Mikil stemning fyrir Sindraballinu með Á móti sól
Að sögn Valda Einars þá er að byggjast upp mikil stemning fyrir ballinu með Á móti Sól sem fer fram í Íþróttahúsinu á laugardagskvöld frá miðnætti til fjögur.
Hljómsveitin sem er ein af bestu hljómsveitum landsins er fyrir breiðari aldurshóp en oft hefur verið áður segir Valdi og lofar því að þetta verði frábært fjölskylduball. Aldurstakmark á ballið er 18 ára en 16 til 18 ára eru velkomnir í fylgd með foreldrum.






