Humarhátíð Fréttir
Humarhátíð haldin helgina 29. júní – 1. júlí
Ákveðið hefur verið að Humarhátíð okkar Hornafirðinga verði haldin helgina 29. júní - 1. júlí. Ástæðan fyrir því að þessi helgi varð fyrir valinu er sú að helgina eftir fer fram Landsmót UMFÍ í Kópavogi og þá fer stór hluti Sindramanna í Kópavoginn til þess að kynna Unglingalandsmótið sem haldið verður á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Þess vegna var talið farsælast að halda Humarhátíðina þessa helgi. Aðstandendur hátíðarinnar verða að þessu sinni Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Bæjarráð Hornfjarðar ákvað fyrir skömmu að hækka fjárframlag bæjarins til Humarhátíðarinnar. Þessu aukafjárframlagi var sérstaklega ætlað að liðka til fyrir nefndinni svo hún gæti keypt vinnu. Humarhátíðarnefnd hefur nú þegar ráðið starfsmann í hlutastarf. Þessi ráðstöfun kemur til með að hjálpa til með alla skipulagningu fyrir hátíðina.
Aðstandendur 110 ára afmælishátíðar Hafnar hafa lýst yfir vilja til að vera þátttakendur í Humarhátíðarinnar að þessu sinni. Það kemur örugglega til með að lífga enn freka upp á hátíðina. Fleiri aðilar hafa einnig nefnt það við nefndina að þeir vilji fá að vera þátttakendur í hátíðinni. Frá þeim verður greint síðar. Gaman er til þess að vita að svo margir hafa áhuga á hátíðinni og vilja uppgang hennar sem mestan.
Humarhátíðarnefnd






