Humarhátíð Fréttir
Arfleifð

Arfleifð á Humarhátíð

Bekkjarsysturnar Gunnhildur Stefánsdóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir lærðu báðar að prjóna og sauma í grunnskólanum á Hornafirði.

Langmest hjá Morgoti Gamm sem kenndi handmennt til fjöldamargra ára en þaðan kemur einmitt nafn hönnunarfyrirtækis Gunnhildar sem hannar nú og saumar flíkur sem allar bera íslensk nöfn í stíl við vörumerkið „Gammur“.  Ágústa Margrét leitaði líka í gamalt íslenskt orð sem lýsir vörum hennar vel, hvaðan hugmyndirnar, innblásturinn, handverkstæknin og hráefnin koma, hennar íslenska „Arfleifð“

Þær stöllur hafa undanfarin ár bæði menntað sig á svið handverks, hönnunar og textíls en einnig sjálfmenntað sig með tækni í bland við það sem þær lærðu í grunnskóla og hjá mömmum og ömmum. Á síðasta ári frumsýndu þær Gamm og Arfleifð og hafa haft nóg að gera síðan. Höfuðstöðvar Gamms og verslun eru í miðborg Reykjavíkur en vinnustofa og verslun Arfleifðar er á Djúpavogi.

Vinkonurnar halda samt alltaf tryggðinni við Hornafjörð- þeirra heimabæ, voru með vörur til sölu í Nýheimum fyrir jól en ætla að bæta heldur betur um nú á Humarhátíð með sameiginlegri tískusýningu á föstudagskvöldinu á hátíðarsvæðinu. Hafa þær fengið til liðs við sig fjöldann allann af fyrirsætum til að gera þann viðburð sem allra flottastann. Einnig verður hægt að skoða og versla vörur á sölusýningu í Pakkhúsinu Föstudagskvöldið milli 20-22 og Laugardaginn milli 14-18 og 21-23.

Frekari upplýsingar á www.facebook.com/gammur og www.facebook.com/arfleifd

Humarhátíð Fréttir

Arfleifð
Arfleifð

01.07.2011

Senda grein

Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica