Humarhátíð Fréttir
Stemning_a_Humarhatid_2003

Humarhátíð og 110 ára afmæli Hafnar

Líkt og flestir eflaust vita þá verður þetta viðburðaríkt sumar á Hornafirði. Nægir þar að nefna Unglingalandsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina. Humarhátíðin verður á sínum stað helgina 29. júní - 1. júlí. Einnig fagnar Sveitarfélagið Hornafjarðar 110 ára afmæli Hafnar og snemma á þessu ári var ákveðið tengja saman dagskrá Humarhátíðar og 110 ára afmælisins. Það ætti því að vera nóg um að vera á Hornafirði þessa helgi og vonandi geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Afmælisnefnd sveitarfélagsins stendur m.a. fyrir málverkasýningu á verkum Svavars Guðnasonar, hljóðleikrit um verðbúðarlíf í Miklagarði og ferð út í Mikley með leiðsögn. Þá standa nefndirnar saman að því að sýna barnaleikritið Frú Norma í Sindrabæ. Sýningarnar verðar tvær laugardaginn 30. júní kl. 11:00 og 15:00 og er frítt inn. Þá mun afmælisnefndin einnig standa fyrir harmonikkustemningu, gamaldags leikjum, gönguferðum sunnudaginn 1. júlí og þá verður jafnframt formleg opnun á nýrri sýningu í Gömlubúð.


Humarhátíð Fréttir

Stemning_a_Humarhatid_2003
Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð (úr myndasafni)

23.06.2007

Humarhátíð og 110 ára afmæli Hafnar

Líkt og flestir eflaust vita þá verður þetta viðburðaríkt sumar á Hornafirði. Nægir þar að nefna Unglingalandsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina. Humarhátíðin verður á sínum stað helgina 29. júní - 1. júlí. Einnig fagnar Sveitarfélagið Hornafjarðar 110 ára afmæli Hafnar og snemma á þessu ári var ákveðið tengja saman dagskrá Humarhátíðar og 110 ára afmælisins. Það ætti því að vera nóg um að vera á Hornafirði þessa helgi og vonandi geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Afmælisnefnd sveitarfélagsins stendur m.a. fyrir málverkasýningu á verkum Svavars Guðnasonar, hljóðleikrit um verðbúðarlíf í Miklagarði og ferð út í Mikley með leiðsögn. Þá standa nefndirnar saman að því að sýna barnaleikritið Frú Norma í Sindrabæ. Sýningarnar verðar tvær laugardaginn 30. júní kl. 11:00 og 15:00 og er frítt inn. Þá mun afmælisnefndin einnig standa fyrir harmonikkustemningu, gamaldags leikjum, gönguferðum sunnudaginn 1. júlí og þá verður jafnframt formleg opnun á nýrri sýningu í Gömlubúð.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica