Munir og myndir vegna sögusýningar um Humarhátíð
Áætlað er að búa til sögusýningu um Humarhátíð í ár, en þetta sumarið er það sautjánda sem hátíðin hefur verið haldin. Sögusýningin verður svo til sýnis í Pakkhúsinu á meðan á hátíðinni stendur en til þess að af henni geti orðið vantar myndir frá ykkur sem hafið haldið myndavélunum á lofti í gegnum árin. Við getum tekið við myndunum svona:
- Þið getið sent inn myndir á netfangið sogusyning@hornafjordur.is. Myndirnar þurfa að vera í upprunalegri stærð/upplausn svo hægt sé að sýna þær, þannig að ekki má minnka þær fyrir sendingu. Ef þið eruð með margar myndir skiptið þeim þá upp í nokkrar sendingar.
- Þið getið komið með þær til okkar á Menningarmiðstöðina á minnislykli, minniskorti beint úr myndavélinni eða á geisladiski.
- Eldri myndir á pappír eða „slidesmyndir“ er hægt að koma með upp á Menningarmiðstöð og skönnum við þær inn.
Einnig væri gaman að fá muni til sýnis sem tengjast Humarhátíð en þá getið þið komið með upp á Menningarmiðstöð.






