Um okkur
Um okkur
Fyrir 1950 rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón myndast. Meðalrennsli árinnar er 250-300 m³/sek. og stórir ísjakar brotna af jökuljaðrinum, sem er á floti í vatni. Lónið er feikidjúpt, a.m.k. 190 m. Áin styttist stöðugt vegna brimrofs og árið 1998 var hún varla meira en 500 m. Yfirborð lónsins hefur lækkað stöðugt, þannig að nú gætir sjávarfalla í því. Það þýðir einfaldlega, að hlýrra vatn streymir inn í það á flóði og ísinn bráðnar mun hraðar en fyrrum. Bæði loðna og síld ganga inn í lónið og selurinn eltir ætið. Víða má sjá æðarfugl syndandi milli jakanna. Það er ógleymanlegt að sigla með bátunum um lónið og virða fyrir sér litaskipti íssins og ótrúlegar höggmyndir náttúrunnar.
Við bjóðum upp á ferðir út á lónið í hjólabátum og einnig rekum við lítið huggulegt veitingahús á staðnum þar sem hægt er að fá hina frægu sjávarréttasúpu sem m.a. er búin til úr fiski úr lóninu.
Daglegar ferðir eru á hverjum degi yfir sumarið og er það Vatnajökull travel sem heldur þeim áætlanaferðum tengdum Skálafellsjökli.


