Hvar eru þau núna?
Sandra Olgeirs
Sandra Olgeirs
Sigurbjörg Sandra Olgeirsdóttir er fædd og uppalin á Hornafirði

04.02.2010 Hvar eru þau núna?

Sandra Olgeirs

Sigurbjörg Sandra Olgeirsdóttir eða Sandra Olgeirs eins og flestir þekkja hana er fædd og uppalin á Hornafirði eða í Nesjahverfi nánar tiltekið. Sandra er dóttir Ölmu Þórisdóttur og Olgeirs Karls Ólafssonar, bræður hennar eru Ægir Olgeirsson og Þórir Kristinn Olgeirsson.

Sandra hefur verið búsett í Reykjavík frá því árið 2003 en þá flutti hún til að hefja nám í Iðnskólanum í Reykjarvík til að leggja stund á hárgreiðslu. Lauk hún því námi vorið 2007 og hóf hún meistaranám í iðngreininni og lauk því hálfu ári seinna.

Sandra segir að það hafi ekki verið erfitt að fá vinnu með skólanum þegar hún flutti til Reykjavíkur því krakkar utan að landi eru vel liðnir í vinnu á Höfuðborgarsvæðinu. Það má segja að Fjörðurinn fagri hafi alið ungafólkið vel upp segir hún. Sandra vann  á hárgreiðslustofunni Tony and Guy ásamt því að vinna sem vaktstjóri á Glaumbar um helgar.

Sandra keypti Hárgreiðslustofuna 101 Hárhönnun á Skólavörðustíg haustið 2008 ásamt tveim öðrum dömum og hefur reksturinn gengið vel. Hornfirðingar eru duglegir að koma til hennar í klippingu bæði heimamenn og brottfluttir og segir hún að það sé alltaf jafn gaman að fá Hornfirðingar í klippingu.

Sandra fékk snemma áhuga á því að reka sína eigin hárgreiðslustofu. Hún hefur starfað við margt og hefur sú reynsla nýst henni vel í rekstrinum.  Segist hún hafa haft gott auga með smáatriðum, því það eru þau sem geta ráðið því hvort viðskiptavinurinn sé ánægður með þjónustuna.

Söndru hefur alltaf fundist það vera mikill munaður að hafa alist upp á Hornafirði ásamt því að eiga fjölskyldur þar  og geta skroppið heim reglulega. Segir hún að fólkið á Hornafirði sé eins og stór fjölskylda og það sé alltaf gaman að rekast á Hornfirðinga á förnum vegi í Reykjavík. 

101 Hárhönnun hélt styrktardag til styrktar krabbameinsfélaginu Framför sem er félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli. Heppnaðist dagurinn mjög vel og tókst að þéna tæplega 330 þúsund krónur sem rann óspart til Framfarar. Sandra segir að þetta hafi verið mjög gefandi og hlakkar hana til að halda anna styrktardag í framtíðinni.

 

Sandra sendir lyklaborðið til Sigríðar Helgu Axelsdóttur

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica