Kúadellulottó
Hvað er nú það?
Kúadellulottóið hefur verið einn vinsælasti viðburður sem verið hefur á Humarhátíð frá byrjun.
Eins og flestir Hornfirðingar vita, en kannski ekki utanaðkomandi gestir að þá gengur Kúadellulottó út á það að tuddi er leiddur inn á völl sem er með 100 merktum reitum. Reitirnir eru einu sinni einn metri hver og eru þeir allir merktir með tölum líkt og á lottómiða.
Tilgangurinn með leiknum er sá að sjá á hvaða reit fyrsta kúadellan lendir. Sá sem á töluna á þeim reit hreppir vinninginn.






