Markaðir á Humarhátíð
Markaðir verða í Saltfiskskemmum
Nú styttist í Humarhátíð á Höfn og er aðeins 24 dagar þar til hátíðin verður sett. Fjölbreytt dagskrá verður á hátíðinni og þar má nefna grímubúningakepni í skrúðgöngu, kassabílarallí, Töfrafjör: námskeið og sýning, skemmtidagskrá á sviði.
Unnið hörðum höndum að setja saman flotta dagskrá. Eins og undanfarin ár verður markaður á Humarhátíðinni og að þessu sinni verður hann í Saltfiskskemmu (húsnæði Skinneyjar-Þinganess ehf). Markaðurinn verður opinn föstudag, laugardag og sunnudag og eru þeir sem hafa áhuga á að leigja pláss bent á að hafa samband við Söndru Lind á info@humar.is<mailto:info@
Með von um góðar undirtektir,
Humarhátíðarnefnd 2012






