Humarhátíð Fréttir
Styttist í Humarhátíð
Eins og allir vita þá er farið að styttast mjög í hina árvissu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Það er alltaf viss tilhlökkun sem fylgir því að fara á Humarhátíð. Þetta ár líkt og undanfarin ár er stefnt að því að hafa Humarhátíðina eins fjölskylduvæna og hægt er þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Að þessu sinni fer hátíðin fram dagana 30. júní - 2. júlí. Hátíðarsvæðið okkar verður eins og undanfarin ár á bryggjunni. Þar verður skemmtidagskrá á föstudagskvöldinu, á laugardaginn og á laugardagskvöldinu. Stórdansleikur verður síðan að venju haldinn í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið.
Það er von okkar að Hornfirðingar fjölmenni á hátíðina sem endranær og hjálpi eins og alltaf mikið við undirbúninginn. Það er mikil vinna að standa að hátíð sem þessari og því þurfa margar hendur að koma að verkinu svo vel takist til.
Básar á Humarhátíð
Líkt og undanfarin ár verður hægt að leigja bása á Humarhátíð á vegum Humarhátíðarnefndar. Þar getur fólk verið með kynningar á ýmsum hlutum og hvers kyns söluvarning.
Um þrenns konar pláss er að ræða:
- Leiga á gám ( kr. 10.000).
- Svæði á milli gáma (kr. 7.000)
- Svæði í tjaldi (kr. 7.000)
Mikilvægt er að þeir sem leigja bása komi með sínar eigin framlengingarsnúrur á svæðið. Humarhátíðarnefnd getur ekki ábyrgst það að nóg verði til af framlengingarsnúrum á svæðinu.







