Humarhátíð Fréttir
Þjóðarkvöld_Kvennakór

Þýskt skemmtikvöld í Sindrabæ

Kvennakórinn heldur sitt árlega þjóðarkvöld fimmtudaginn 28.júní í Sindrabæ og hefur þar með Humarhátíðina. Í fyrra voru þær kvennakórskonur með spænskt kvöld sem vakti mikla lukku og komust færri að en vildu. Að þessu sinni er þýskt þema, en kvennakórinn er nýkominn úr söngferð í Þýskalandi og hafa alla ferðina verið að undirbúa skemmtikvöldið og safna heimildum. Um reisuna má lesa betur síðar þegar ferðapistillinn verður birtur. Verður lögð áhersla á að skapa þýskt andrúmsloft, með knæpustemningu og harmonikku-tónlist. Boðið verður upp á þýskan mat, tónlist og söngatriði og ekki síst (al) þjóðleg skemmtiatriði. M.a. koma Heidi og Pétur og eins og hefð er komin á þá verður ljóðalestur í beinni þýðingu.

Yfirkokkur er Herr Gauti Árnason og barmeister er Frau Högnadóttir Harpa.
Miðaverð er 2000 krónur, barinn verður opinn og hefst hátíðin stundvíslega klukkan átta.


Humarhátíð Fréttir

Þjóðarkvöld_Kvennakór
Þjóðarkvöld_Kvennakór
Þjóðarkvöld_Kvennakórs

27.06.2007

Þýskt skemmtikvöld í Sindrabæ

Kvennakórinn heldur sitt árlega þjóðarkvöld fimmtudaginn 28.júní í Sindrabæ og hefur þar með Humarhátíðina. Í fyrra voru þær kvennakórskonur með spænskt kvöld sem vakti mikla lukku og komust færri að en vildu. Að þessu sinni er þýskt þema, en kvennakórinn er nýkominn úr söngferð í Þýskalandi og hafa alla ferðina verið að undirbúa skemmtikvöldið og safna heimildum. Um reisuna má lesa betur síðar þegar ferðapistillinn verður birtur. Verður lögð áhersla á að skapa þýskt andrúmsloft, með knæpustemningu og harmonikku-tónlist. Boðið verður upp á þýskan mat, tónlist og söngatriði og ekki síst (al) þjóðleg skemmtiatriði. M.a. koma Heidi og Pétur og eins og hefð er komin á þá verður ljóðalestur í beinni þýðingu.

Yfirkokkur er Herr Gauti Árnason og barmeister er Frau Högnadóttir Harpa.
Miðaverð er 2000 krónur, barinn verður opinn og hefst hátíðin stundvíslega klukkan átta.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica