Dagskrá Humarhátíðar hefst í kvöld klukkan 20:00 í Nýheimum
Í kvöld hefst Humarhátíð 2010 og byrjar gamanið í Nýheimum klukkan 20:00 með fyrirlestri frá Gumma í Matís um humar en í kjölfarið af honum stíga svo Nanna Imsland og Hrafn Eiríksson á svið og flytja íslensk lög í bland við ítalskar aríur og djass. Hægt er að nálgast dagskrá Humarhátíðar í ár á vefsíðunni www.humar.is en hún verður svo borin í hús til íbúa sveitafélagsins á morgun fimmtudag. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í dagskránni en þar er að finna ýmislegt nýtt, eins og til dæmis sýningu á verkum Svavars Guðnasonar í Nýheimum, Big band tónleika, flugukastkennslu og Go cart. Að sjálfsögðu verða fastir liðir eins og vanalega á borð við Kúadellulottó, Burn out, varðeld og söng. Athugið að allar upplýsingar um viðburði, staðsetningu og tíma á Humarhátíð er að finna á www.rikivatnajokuls.is/vidburdir






