð á næstu grösum

Flestir fá fiðring í magann af tilhlökkun þegar minnst er á Humarhátíðina og eykst hann þegar nær dregur hátíðinni. Dagskráin er nú fullmótuð og inniheldur eins og undanfarin ár eitthvað skemmtilegt fyrir alla aldurshópa. Föstu liðirnir eru á sínum stað svo sem hverfahátíðirnar, kúadellulottóið, heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna, útimarkaðurinn, burnoutkeppnin svo eitthvað sé nefnt. Nýir skemmtikraftar og hljómsveitir sem verða með okkur þetta ár og svo er það allur humarinn sem hægt er að komast í. Sjá nánar dagskrá. Lesa meira
 

Undirbúningur fyrir Humarhátíð gengur vel

Undirbúningur fyrir Humarhátíð er komin á fullt skrið en hátíðin verður haldin dagana 2. – 4. júlí. Eins og undanfarin ár er undirbúningurinn í höndum Björgunarfélags Hornafjarðar, Kiwanisklúbbsins Ós og Knattspyrnudeildar Sindra. Að sögn Gests Halldórssonar sem á sæti í undirbúningsnefndinni er mikil vinna búinn að vera í gangi undanfarið og búið að ráða bæði hljómsveit og kynnir. Hljómsveit Humarhátíðar þetta árið verður “Á móti sól” og mun hljómsveitin leika á útidansleik á föstudagskvöldið og í íþróttahúsinu á laugardaginn. Kynnir hátíðarinnar verður hinn eini og sanni Felix Bergsson sem verður ekki í vandræðum með að gleðja unga sem aldna. Lesa meira
 

Humarhátíð Fréttir

Hljómsveitin Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall

13.04.2005

Skítamórall á Humarhátíð

Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 1. til 3. júlí n.k. Búið er að gera samning við eina af vinsælustu hljómsveitum landsins og er það Skítamórall sem mun sjá til þess að allir skemmti sér sem allra best. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina.

Þeir aðilar sem standa að humarhátíðinni þetta árið eru Knattspyrnudeild Sindra, Kvennakór Hornafjarðar og Björgunarfélag Hornafjarðar.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica