Humarhátíð Fréttir
Humar_AUT10854

Góða skemmtun á Humarhátíð

Nú er Humarhátíðin alveg að skella á. Vonandi er fólk komið í hátíðarskap og tilbúið að skemmta sér vel um helgina. Í kvöld kl. 20:00 má segja að hátíðarhöldin byrji með þýsku skemmtikvöldi kvennakórsins í Sindrabæ. Stelpurnar í kórnum eru nýkomnar úr endurnærandi ferð til Þýskalands og ætla og kynna fyrir okkur hinum siði og venjur þýskumælandi þjóðar. Spænska kvöldið tókst frábærlega hjá kórnum í fyrra og ekki er vafi á því að stemningin verður sú sama ef ekki meiri í kvöld. Forsala aðgöngumiða er í Tangó í miðbæ og kostar miðinn einungis 2000 kr. Sölumenn á vegum Humarhátíðarnefndar hafa gengið í hús undanfarin kvöld til þess að selja armbönd sem gilda inn á hátíðarsvæðið. Armböndin kosta 2000 kr. fyrir fullorðna og gilda þau inn á hátíðarsvæðið á bryggjunni, í pakkhúsið, í Sindrabæ og í Akureyna þann tíma sem hátíðin er í gangi.

Armböndin kosta 1000 kr. fyrir börn og gilda þau á hátíðarsvæðið á meðan hátíðin er í gangi sem og í leiktækin sem verða á svæðinu á vegum hornfirska fyrirtækisins Hopp ehf. Rétt er að minnast á það að frítt er leiksýninguna Frú Norma sem verður sýnd fyrir börn í Sindrabæ á laugardeginum kl. 11:00 og 15:00.

Stórdansleikur verður síðan í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu með hljómsveitinni Ingó og Veðurguðirnir. Miðaverðið inn á ballið í íþróttahúsinu er 2500 kr. eins og undanfarin ár. Svo er bara að vona að veðrið leiki við okkur um helgina og allir skemmti sér eins og best verður á kosið.

Humarhátíð Fréttir

Humar_AUT10854
Humar_AUT10854
Skrúiðgangan á Humarhátíð

28.06.2007

Senda grein

Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica