Humarljúfmeti Kaffi Hornsins
Kaffi Hornið
6 stk harðsoðin egg. 8 stk skorpulausar fransbrauðsneiðar. 1 meðal dós ananasbitar. 250 gr soðinn humar (má nota rækjur). ½ stk. agúrka. ½ stk. rauð paprika. 1 pakki ljóst hlaup (t.d. lys aspik). 1 dl. humar eða rækjubragð frá NORÐURÍS. 100 gr sýrður rjómi. ½ tsk salt. ½ tsk pipar. ½ tsk karrý.
Aðferð: Harðsjóðið eggin í tíu mínútur, kælið, flysjið og saxið niður. Snöggsjóðið humarinn (2-3 mín) skerið hann í grófa bita. Skerið brauðið í teninga og bleytið í ananassafanum. Saxið ananasinn, paprikuna og agúrkuna niður í teninga. Blandið þessu, söxuðu eggjunum og humrinum saman við brauðið. Leysið hlaupið upp samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Látið rjúka úr því. Hrærið NORÐURÍS bragðinu, sýrða rjómanum og kryddinu saman við hlaupið að lokum er brauðblöndunni blandað saman við. Sett í mót og látið stífna í kæli 3 - 4 klst.
Ingólfur Einarsson Kaffi Hornið.






