Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð
Fyrirhugað er að hafa ljósmyndamaraþon á Humarhátíðinni. Maraþonið mun byrja kl. 12 á föstudeginum 3. júlí og því lýkur klukkan 19 sama dag. Maraþonið hefst við Pakkhúsið og þar munu einstaklingar fá frekari upplýsingar um þemu sem myndirnar þurfa að tengjast, en þau verða alls 10 talsins. Hver einstaklingur má skila inn 10 myndum þannig að ein mynd er fyrir hvert þema. Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndaröðina, bestu stöku myndina og óvenjulegustu lausnina. Myndunum verður að skila í Pakkhúsið klukkan 19 á föstudeginum og verður hver mynd að vera merkt þemanu sem því fylgir ásamt eiganda myndarinnar.
Hægt er að taka við myndunum af minnislyklum, geisladiskum og minniskortum.
Allar myndir sem berast í maraþonið verða svo settar inn í myndasafnið á humar.is.






