Humarhátíð gegnur vel þrátt fyrir bleytu
Humarhátíð gegnur vel
Humarhátíð á Hornafirði var sett formlega á föstudagskvöldinu á sviðinu við hátíðarsvæðið eftir skrúðgöngu frá bensínstöð N1 við Vesturbraut. Lúðrasveit Hornafjarðar leiddi gönguna, en ágætis þátttaka var í henni þrátt fyrir rigningu.
Góð stemning var í bænum á föstudag og gekk allt vel. Markaðir og listasýningar voru opnar við hátíðarsvæðið og vöktu mikla athygli. Handverk og hönnun skipa stóran sess á humarhátíð. Hljómsveit Hauks Þorvalds lék í Pakkhúsinu og Parket var með dansleik á Víkinni og því var stuð í bænum fram á nótt.
Það er alltaf eitthvað um að vera á humarhátíð og hægt er að sjá nýjustu dagskrá humarhátíðar inná humar.is og á facebook síðu Humarhátíðar, en fjöldinn allur af myndum hefur ratað inná síðu humarhátíðarinnar á facebook.






