Jólagestir

Yrma,-Svala-og-Svanur

Jólagestur - Yrma L Rosas - 23.12.2012 Fréttir

Yrma kom til landsins árið 2006 frá Perú og þá hafði hún kynnst manninum sínum honum Jóhanni Pétri Kristjánssyni og ákvað að fylgja honum hingað til Íslands.

Lesa meira
 
Mahder

Jólagestur - Mahder Zewadu - 22.12.2012 Fréttir

Mahder kom Íslands árið 2005 frá Eþjópíu til að starfa sem au-pair í eitt ár og skoða sig um í heiminum. Mahder ólst upp í höfuðborg landsins Addis Ababa en í henni búa um 5 milljónir manns. Borgin er  fjölmenningarleg, um 80 tungumál eru töluð í borinni.

Lesa meira
 
202714_10151109424802435_533667111_o

Jólagestur - Elisabeth Krüger - 21.12.2012 Fréttir

Elisabeth kom til Íslands frá Þýskalandi haustið 2006 og var það ævintýraþráin sem dró hana til Íslands. Elisabet er alin upp í litlum bæ í Saxlandi. Á aðventunni kemur fjölskyldan mikið saman, bakar, föndrar og á saman góða stund. Það sem einkennir ekki síst jólahald á heimaslóðum Elisabethar og löng hefð fyrir eru jólamörkuðum utandyra þar sem mikill fjöldi fólks kemur saman, drekkur jólaglögg eða það sem þjóðverjar kalla „Glüwein“.

Lesa meira
 
Amor Pepito ásamt dóttur sinni

Jólagestur - Amor Pepito Mantilla - 20.12.2012 Fréttir

Jólagesturinn Amor kom til Íslands árið 2005 frá Filippseyjum. Jólin eru langstærsta trúarhátíð landsins ásamt páskum og fara þau að minna á sig mun fyrr en hér á Íslandi. Strax í september eru jólatrén sett upp bæði á heimilum og úti í samfélaginu. Tíu dögum fyrir jól eru næturmessur fram á aðfangadag. Ef þú sækir þær allar getur þú óskað einhvers og átt von á að ósk þín rætist frekar en aðrar óskir.

Lesa meira
 
Hólmgrímur E. Bragason

Kæru Hornfirðingar - 24.12.2010 Jólagestir

Nú eru jólin að koma. Við þekkjum flest jólaguðspjallið, þá fallegu frásögn sem svo mörgum þykir vænt um.  En hvaða boðskap flytur jólaguðspjallið okkur? Hvað er það sem þessi frásögn hefur að bera fram yfir aðrar frásagnir?  Lesa meira
 
Svava og fjölskylda

Ég er mikið jólabarn - 23.12.2010 Jólagestir

Ólíkt því á Íslandi þá er búið að vera mjög kalt og mikil snjókoma hérna hjá okkur og elsti sonurinn alveg í skýjunum með allan þennan snjó. Ég vil hafa snjó á Þorláksmessu og yfir hátíðina en svo má hann alveg bráðna í burtu.

Lesa meira
 
Alma og Ægir á Norðfirði

Jól í Holtagerði - 22.12.2010 Jólagestir

Það kom ekki aftur á rafmagn fyrr en kl.19:30 um kvöldið en þá kláruðum við elda.  Ég held bara að þetta hafi verið jólalegustu jólin mín hér á Hornafirði.

Lesa meira
 
Arnbjörg Sveinsdóttir

Haustið 1976 og jólin að koma - 20.12.2010 Jólagestir

Málningin mjakaðist hægt og rólega á veggi og gólf. Mikið verður gott þegar bóndinn kemur heim, helmings léttir hugsið ykkur bara

Lesa meira
 
Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir með fjölskyldunni

Það var mikið bakað fyrir jólin - 19.12.2010 Jólagestir

En niðurstaða okkar er nú samt  sú, að þó að það sé alltaf best að vera heima, þá er aðalatriði að vera með fjölskyldu sinni um jólin, því að jólaandinn kemur  innan frá og við getum skapað hann hvar sem að við erum.

Lesa meira
 
Heiður Kristjana Sigurgeirsdóttir og Sindir Sigurgeir

Njótið aðventunnar - 18.12.2010 Jólagestir

Okkur finnst alveg nauðsynlegt að prófa a.m.k eina nýja smákökuuppskrift eða tertuuppskrift fyrir hver jól. Þá verður oft eitthvað girnilegt úr Gestgjafanum eða Nóa Siríus bæklingi fyrir valinu. Sumar nýjungarnar verða svo ómissandi næstu ár

Lesa meira
 
Óskar Arason og fjölskylda

Gaman er að upplifa jólin í gegnum börnin sín - 17.12.2010 Jólagestir

Rykið var ekki dustað af seríum og öðru slíku fyrr en viku fyrir jól og jólatréð var látið dúsa inn í bílskúr þar til á Þorláksmessukveldi, þá var það dregið inn á stofugólf og glingrið hengt á greinar þess undir dynjandi jólakveðjum Gerðar G. Bjarklind. Lesa meira
 
Ingunn Ólafsdóttir

Engin jól án rjúpu - 16.12.2010 Jólagestir

Ég hef alltaf verið og er enn logandi hrædd við fugla, bæði lifandi og liðna.

Lesa meira
 
Jólagestur

Eitt er það sem við gerðum alltaf, en það var að fara á jólaball á Mýrunum - 14.12.2010 Jólagestir

En auðvitað man maður þó eftir einstaka jólagjöfum eins og t.d. slökkvibíl sem gekk fyrir batteríum og bangsa sem er til enn í dag . Lesa meira
 
Jólagestir

Jólin okkar - 11.12.2010 Jólagestir

Við höfum haldið jólin okkar saman í 19 ár, ein jólin héldum við reyndar í Reykjavík hjá foreldrum okkar í Gyðufellinu, en það var árið sem Kiddi okkar fæddist, en hann er fæddur á Þorláksmessu 1995.

Lesa meira
 
Jólagestur

Við kveiktum alsæl á litlu kertunum okkar - 10.12.2010 Jólagestir

Ég ætla hér að deila með ykkur nokkrum bernsku minningum sem flestar tengjast jólunum.  Ég er fædd á Vagnstöðum í Suðursveit og alin þar upp til fullorðins ára. Lesa meira
 
SiggiPalli

Jólin voru alltaf skemmtileg - 09.12.2010 Jólagestir

Jólin hjá Sigga Palla voru alltaf skemmtileg, verandi skilnaðar barn fékk ég alltaf tvöföld jól. Fyrripart hjá mömmu í mat og pakka svo yfirt til pabba. Þetta henntaði mér ágætlega verandi ferkar mikið jólabarn, þó að það hafi eldst af mér eitthvað.

Lesa meira
 
Halldóra Hrund Guðmundsdóttir

Jólin eru uppáhalds tíminn minn! - 08.12.2010 Jólagestir

Þetta er  í fyrsta skipti sem við erum hérna á Höfn í kringum jólin þar sem við fluttum hingað í september. Dvölin hér varir nú bara í 7 mánuði þar sem ég er að leysa héraðsdýralækni af á meðan hún er í barneignafríi. Lesa meira
 
Jóladrengirnir

Hó Hó Hó Merry Christmas - 07.12.2010 Jólagestir

Þegar ég hugsa til baka eru jólaböllin hjá varnarliðinu á Stokksnesi er mér efst í huga.

Lesa meira
 
Ágústa með fjölskyldunni

Jólin mín - 06.12.2010 Jólagestir

Ég ætla að njóta augnablikanna brosandi.  Njóta kuldans með því að klæða mig vel eða kúra undir teppi með heitt kakó eða súkkulaði kaffi. Njóta myrkursins með því að kveikja á fallegum ljósum og kertum.  Njóta aðventunnar hátíðlega með fólkinu sem ég elska. Og ég vona að allir í heiminum geti gert hið sama, ég  óska öllum góðrar aðventu og gleðilegra jóla.

Lesa meira
 
Arnborg S. Benediktsdóttir

Þannig viljum við hafa jólin okkar, kærleiksrík og ljúf. - 05.12.2010 Jólagestir

Jólin, hátíð ljóssins nálgast. Ég finn jólin koma nær og nær. Ef ég er heppin fæ ég eitt og eitt jólakort á vinnuborðið mitt  löngu fyrir aðventuna.

Lesa meira
 
Erna Gísladóttir

Jólin mín fyrr og nú - 04.12.2010 Jólagestir

Nú í byrjun desember fer undirbúningur jólanna að  komast á fulla ferð og spennan og eftirvæntingin að aukast, bæði hjá börnum og fullorðnum. Það er svo gaman að sjá að allur aldur tekur þátt í spennunni.

Lesa meira
 
Katrín Birna Þráinsdóttir í Bjarma Berg

Þegar Trölli stal jólunum - 03.12.2010 Jólagestir

Kannast ekki allir við söguna Þegar Trölli stal jólunum ?

Hvernig væri aðventan og jólin ef við gæfum okkur tíma til að njóta þeirra ?

Lesa meira
 
Guðrún Ingimundardóttir með ömmubörnin

Það var óbrigðult að jólin voru handan við hornið þegar amma setti stóra jólalampann í stofugluggann sinn. - 02.12.2010 Jólagestir

Fyrstu minningarnar eru frá æskuheimilinu þar sem búið var á nokkrum bæjum og þar á meðal afi minn og amma ásamt frændum og frænkum. Það var óbrigðult að jólin voru handan við hornið þegar amma setti stóra jólalampann í stofugluggann sinn, en hann blasti við eldhúsglugganum heima hjá okkur.

Lesa meira
 
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir

Líður að jólum - 01.12.2010 Jólagestir

Þá er fyrsti sunnudagur í aðventu liðinn og ég búin að koma upp aðventuljósum heima hjá mér, en í mínum huga er aðventan yndislegur tími. Að fylgjast með jólaljósunum koma upp um allan bæ og sjá hversu fjölbreytt þau eru finnst mér gaman. Lesa meira
 
Sr. Hólmgrímur Elís Bragason

Á jólum finnum við fyrir nálægð frelsarans. - 25.12.2009 Jólagestir

Nú höldum við heilög jól. Hátíðin er gengin í garð með öllu tilheyrandi.  Hátíðin sem gengur út á það að fagna fæðingu frelsarans, gleðjast, eiga yndislegar stundir með okkar nánustu, fara í jólaboð til þess að hlæja með fólkinu okkar, borða góðan mat og svo mætti lengi telja.

Lesa meira
 
Fjölnir Torfason Hala

Þegar ég var fjögurra ára - 24.12.2009 Jólagestir

Það var spenna og órói sem færðist yfir ungdóminn í sveitinni þegar jólin nálguðust. Spennan stafaði af tilhlökkun um skemmtilega daga, en óróinn stafaði af því hversu tíminn var lengi að líða.

Lesa meira
 
Klaus Kretzer

Á aðfangadag jóla var svo stofunni læst og enginn nema pabbi og mamma máttu fara inn. - 23.12.2009 Jólagestir

Hjá okkur kom jólasveinninn aðeins einu sinni í desember, þann sjötta, með gjafir eða, ef börnin voru óþæg, þá hafði hann aðstoðarmann með sér sem Knecht Ruprecht hét (ísl. þrællinn Ruprecht).

Lesa meira
 
Haukur Ingi Einarsson, Berglind Steinþórsdóttir og Tómas Nói

Það var alltaf snjór á Hala jólunum, svona í minningunni allavega. - 22.12.2009 Jólagestir

Það var einnig gott að fara til ömmu og afa þegar biðin eftir jólunum var orðin mikil, þá var nú mikill spenningur í mannskapnum og lætin eftir því.

Lesa meira
 
Haukur Ingi Einarsson

Jólin hjá afa og ömmu - 22.12.2009 Jólagestir

Í allri umræðu um erfiðleika í efnahagsmálum landans er nauðsynlegt að minnast þess hvernig tímarnir voru hér áður fyrr og leggja mat á það hvernig og hvort tímarnir hafi breyst til hins betra eða verra. Lesa meira
 
Signý Guðmundsdóttir

Ég naut þeirra forréttinda þar sem ég var yngst að fara fyrst í baðið og síðan strákarnir eftir aldri. - 21.12.2009 Jólagestir

Oftast fengum við, bræður mínir þrír og ég, ný föt fyrir jólin og á aðfangadag klukkan fjögur (e.h) vorum við drifin í bað í stóran trébala sem komið var fyrir á stofugólfinu og baðvatnið hitað á eldavélinni. Ég naut þeirra forréttinda þar sem ég var yngst að fara fyrst í baðið og síðan strákarnir eftir aldri. Lesa meira
 
Særós Ester Leifsdóttir

Jólin eru góður tími til að njóta - 20.12.2009 Jólagestir

Þegar við sátum í mestu makindum að gæða okkur á íslenskum hamborgarahrygg, voru Spánverjarnir úti að skemmta sér, dansandi og syngjandi á götum úti framundir morgun, ungir sem gamlir.

Lesa meira
 
Kristín Gestsdóttir

Enn í dag drekk ég rjómasúkkulaði á jóladag - 19.12.2009 Jólagestir

Á mínu heimili byrja jólalögin að hljóma í nóvember. Verið er að æfa jólalögin sem spiluð eru fyrir Hornfirðinga á aðventunni... þannig hefur það verið hjá okkur frá því að við settumst hér að árið 1986. Lesa meira
 
Svava Herdís Jónsdóttir

En jólin eru í minni minningu afskaplega yndislegur tími róleg, áhyggjulaus og góð. - 18.12.2009 Jólagestir

En ósköp var nú tíminn samt stundum lengi að líða og kannski sérstaklega á aðfangadag, þá tóku gjafir og tilhleypingar alveg óheyrilega langan tíma og svo þurfti að mjólka um kvöldið alveg eins og á virkum degi ! Lesa meira
 
Sigríður Kristinsdóttir

Jólin eru góður tími, hátíðleiki og gleði og ég hlakka alltaf til jólanna.  - 17.12.2009 Jólagestir

Var þetta einstaklega hátíðleg stund og heilagleikinn kominn í hjartað þegar farið var heim

Lesa meira
 
Birnir Smári Hauksson og fjölskylda

Jólin hérna í Færeyjum eru í raun svipuð og jólin í Miðtúninu - 16.12.2009 Jólagestir

Ég verð ekki var við mikið jólastress hjá færeyjngum, þeir hafa einhverja ró yfir sér.

Lesa meira
 
Fjölskyldan í Miðtúni 8

Það er margs að minnast frá jólum fyrri ára og ég gæti sagt frá svo mörgu. - 15.12.2009 Jólagestir

Ég gæti sagt ykkur frá því þegar ég komst í machintosið hennar Guðnýjar (sem hún hafði falið á besta stað) og svo faldi ég mig undir sófanum þar sem enginn sá mig og át alla bestu molana. Lesa meira
 
Sigrún Sveinbjörnsdóttir

Jólin í Dunhaga - 14.12.2009 Jólagestir

Ég varð svo fjúkandi reið yfir þessu og sagði mömmu að láta hann éta alla bitana aftur og hann ætti að tyggja þá í þetta sinn.

Lesa meira
 
Maríus Máni

Kanaböllin eru sterk í minningunni en þar fékk maður allt sem mann langaði í. - 13.12.2009 Jólagestir

Ég hef alla tíð verið mikið jólabarn þar sem ég ólst upp á miklu jólaheimili. Allt var þrifið hátt og lágt inni í skápum og alls staðar. Bakaðar margar sortir af smákökum, randalínur hvítar og brúnar, ísar og frómasar í lítratali. Lesa meira
 
Jón Kristján Rögnvaldsson_mynd

Gömul saga og ný - 12.12.2009 Jólagestir

Ég hugsa að það sé ekki á neinn hallað þegar ég fullyrði að mamma hafi séð um jólaundirbúninginn frá A-Ö enda var alltaf allt eins og það átti að vera og aldrei klikkaði neitt, nema þegar við pabbi náðum að hafa upp á öllu konfektinu og klára það á undan áætlun í hinu árlega óopinberlega jólakapphlaupi í leynikonfektbirgðirnar hennar mömmu.

Lesa meira
 
Anna Egilsdóttir

Þegar bæjarstjórinn stal jólagæsinni - 11.12.2009 Jólagestir

Við höfðum svo snör handtök með að setja fyllingu í hana og krydda og þegar hún var svo komin á jólaborðið, bragðaðist hún betur en allar aðrar jólagæsir.

Lesa meira
 
Kristín Gísladóttir

Minnisstæðustu jólin mín eru þegar ég fékk skautana - 10.12.2009 Jólagestir

Ég er uppalin í Grundarfirði og er elst af fimm systkinum.  Mesti spenningurinn var á Þorláksmessu. Dagurinn byrjaði með skötuveislu í hádeginu, skatan var vel kæst. 

Lesa meira
 
Þóra Jóna Jónsdóttir

Jól í sveitinni - 09.12.2009 Jólagestir

Fannhvítur snjór liggur yfir jörðinni, himininn er heiður, kyrrð og friður fyllir loftið, en samt er óróleiki og  spenna í lítilli sál

Lesa meira
 
Þóra V. Jónsdóttir

Hugleiðing á aðventu - 08.12.2009 Jólagestir

Ég læt hugann reika aftur í tímann, svona rúmlega 50 ár. Ég á góðar minningar frá æskuárunum og jólahaldi þess tíma

Lesa meira
 
Binni með jólakortin og litabókina

Jól, snjór og rafmagnsleysi - 07.12.2009 Jólagestir

Ég tel mig nú vera heilmikinn jólaundirbúningsmann, en eins og flestir Hornfirðingar orðið vita þá geri ég mitt besta til að Austur-Skaftfellingar og aðrir landsmenn byrji snemma að undirbúa þessa stóru hátíð með jólakortabröltinu í mér.

Lesa meira
 
Sessilía Sól

Mér til mikillar undrunar og gleði þá átti ég nánast alla pakkana. - 06.12.2009 Jólagestir

 

Ég ólst upp í sveit í Eyjafirði með kýr, hesta og kindur. Fór ég alltaf í fjós með mömmu og pabba að hjálpa til. Þegar ég var nógu gömul til að vera ein inni fékk ég að sleppa við kvöldmjaltirnar á aðfangadag.

Lesa meira
 
Jólabörn

Aðventan og jólin eru yndislegur tími og hafa alltaf verið það í minningu minni. - 05.12.2009 Jólagestir

Yndislegast finnst mér þó alltaf hvað allir eru glaðir og jákvæðir í desember og nýtur maður þess að vera innan um fólk á allskyns jólasamverum, tónleikum og öðrum uppákomum sem eru í boði Lesa meira
 
Kristín Jónsdóttir

Jólin mín - 04.12.2009 Jólagestir

Í minningunni var alltaf snjór á jólunum, mikil dýrð og gleði.

Lesa meira
 
Gunnlaugur Bragi Björnsson

Nú nálgast tuttugustu og fyrstu jólin óðfluga. - 03.12.2009 Jólagestir

Fyrir ekki svo mörgum árum átti ég mjög erfitt með að skilja hvernig foreldrar mínir gátu borðað svona hægt og gefið sér tíma til að vaska upp eftir matinn – vitandi af öllum þessum spennandi pökkum í stofunni!

Lesa meira
 
Hófý Traustadóttir

Í mínum huga eru jólin okkar hátíð ljóss og friðar hvar og hvernig sem við erum. - 02.12.2009 Jólagestir

Minning mín um jól í litla húsinu okkar á Breiðabakka í Vestmannaeyjum eru böðuð í ljóma eins og ég man þau.

Lesa meira
 
Valgerður Hanna Úlfarsdóttir

Snjór, snjókarlar og snjóhús - 01.12.2009 Jólagestir

Desembermánuður er yndislegasti mánuður ársins því ég hef alltaf verið mikil jólastelpa í mér

Lesa meira
 
Ólafía Hrönn Jónsdóttir

Hitta annað fólk með kærleiksblik í augum og óska öllum gleðilegra jóla - 24.12.2008 Jólagestir

Þetta eru einstaklega rúmgóð jól hjá mér í ár. Ég kláraði að leika tvær sýningar i desember og er ekki að æfa neitt þannig að ég hef haft nægan tíma til að undirbúa jólin. Enda er langt síðan ég var búin að öllu. Jólatréð er löngu skreytt og búið að vera með ljósum síðan 5.des. Dóttir mín María 9 ára sá alveg um það. Þegar ég sagði að fólk gerði þetta yfirleitt á Þorláksmessu þá sagði hún bara "og mamma so what" Og ég var sammála. Ég hugsa að þetta hafi verið frekar sparnaðarspekúlantsjónir heldur en skírar jólareglur. Ég baka aldrei fyrir jólin þannig að ekki var það að flækjast fyrir mér og síðan er ég í bandalagi við jólagafafélaga mína að jólagjöfin megi ekki fara yfir 1ooo kall. Lesa meira
 
Árnína og móðir hennar

Uppskrift að hamingju - 23.12.2008 Jólagestir

Bernskuminningar mínar um jólin eru mjög ánægjulegar og fullar af tilhlökkun, gleði og þakklæti. Ég tel mig líka heppna, því ég hef kynnst hefðum af nokkrum heimilum á uppvaxtarárunum. Þessar minningar eru mér afar dýrmætar og ætla ég að leyfa ykkur að skyggnast aðeins inn í þær. Nokkrum jólum eyddum við pabbi hjá Gunnu ömmu og Hirti afa, þar var ekkert öðruvísi en hjá flestum um jólaleytið, fullt af hefðum. Um kaffileytið á aðfangadag fór afi alltaf til Steingríms kaupmanns til að sækja epli, appelsínur, malt og appelsín. Ein jólin stakk pabbi uppá því að við myndum fara með afa en ég bað um að fá að vera heima þennan hálftíma, og var það látið eftir mér. Ég var sko búin að ákveða að nýta tímann vel og sortera alla pakkana! Amma var að vinna þennan aðfangadag uppi á Skjólgarði og var ekki von á henni heim fyrr en seint um kvöldið. Lesa meira
 
Nökkvi Jóhannesson

Jólaminningin - 22.12.2008 Jólagestir

Ætli það sem komi ekki fyrst í hugan þegar ég hugsa til bernskujólanna, sé kökuilmur. Mamma byrjaði að baka á aðventunni og þar sem ég er dálítið eldri en systkini mín sat ég einn að jólasmákökunum fyrstu árin. Þegar ég var kominn á unglingsár og systkinin farin líka að höggva stór skörð í kökuboxin, var reynt að banna okkur að klára kökurnar fyrir jólin. Mamma reyndi jafnvel að fela boxin eða líma aftur lokin en það hafði ekkert að segja, það var yfirleitt lítið eftir af kökunum á aðfangadag. Þegar mamma sá að þetta hafði ekkert uppá sig og leyfði okkur að ganga sjálfala í kökudallana, þá hætti þetta og það var nóg til af kökum um jólin, en þá voru þær heldur ekki borðaðar því það voru allir svo mettir af kjöti og konfekti. Lesa meira
 
Árni Rúnar Þorvaldsson og börn

Jól í útlöndum og Spotted .... - 21.12.2008 Jólagestir

Ekki get ég sagt að ég eigi einhverjar sérstakar minningar tengdar jólunum úr æsku aðrar en þær að þetta hafi að mestu verið notalegur og skemmtilegur tími. Ég minnist þess þó að móðir mín og móðurafi hafi alltaf verið upptekin í kórastarfi á jólunum og eftir þeim þurfti mikið að bíða, t.d. á aðfangadag - það var vont. En þau skiluðu sér þó seint og um síðir - að okkur fannst - og þá var hægt að hefja hefðbundið jólahald. Þessar minningar útskýra sennilega hvers vegna ég hef á mér allan vara og hef hinar ýmsu efasemdir um ágæti hvers kyns kórastarfs. Lesa meira
 
Gudbjörg Stefánsdóttir

Hann fór aðeins í spariföt á jólunum og við jarðafarir. - 20.12.2008 Jólagestir

Þegar ég var barn voru jólin mjög frábrugðin þeim jólum sem ég held með fjölskyldu minni í dag . Jólaundirbúningurinn hófst í enda nóvember með laufabrauðsbakstri heima hjá systur mömmu. Ég fékk að fletja út kökurnar með henni snemma morguns svo eftir hádegi komu allir saman og skáru út, laufabrauðsbaksturinn tók alltaf heilan dag. Ég man lítið eftir öðrum undirbúningi fyrr en á aðfangadag þá byrjaði póstburðurinn, ég og vinkona mín töltum alltaf um þorpið og bárum út jólakortin fyrir vini og vandamenn og skoðuðum jólaljósin í leiðinnni og við vorum ekki sáttar ef einhver var búin að breyta til frá síðast. Á þessum tíma var aldrei skreytt fyrr en á Þorláksmessu. Lesa meira
 
Jenný Reynisdóttir

Allt varð að vera tandurhreint og fágað áður en jólin gengu í garð - 19.12.2008 Jólagestir

Minning mín um jólin þegar ég var að alast upp í Reykjavík er sú að það var mjög mikið um að vera og það þurfti að þrífa alla íbúðina hátt og lágt, allt varð að vera tandurhreint og fágað áður en jólin gengu í garð . Svo var bakaðar lifandi býsn af tertum og smákökum sem settar voru í kökustauka og límt vel fyrir því ekki mátti snerta á þeim fyrir en um jólin. Mamma saumaði jólafötin á okkur krakkana, og það var alltaf tilhlökkun að fá ný föt, en ekki fannst mér nú jafn gaman að þurfa alltaf að vera að máta þau, ( það er nú annað í dag). Lesa meira
 
Steinunn Benediktsdóttir og Kristján Júníus

- við þurftum að leggja okkur eftir hádegi á aðfangadag - - 17.12.2008 Jólagestir

Mig langar að minnast jólahalds eða brota úr því sem situr eftir fyrir svona hálfri öld en þá var ég níu ára gömul. Ég ólst upp á góðu sveitaheimili eða á Miðskeri í Nesjum. Á þessum árum var nú ekki mikill íburður eða jólaskraut, þetta er á þeim tíma sem við fengum kannski kerti og spil og eina og eina bók eða fallega sokka og vettlinga í jólagjöf. Mamma saumaði á okkur falleg jólaföt jafnvel upp úr gömlum fötum en alltaf fengum við ný nærföt og náttföt. Okkur þótti alltaf mjög vænt um það sem við fengum. Ekki var komið rafmagn á bæina í Nesjum nema kanski eitt og eitt heimili og voru þá heimarafstöðvar hjá þeim framsýnustu. Húsið heima var kynt með olíu en alltaf var slökkt á kyndingunni á næturnar svo stundum var ansi kalt þegar farið var á fætur. Ljósin voru olíulampar, gasluktir eða kerti. Það varð að umgangast ljósin með mikilli aðgát og það voru lítil kerti á jólatrénu sem fengu litla stund að lifa við allra heilugustu stundirnar. Lesa meira
 
Lilja Aradóttir

Jól bernsku minnar - 16.12.2008 Jólagestir

Þegar leið á jólaföstu hófst jólaundirbúningurinn. Allir unnu af kappi því mikils þurfti með á stóru heimili. Við börnin hjálpuðum til eftir bestu getu hvers og eins. Í frístundum okkar þurfti líka að huga að ýmsu hjá okkur systkinunum. Við pukruðumst með smádót úti í hornum, við vorum að útbúa jólagjafir til að gefa á jólunum og svo þurftum við systurnar að sauma föt á brúðurnar okkar því ekki máttu þær klæða jólaköttinn sem kallað var. Við systkinin máttum heldur ekki klæða köttinn. Mamma sá um að við gerðum það ekki. Hún spann, prjónaði og saumaði fram á nætur. Ég man hvað var notalegt að sofna við rokkhljóðið hjá mömmu á kvöldin þegar ég var orðin þreytt á að basla við að prjóna spjarir (leppa) til að gefa einhverju systkina minna innan í jólaskóna. Og niðri í kjallara heyrðist hefilshljóð hjá pabba. Hann kepptist við að smíða smáhluti sem komu svo óvænt á aðfangadagskvöld. Lesa meira
 
Katarzyna Irena með dætrunum Oliviu Emmu og Vanessu Irrr

Eins er lagt á borð fyrir einn auka - það er fyrir óboðinn gest. - 15.12.2008 Jólagestir

Ég heiti Katarzyna og kem frá hafnarbæ í Póllandi sem heitir Gdynia. Þangað komu gjarnan hornfirskir bátar í slipp og flutti ég til Hafnar 1997 til að vinna hjá Skinney og er hér enn! Nú bý ég hér með eiginmanninum Greg og tveimur dætrum okkar Oliviu Emmu og Vanessu Irr. Fjórum vikum fyrir jól byrjar aðventan og fyrir kaþólikka þá byrjum við að bíða eftir Jesú og jólunum í hjörtum okkar. Þessi tími fyllir okkur gleði því við vitum að þá endurfæðist Jesú fyrir okkur. Á jólunum safnast saman öll fjölskyldan eins og hægt er. Fyrir jólin eru settar upp í búðunum stórar körfur þar sem stendur "kauptu eitthvað fyrir aðra líka" og setur maður þá í körfurnar mat eða annað sem síðan er dreift til þeirra sem þurfa. Það þarf ekki að vera mikið. Einnig getum við látið prestinn okkar fá mat og gjafir og kemur hann því til skila þar sem hann þekkir best hvar þörfin er mest. Á aðfangadag stendur svo sveitarfélagið fyrir Stol Wigilijny, jólahlaðborði, út á götu fyrir þá sem eru svangir og fátækir. Lesa meira
 
Wellah Magno

Jólin okkar á Filipseyjum - 14.12.2008 Jólagestir

Jól á Íslandi eru ólík jólunum sem við höldum á Filipseyjum, aðrir siðir og venjur. Ég kem frá bæ sem heitir Compostela sem er í 45 mínútna fjarlægð frá borginni Cebu fuente Osmena. Í Filipseyjum við byrjum að setja upp jólaljós í september, þá er farið að kólna og við finnum þá að jólin eru að nálgast. Við setjum líka upp fjárhúsið í Betlehem með líkneskjum af Jesú, Maríu og Jósef í fullri stærð í görðunum okkar þegar nær dregur jólum. Svo er keppni í jólaskreytingum og keppast allir við að skreyta sem mest og hafa sem mest af ljósum. Í borginni Cebu Fuente Osmena er sett upp ristastórt jólatré í miðbænum sem er 40 metra hátt! og gaman að fara þangað. Jólasveinninn kemur til okkar á aðfangadag, bankar upp á og gefur börnunum gjafir, honum fylgir líka gerfisnjór sem er dreift í kringum hann jafnóðum - því hann kemur jú að norðan! Lesa meira
 
Nína Sybil Birgisdóttir

-í pakkanum var þessi líka fallega dúkkulísa sem ég hefði alls ekki viljað missa af - 13.12.2008 Jólagestir

Í minningu minni um jólin er margt sem flestir íslendingar kannast við. Eplailmurinn, mandarínur, góður matur og mikil tilhlökkun. Ekki fannst okkur vera komin jól fyrr en skötulyktin lá yfir öllu á Þorláksmessu. Í Ólafsvík þar sem ég ólst upp er einn siður sem ég held að sé ekki annars staðar á landinu. Á þrettándanum klæddum við okkur upp í grímubúninga sem álfar. Við gengum í hús til að sníkja okkur eitthvað í gogginn. Græðgin var stundum svo mikil að við fórum í öll hús í bænum og vorum langt fram á kvöld, helfrosin eftir ævintýrið. Eitt er mér þó minnisstætt er ég bjó hér á Hornafirði sem lítil stelpa. Árið 1979 var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að komast á Kanaball út á Stokknesi. Lesa meira
 
Emily Rossiter

Litla Guinnessflaskan sem var skilin eftir handa jólasveininum var horfin - 12.12.2008 Jólagestir

Nollaig faoi shéan agus faoi mhaoise daoibh go léir! Svona er jólakveðja frá mínu heimalandi, Írlandi. En hvað það er gaman að hugsa til baka til jólanna sem voru allt öðruvísi en ég upplifi á Íslandi! Aldrei hvít jól! Lifandi jólatré með heimaföndruðu skrauti. Jólaviður með sín oddhvössu laufblöð og skærrauð ber, tákn um þyrnikórónu Jesú og blóð hans. Eitt kerti út í glugga til að bjóða velkomna þá sem gætu þurft á skjóli að halda, eins og María og Jósep þurftu. Þegar maður hafði aldur til, var farið með í miðnæturmessu í stóra kirkju með fallegum söng og tónlist. Eftir að hafa reynt að halda sér vakandi allt kvöldið til að mæta í messu, átti aldeilis að reyna að halda áfram að vaka til að fylgjast með er jólasveinninn sjálfur kom með gjafirnar. En það endaði alltaf eins. Lesa meira
 
Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og hluti fjölskyldunnar des. 2007

Það var notalegt að sofna við suðið í saumavélinni - 11.12.2008 Jólagestir

Þegar ég var beðin um að vera jólagestur og rifja upp bernskujólin, fóru minningarnar á flug og margt sem kom upp í hugann, þegar ég var að alast upp - telpuskottið heima á Eyrarbakka. Flestir ungarnir voru flognir úr hreiðrinu nema tveir af bræðrunum og við tvær yngstu systurnar 8 og 10 ára Við tókum alltaf virkan þátt í jólaundirbúningnum - baka smákökurnar, þrífa eldhússkápana og setja í þá spánýjan hillupappír og festa jólablúndu framan á hverja hillu með teiknibólum og föndra jólagjafirnar. Mamma með okkur systurnar í Kaupfélaginu á Selfossi, að versla efni í jólagjafirnar, sem við fengum að gera sjálfar, með hennar hjálp handa 7 uppkomnum systkinum okkar og þeirra börnum. Lesa meira
 
Desember 2006

Jólin heima og heiman - 10.12.2008 Jólagestir

Frá barnæsku til þess að við hjónin fluttum til Svíþjóðar árið 1979 með Völu, þá 2ja ára, voru jólin hjá mér með þeim hætti sem flestir íslendingar þekkja, stigmagnandi stress þar til jólin detta inn kl. 18 á aðfangadag með messu og mat. Á Stapa fengu kýrnar og ærnar matinn fyrst eins og gerist og gengur til sveita. Fyrstu jólin lærðum við að sinn er siður í hverju landi og nú vorum við allt í einu bara þrjú, fjarri stórfjölskyldunni á Stapa. Við ætluðum þó að halda okkar striki, þvo þvott og gólf, skreyta, pakka inn gjöfum og elda mat fram til kl. 18. Þennan fyrsta aðfangadag okkar í Svíþjóð svona um tvöleytið vorum við að þvo í þvottahúsinu sem var sameiginlegt fyrir stóran hluta af stúdentagarðinum. Þar mættu okkur leikfélagar Völu, í jólafötunum, búnir að taka upp pakkana og farnir að bíða eftir að horfa á teiknimyndasögurnar í sjónvarpinu kl 4. Þeir voru búnir með jólin. Lesa meira
 
Þórey Bjarnadóttir

..auðvitað gætu þeir allt, þeir eru nú jólasveinarnir - 09.12.2008 Jólagestir

Jólaminningar, já þá kemur nú ýmislegt upp í hugann. |nl|Í mínum huga tengist jólahátíðin óneytanlega sveitinni og hvergi finnst mér jólalegra en heima á Kálfafelli. Koma labbandi úr fjárhúsunum og sjá jólaljósin heima í bæ. Kindurnar tengjast þá jólaundirbúningnum líka, þar sem aldrei er eins mikið að gera hjá hrútunum en akkúrat á aðventunni. Til að einhver lömb komi um vorið verða bændur að tryggja það að hrútarnir vinni sitt verk. Þess vegna er þetta hluti af mínum jólaundirbúningsminningum að veltast með hrúta milli króa. Lesa meira
 
Chiharu Kawai

Ég fékk bara sjokk þegar ég borðaði skötu hjá ömmu Júlíu á Þorláksmessu - 08.12.2008 Jólagestir

Jólin í Japan eru allt öðruvísi heldur en hér á Íslandi. Þau eru meira svona "fjölskylduhátíð" í Japan. Um það bil 85% af japönum eru hvorki búddatrúar né kristnir, þannig við hugsum ekkert um Jesú eða eitthvað sem tengist kristinni trú um jólin. Árið sem ég kom til Hornafjarðar, hélt ég jól hjá Heiðu og Begga. Það var allt annað en jólin hjá okkur í Japan sem er bara fínt, en ég fékk bara sjokk þegar ég borðaði skötu hjá ömmu Júlíu á Þorláksmessu. Ég er hrifin af flestum íslenskum mat en skata var alls ekki góð, en mér finnst íslenskur jólamatur bara góður og ég er sérstaklega hrífin af hangikjöti. Ég kaupi það alltaf þegar ég fer til Japan og gef fjölskyldunni minni að smakka og allir elska hangikjöt og grænar baunir. Lesa meira
 
Regína Hreinsdóttir

Ég hef alltaf haft mikið dálæti á hrekkjóttu, íslensku jólasveinunum - 07.12.2008 Jólagestir

Mér finnst eins og allt hafi alltaf verið alveg eins á jólunum heima þegar ég var lítil. Veit svo sem ekki hvort aðrir fjölskyldumeðlimir myndu taka undir það. Það var til dæmis alltaf borðað kl. 18 á aðfangadagskvöld. Það var alltaf mjög hátíðleg stund og við systurnar vorum alltaf í nýjum kjólum sem mamma hafði einhversstaðar fundið tíma til að sauma. Við fórum alltaf í bað á Þorláksmessu og fengum ný náttföt og lögðumst í tandurhreint rúm. Við fórum líka alltaf í mat til afa og ömmu á milli jóla og nýárs þar sem allt fallega jólaskrautið var á nákvæmlega sama stað og árið áður. Lesa meira
 
Ásdís Erla Ólafsdóttir

- og mamma var búin að setja upp hvítu blúndusvuntuna - - 06.12.2008 Jólagestir

Í minningunni eru jólin mér mjög kær það var svo gaman að vera barn og upplifa jólin, en í dag er ég í sjálfu sér ekkert sérlega mikil jólamanneskja, ég þarf ekki endilega að fara eftir einhverjum hefðum, heldur bara svona geng í gegnum þessa hátíð á frekar óhefðbundinn hátt en það er samt nokkur atriði sem eru ómissandi. Við í fjölskyldunni höfum einu sinni verið á Kanaríeyjum um jól og áramót og einu sinni um áramót og það fannst mér alveg frábært. En þó fannst mér mikilvægt að koma á Hornafjörð um jólin þegar ég bjó í Rvk. Því það voru ekki almennileg jól nema að vera á Hornafirði og þá í Hlíðartúninu hjá mömmu og pabba. Lesa meira
 
Cristiane dos sontos Oliveira

Jólin mín - 05.12.2008 Jólagestir

Það er mér ánægja að fá að segja ykkur aðeins frá því hvernig við höldum jólin í Brasilíu. Við erum ekki eins skreytingaglöð í Brasilíu eins og við hér á Íslandi. Við byrjum að skreyta mun fyrr og um miðjan nóvember er allt klárt fyrir jólin. Heima við notum við aðallega styttur og þess háttar af Jesúbarninu í jötunni, þetta er jú afmælið hans. Við skreytum einnig með nátturulegum skrauti eins og blómum og svo skreytum við tréin úti með smá ljósum. Á götum og torgum er meira skreytt með ljósum og jólatrjám. Lesa meira
 
Baldur Gíslason

Nokkrar hugleiðingar um jól á Grímsstöðum, óháðar tíma og rúmi - 04.12.2008 Jólagestir

Ég get nú ekki sagt að jólahaldið heima hjá mér þegar ég var ungur sé ljóslifandi fyrir mínum hugskotssjónum. Eitt og annað kemur þó upp í hugann þegar sest er niður og hugurinn þvingaður til baka. Það sem hér fer á eftir hefur sennilega gerst, en þó ekki endilega eins og sagt er frá því, því að engir tveir hafa sömu upplifun af atburðum sem gerst hafa, en þannig er nú sagan samt skrifuð. Eitt af því fyrsta sem kemur upp í hugan er rafmagnsleysi á jólunum. Faðir minn Gísli Björnsson var rafveitustjóri á Höfn og varð hann því ásamt sínu starfsfólki að bregðast skjótt við og reyna að koma rafmagni á aftur eins fljótt og mögulegt var. Lesa meira
 
Bjarni Ólafur Stefánsson

Heyrði uppskriftina af koníaksfrauðinu í útvarpinu - 03.12.2008 Jólagestir

Aðfangadagskvöld hefur verið svo gott með sama sniði öll þau jól sem ég hef upplifað, 23 talsins. Mismargir hafa verið á heimilinu í hvert skipti, mest 7 þegar báðar systur mínar og ömmur voru heima, og minnst 3 þegar ég hef verið einn með foreldrum mínum. Öll þessi 23 ár hafa verið eldaðar rjúpur þó ýmislegt hafi verið eldað með þeim en nánar verður farið út í það á eftir. Hlustað er á messuna kl. 18 á gömlu Gufunni og maturinn byrjar almennt um það leyti. Á síðustu árum hefur sá tími sem farið hefur í borðhald heldur lengst þar sem einkasonurinn er orðinn rólegri þegar kemur að pakkaopnun. En öll 23 jólin hef ég haldið á Silfurbraut 13 og verður það snið óbreytt þessi jól. Lesa meira
 
Anna Kristín Hauksdóttir

JÓL, JÓL og fullt af þeim. - 02.12.2008 Jólagestir

Ja hérna nú eru þau að koma aftur blessuð jólin og mikið er ég fegin, búin að bíða síðan síðustu jól kvöddu okkur. Hver einustu jól skipta mig miklu máli, ég byrja að skreyta um miðjan nóvember til að geta notið jólaljósanna og skreytinganna lengur. Í minni æsku voru jólin alltaf skemmtilegasti tíminn á árinu ekki einu sinni afmælið mitt komst fram yfir jólin. Ég ólst upp í Grindavík. Aðfangadagur byrjaði á því að við systkinin (sem erum fjögur) byrjuðum á því að kíkja í skóinn okkar og svo eftir þann glaðning frá Sveinka var rokið í síðasta súkkulaðimolann í jóladagatalinu og drukkin ísköld mjólk með. Lesa meira
 
Dr Sölvína Konráðs

Hálfrar aldar jól.... - 01.12.2008 Jólagestir

Það var ekki langt liðið á jólaföstu, þegar við krakkarnir í Nesjaskóla fórum að læra utanað, ljóð og kvæði tengd hátíðinni. Til þess að muna betur ljóð dagsins hafði ég það fyrir sið að ganga spölinn frá Sunnuhvoli að Mánagarði í takt við hrynjanda ljóðsins. (Á þessum tíma var Nesjaskóli enn til húsa í Mánagarði). Ég býst við að göngulagið hafi verið hálfundarlegt, en enginn sá það í skammdegismyrkrinu, rafmagnið var nýkomið í sveitina og farið var spart með þann munað. Hvort það var á jólaföstu árið 1958 eða á einhverri annarri, var ljóð Matthíasar Jochumsonar, ?Jólin 1891? eitt þeirra sem stjúpi minn setti okkur fyrir. Lesa meira
 
Afmali-2007-029-(2)

Síðustu áratugina hafa jólin yfirleitt farið í það að koma börnunum í háttinn. - 24.12.2007 Jólagestir

Komiði öll sæl og blessuð lesendur mínir (og líka þeir sem bara lesa fyrirsögnina) Ég man ekkert markvert frá fyrri jólum. Ég ólst upp i ósköp hefðbundnu fjölskylduumhverfi í hlíðunum Reykjavík –við bjuggum í venjulegri íbúð í blokk. Ég er sem sagt ekki nógu gamall til þess að muna jól í torfbæ. Jólatré voru komin til sögunnar þegar ég var ungur. Tilefni jólanna var það sama og nú og umgjörðin mjög lík. Þegar ég var átta ára fékk ég bíl í jólagjöf, svona litla drossíu sem ekkert var hægt að gera við nema að skríða með eftir gólfinu og burra. Mér fannst þetta léleg gjöf og lét það í ljós við foreldra mína. Ég þótti vanþakklátur. Þau jól liðu í hálfgerðu fílukasti. Lesa meira
 
Þýskalandsferð Kennakórsins 2007

Rjúpnakappát bræðra minna, en þar var keppt i magni en ekki tíma - 23.12.2007 Jólagestir

Merkilegt með þessi blessuðu jól, þau eru alltaf full af hefðum, en samt svo misjöfnum. Sumir eru með hefðir er varða matinn, forréttin, eftirréttin, nú eða smákökusortir. Svo eru líka hefðir er varða jólakortin, á að opna þau strax eða á aðfangadag. Sumir senda í pósti og aðrir hafa þá hefð að keyra kortunum út sjálfir. Það er ein af hefðunum sem ég erfði því pabbi lét mig alltaf hlaupa en nú læt ég ormana mína hlaupa en sit sjálfur í bílnum og rifja upp gamlar stundir. Og svo má ekki gleyma jólaskrautinu og ljósunum. Margir eru alveg fastir á því að skreyta ekki híbýli sín fyrr en einhvern ákveðinn dag, þó svo að öll gatan sé jafnvel búinn að skreyta mörgum vikum áður, en aðrir, eins og ég, virða enginn boð og bönn eða gamlar hefðir, og vilja helst hafa jólaljósin logandi allan veturinn. Lesa meira
 
Jónína Grímsdóttir

Jólin, jólin, jólin koma senn - 22.12.2007 Jólagestir

Ég er ein af þeim sem er með allt á síðustu stundu þegar dregur að jólum. Jólakortin, þrifin, skrautið, en allt hefst þetta. Passa mig samt, að vera búin að baka smákökur fyrir 1. desember. Ég hugsa oft til bernskuáranna í Laugarási í Biskupstungum þar sem ég bjó. Frábær tími í minningunni, sérlega sumarið sem ég passaði Bjarna Harðarson, núverandi þingmann Stór-Suðursveitarsvæðisins. Lesa meira
 
Guðný Helga Örvar

Jólin sem mér eru minnisstæðust var þegar kviknaði í jólatrénu - 21.12.2007 Jólagestir

Þetta árið – eins og svo oft áður - upplifi ég desember eins og barn, því ég tel niður dagana til jóla. Á morgun er stystur sólagangur og þá fer aftur að birt sem betur fer. Ég er alltaf fegin þegar janúar er búin, því mér þykir hann alltaf kaldur og dimmur. Þegar mér var boðið að vera jólagestur fór ég að hugsa rúmlega hálfa öld aftur í tímann þegar ég var hjá ömmu, en ég ólst upp hjá henni til 11 ára aldurs, því mamma fékk berkla þegar ég var ársgömul, og dvaldi hún lengi á Vífilsstöðum og Reykjalundi. Amma átti heima í fjögurra hæða húsi í Reykjavík undir súð, eins og það var kallað. Íbúðin var ekki stór, aðeins eitt lítið herbergi með stórum glugga út á svalir, og svo ennþá minna eldhús. En það fór vel um okkur. Á þeim tíma var í húsinu starfrækt vöggustofa og barnaheimili, (Suðurborg) og var amma nokkurs konar húsvörður og fékk að vera frítt í litlu íbúðinni út á það. Einnig tók hún að sér að þvo og stífa skyrtur fyrir karlmenn og viðgerð á fötum og fleira í þeim dúr. Lesa meira
 
Stígur og fjölskylda

Fyrir mér eru þetta jólin og myndi ég ekki vilja skipta þeim út fyrir neitt - 20.12.2007 Jólagestir

Stress, svefnleysi, ógleði og pirringur. Þetta allt hefur einkennt jólin og jólaundirbúning hjá mér á undanförnum árum. Ég hef semsagt eytt síðustu 4 árunum mínum í Háskóla Íslands, nánar tiltekið við Guðfræðideildina. Jólin hjá mér hafa farið í að lesa fyrir próf og þreyta þau. Eflaust gæti einhverjum fundið það sjarmerandi að vera í guðfræði sérstaklega yfir jólahátíðirnar, hátíð ljóss og friðar, akkúrat þegar mesta kirkjusóknin er og prestar landsins fái að njóta sín fyrir troðfullum kirkjum. En ég skal segja ykkur að það er ekkert sjarmerandi við að sitja sveittur yfir Rómverjabréfinu á grísku og reyna að skilja hvað þar stendur. Þegar maður er að bugast á próflestri þá kemur stundum upp sú hugsun að maður vilji frekar vera í Kringlunni og taka þátt í geðveikinni þar. En ég ætla ekki að segja ykkur frá mínum pirringi yfir próflestrinum, ég ætla að segja ykkur frá hvernig jólin voru hjá mér og hvernig undirbúningurinn var hjá minni fjölskyldu áður en ég fluttist í borg óttans á suð-vestur horni landsins. Lesa meira
 
Áslaug Íris Valsdóttir

Síðan þá kann ég öll erindin í Oh come all ye faithful - 19.12.2007 Jólagestir

Þegar ég var beðin að skrifa þennan pistil fór ég auðvitað að leiða hugann að jólunum þegar ég var barn. Það sem mér datt fyrst í hug var mamma uppi á eldhúsborði að þvo loftið því ekki dugði minna en allsherjar hreingerning. Allt var tekið í gegn og við pabbi fengum það hlutverk að pússa silfrið og taka ljósakrónuna í stofunni niður og hreinsa hana. Heimilið angaði allt af hreingerningalykt. |nl|Fjölskyldan fór ekki í kirkju á jólunum en á aðventunni var alltaf ensk messa í Hallgrímskirkju og þar sem pabbi var frá Englandi var fjölskyldan dubbuð upp og farið í þá messu. Áður var búið að spila plötu með enskum jólasálmum svo að við systur gætum tekið almennilega undir í söngnum. Síðan þá kann ég öll erindin í Oh come all ye faithful. Lesa meira
 
Jóka Stígs

Alltaf hafði pabbi þann sið að láta ljósið loga hjá kusunum sínum á aðfangadagskvöld - 18.12.2007 Jólagestir

Já bernskujólin mín , úff ég man ekki svo langt en bíðum við. Mikið ósköp áttum við systkinin erfitt með að bíða eftir að mamma og pabbi væru búin að mjólka kýrnar (ég er alin upp í sveit), við fórum margar ferðir í fjósið til að spyrja ,,eruð þið ekki að verða búin”. Pabbi fór alltaf aðeins fyrr í fjárhúsið og fjósið á aðfangadag og var maturinn alltaf kominn á borðið kl. 19.00. Það hefur sennilega fylgt mér að skreyta mikið því við systkinin bjuggum alltaf til mikið af músastigum, óróum og öðru jólaskrauti og skreyttum svo mikið að stundum sást varla í loftið í stofunni. Alltaf hafði pabbi þann sið að láta ljósið loga hjá kusunum sínum á aðfangadagskvöld og mikið ósköp þótti honum vænt um þær. Eins hlökkuðum við alltaf til að fara að Skeiðflöt milli jóla og nýjárs en það er næsti bær við Steig. Þar sáum við alltaf eitthvað íslenskt skemmtiefni, en þetta var þegar sjónvarpið var að byrja og þetta var næstum eini bærinn í sveitinni sem var kominn með sjónvarp, síðan var alltaf rosa tertu-og kökuveisla sem beið okkar. Lesa meira
 
Svavar M Sigurjónsson

Þó að Öræfin væru í alfaraleið þá átti jólasveinninn ekki leið um til að setja í skóinn - 17.12.2007 Jólagestir

Þegar leitað til mín varðandi það að vera jólagestur hér á Hornafjörður.is svaraði ég því til að ég væri lítið jólabarna og ennþá minni bakari en þar sem ég á mjög erfitt með að segja nei eins og aðrir Öræfingar þá féllst ég á að reyna setja nokkrar línur á blað með jólaminningum og fá aðstoð við baksturinn. Þó að ég sé kornungur maðurinn, varð rétt fertugur í sumar, þá man ég tímana tvenna í mörgum skilningi. Fyrir það fyrst þá er ég alinn upp í einni einöngruðustu sveit landsins sem þó var í alfaraleið að Litla-Hofi í Öræfum. Til dæmis var símanúmerið mitt ein löng og ein stutt alveg þangað til ég var 14 ára en svo trú börnin því ekki að ég hafi átt gemsa þegar ég eins árs !!! Ég ólst upp á heimili þar sem voru við systkinin þrjú (síðar komu tvö örverpi sem ekki tekur því að minnast á í grein þessari) og foreldrar og afi og amma og tvær systur afa, það er breytt heimilismynd frá því sem nú er. Lesa meira
 
Natasa Colic

Á aðfangadagsmorgun fer pabbi út í skóg og nær í grein af tré - 16.12.2007 Jólagestir

Ég flutti til Íslands frá Serbíu 1998 og ég held íslensk jól með börnunum mínum tveim þeim Nikola og Saska því hér eigum við heima og okkur finnst íslensku jólin yndisleg. Jólahald í Serbíu er afskaplega ólíkt því sem hér er, þar eru helgisiðir í föstum skorðum og jólin eru mikil trúarhátíð. Aðfangadagur hjá rétttrúnaðarkirkjunni er 6. janúar og jóladagur er 7. janúar Mig langar til að gefa ykkur smá innsýn í jólahald heima hjá foreldrum mínum í Aradac sem er um 5000 manna bær sem við köllum reyndar sveit en þetta er aðeins smábrot af þeim helgisiðum sem tilheyra jólahátíðinni. Á aðfangadagsmorgun fer pabbi út í skóg og nær í grein af tré sem síðan er geymt úti þar til á aðfangadagskvöld, þá er greinin færð inn í stofu og henni skipt í fjóra hluta, ljós tendruð á þrem þeirra en fjórða greinin er geymd ónotuð í húsinu til næstu jóla sem verndargripur heimilisins. Lesa meira
 
Jón Gunnar Gunnarsson

Tobbi byrjaði að skjóta - 15.12.2007 Jólagestir

Jólahald hefur verið iðkað í nokkur þúsundir ára meðal manna og alls óháð því hvaða guðir hafa verið dýrkaðir hverju sinni , heldur til að fagna þeim tímamótum á norðurhveli að dag tekur að lengja þannig merkja megi. Trúarbrögðin hafa svo lagað jólahaldið að sínum siðum og venjum eftir því sem best hefur þótt henta hverju sinni. Sá guð er nú ríkir hvað augljóslegast er sennilega Mammon. En ætlun var að fjalla um jólahald löngu undangenginna ára á Höfn. Ætli mesta lukkan hafi ekki lengi verið er Tobbi byrjaði að skjóta upp neyðarblysbirgðum ársins á gamlárskveldi. Ásamt því auðvitað er Árni brennukóngur tendraði í brennunni, en partur af jólahaldi unglinganna var að safna eldmat í hana. Mínar fyrstu minningar af aðfangadagskvöldi eru að ungbarnið fékk loks að sjá jólatréð svona rétt er jól gengu í garð og var það mikil dýrð ljósa og skrauts. Lesa meira
 
Björk Pálsdóttir

Finnst jólin varla koma nema ég finni rjúpuilminn - 14.12.2007 Jólagestir

Desembermánuður er í mínum huga yndislegur tími kertaljósa og rómantíkur. Það er að segja ef maður nær því að slaka á og njóta tilverunnar í öllu jólastressinu. Ég á margar ljúfar jólaminningar og veit eiginlega ekki alveg hvar ég á að drepa niður fæti en ég skal reyna að fræða ykkur um jólahaldið hjá mér. Barnæskujólin mín voru hefðbundin og hátíðleg, húsið var þrifið hátt og lágt, bakaðar margar sortir af smákökum, lagtertur o.fl. Mamma kom kökunum haglega fyrir í efstu hillu í draugalegri kompu í kjallaranum. Það lét maður ekki stoppa sig og gerði stuldinn bara meira spennandi. Í gegnum tíðina hafa myndast ýmsir siðir sem ég hef svo haldið í heiðri í minni fjölskyldu. Einn af þeim siðum sem við höfðum var að borða rjúpu á jólunum, ég man hvað mér fannst lyktin af þeim vond og gat ég ekki hugsað mér að borða þær. Núna verð ég himinsæl ef ég finn þessa lykt og finnst jólin varla koma nema ég finni rjúpuilminn. Annar skemmtilegur siður er í hvaða röð við opnuðum jólapakkana sem að sjálfsögðu mátti ekki byrja á fyrr en allt var orðið fínt í eldhúsinu eftir matinn. Lesa meira
 
Hermann Hansson

Jól í útlöndum - 13.12.2007 Jólagestir

Frásögn af mínum bernskujólum yrði vafalaust með líkum brag og hjá mörgum öðrum, að öðru leyti en því að ég er alinn upp í sveit og þar var hluti af jólahaldinu að ljúka við gegningar og gera skepnunum til góða í fóðri og umhirðu í tilefni hátíðarinnar. Mér dettur hinsvegar í hug að rifja upp einu jólin sem ég hef fram að þessu átt á erlendri grund. Þá var ég 18 ára gamall. Ég hafði farið til London snemma hausts ásamt tveimur skólafélögum mínum. Þar settumst við á skólabekk í enskuskóla og nú skyldi læra málið og geta talað og skrifað á enska tungu. Haustið var viðburðaríkt við nám, skoðunarferðir um markverða staði í borginni og ýmsa skemmtan. Enskunámskeiðinu sem við sóttum lauk með prófi stuttu fyrir jól. Það var jú alltaf vitað og þess vegna höfðum við félagarnir lagt á ráðin um að reyna að fá vinnu í Englandi til að kynnast nú málinu og landi og þjóð betur. Við höfðum fengið mann sem hafði sambönd í Englandi til að kanna fyrir okkur möguleika á atvinnu. Lesa meira
 
Jólamarkaður í Nesjum

Beðið eftir stóra kassanum frá Ísafirði. - 12.12.2007 Jólagestir

Við vorum 7 systkin ásamt pabba og mömmu og bjuggum í Reykjavík. Ein af mínum sterku jólaminningum eru þær að ekki voru til tveir umgangar af sængurfötum á öll rúmin þannig að mamma tók alltaf af öllum rúmunum á þorláksmessu og um nóttina sváfu allir með engin sængurver, og þá fannst manni sko jólin vera að koma. |nl|Á aðfangadagsmorgunn var sett hreint á öll rúmin og allir fengu ný nærföt og náttföt. Þessum sið hef ég síðan haldið, þrátt fyrir að eiga fullan skáp af sængurverum og mínar stelpur eru vanar því að sofa með ekkert sængurver á sínum sængum á þorláksmessunótt. Einnig er önnur sterk minning úr æsku, það varð alltaf rafmagnslaust í ca.klukkustund um miðjan dag á aðfangadag, örugglega vegna mikils álags. Þá fengu allir hvert sitt kerti og skapaði þetta vissa aðfangadagsstemningu. Lesa meira
 
Sigrún Sigurgeirsdóttir

Það er vissulega gaman að koma sér upp jólasiðum - 11.12.2007 Jólagestir

Sinn er siður í hverju landi og hvað jólin og jólaundirbúning snertir þá eru hefðirnar ólíkar milli landshluta og jafnvel milli heimila sem þó standa hlið við hlið! Einu sinni heyrði ég dóttur mína segja: á jólunum situr mamma alltaf hérna og pabbi þarna. Ég varð alveg hissa, hafði ekki gert mér grein fyrir að sætaskipanin væri í föstum skorðum á jólunum, en þegar ég fór að hugsa mig um þá áttaði ég mig á að þessi tvenn jól sem við höfðum verið í þessu húsi höfðum við jú setið í þessum sætum við matborðið. Alveg kemur það manni á óvart stundum hvernig allt í einu er komin hefð á eitthvað! Það er vissulega gaman að koma sér upp jólasiðum. Það er jú eitt af verkefnum hverrar fjölskyldu að skapa sér jólahefðir; oftast eru þeir settir saman úr jólahefðum hans og hennar, en stundum ákveður fólk að brydda upp á nýjungum sem menn hafa kynnst annars staðar. Það getur vissulega verið skemmtilegt að skoða í félagi hvernig fjölskyldan vill hafa jólastemminguna og prófa ýmsar leiðir til að gera hátíðina eins og við viljum hafa hana. Lesa meira
 
Jóna Margrét

Sko, ef jólasveinninn spyr þig að einhverju þá segir þú bara yes eða no - 10.12.2007 Jólagestir

Jæja tíminn flýgur áfram og jólin kominn áður en maður veit af. Ég vildi að tíminn hefði verið svona fljótur að líða þegar að maður var krakki að bíða eftir jólunum en það var nú annað mál tíminn leið svo rosalega hægt. Þegar ég var krakki þá fór ég nokkru sinnum á kanajólaball út á Stokksnesi með frænku minni og jafnöldru, henni Elínu. Pabbi hennar vann út á Stokksnesi þannig að þau fóru alltaf á jólaball þar og var mér oft boðið með þeim. Ég man sérstaklega eftir einu skipti þegar ég hef verið svona u.þ.b 5 ára. Ég man að á leiðinni út á Stokksnes sátum við í bílnum og Elín var að segja mér hvernig jólaböllin væru, að við myndum setjast í fangið á jólasveininum (sem var útlenskur) og hann myndi spjalla við okkur og svo fengjum við pakka. Það fannst mér nú ekki nógu gott því að ég kunni ekki útlensku og ég gæti ekki tala við jólasveininn, svo hún ákvað að kenna mér útlensku á leiðinni því að hún kunni víst útlenskuna mjög vel. Hún sagði við mig "Sko, ef jólasveinninn spyr þig að einhverju þá segir þú bara yes eða no", ok þá var þetta ekkert mál ég kunni núna að svar jólasveininum á útlensku. Lesa meira
 
Eiríkur Þorvaldsson

Mamma hafi þó gert ráð fyrir einhverri rýrnun á kökulagernum - 09.12.2007 Jólagestir

Ég held okkar jólahald hafi verið nákvæmlega eins og hjá flestum hér á norðurslóðum.þó man ég ekki eftir að vestfirski siðurinn með skøtuát á Þorláksmessu næði að ráði til Hornafjarðar meðan ég var þar. Á hinn veginn var norðlenska laufabrauðið byrjað að ná tökum á okkur. Fyrstu kynni mín af jólum var appelsínu og eplalyktin í húsinu,en það var bara á jólum að slíkar vörur voru á boðstólnum. Hreingerningabrjálæði gekk á í Nýjabæ eins og vera ber já og svo baksturinn af allskonar bakkelsi. Ég segi það sama sem einhver hér hefur skrifað, að kökur brögðuðust best ef þær voru stolnar. En mig hefur grunað að mamma hafi þó gert ráð fyrir einhverri rýrnun á kökulagernum. Verra var þó með kartöflubirgðirnar, en ég veit ekki hvort það uppgötvaðist nokkurn tíma hvað olli því að það tæmdist svo fljótt úr pokanum. En það var þannig að ég átti margar vinkonur í fjárhúsinu og þær að ógleymdum hrútunum, urðu náttúrlega að fá tilbreytingu á jólum. Lesa meira
 
Ásgerður Gylfadóttir

Þá missti maður andann svo kæst var tindabikkjan - 08.12.2007 Jólagestir

Það er alltaf smá sjarmi við að líta til baka og rifja upp liðna tíma. Maður spyr sig hvort að bragðið sem maður hefur verið að leita að í “skötuveislum” sé virkilega til eða sé aðallega bundið tilfinningum frá uppvaxtarárunum í Hnífsdal. Fyrir þá sem eru aðeins farnir að ryðga í landafræðinni þá er Hnífsdalur á milli Ísafjarðar og Bolungavíkur. Lyktin sem virkilega kallar fram jólaskapið og minningarnar að vestan er auðvitað ráðandi á mörgum stöðum á Þorláksmessu – skötulyktin. Minningin úr eldhúsinu hjá ömmu Jönu og afa Kalla, vel kæst tindabikkja og hnoðmör. Þetta var nú svolítið erfitt, smá fiskbiti og hálf kartafla. Þrátt fyrir kartöfluna þá missti maður andann svo kæst var tindabikkjan. Lesa meira
 
Soffía Auður

Appelsínujól - 07.12.2007 Jólagestir

Mig langar að segja ykkur frá jólahátíðinni í Andalúsíu á Spáni því þar bjuggum við fjölskyldan einn vetur, nánar tiltekið veturinn 2003-4. Þegar leið að jólum í Sevilla, þar sem við bjuggum, var ekki margt sem minnti á jólin eins og við þekktum þau. Nóvember er uppskerutími appelsína á Spáni. Appelsínutré eru út um allt, við umferðargötur eru ýmist appelsínutré eða pálmar. Það var skemmtileg tilbreyting að ganga undir drjúpandi appelsínuklösum á ferð sinni um göturnar í stað þess af ösla slabbið og reyna að skýla sér fyrir vindi. Appelsínurnar voru síðan seldar í kílóavís, þrjú kíló boðin á eina evru og við fórum í gegnum mörg kíló á viku enda nýkreistur appelsínusafi algjört lostæti í morgunsárið. Lesa meira
 
Gisli-Einarsson

Kannaballið og jólakötturinn - 06.12.2007 Jólagestir

Það sem mér finnst standa uppúr í minningunni um bernskujólin er “kannaballið” en það var þegar hermennirnir á Stokksnesi buðu krökkunum á Höfn á jólatréskemmtun, eftirminnilegast eru teiknimyndirnar með Andrés Önd og fleiri fígúrum, en á þeim árum var mjög lítið barnaefni í sjónvarpinu. Annað sem er ansi ofarlega í minningunni er þegar ég sá jólaköttinn, vorum við, mamma, pabbi og Jóna á labbi að kvöldlagi (allavega var myrkur) inn Litli-brú og fyrir framan okkur hljóp köttur og var ég harður á að þetta væri jólakötturinn, hef ég sennileg verið 5 til 6 ára þegar þetta var. Jólatréð var og er skreytt á Þorláksmessu og hlustað á jólakveðjurnar á rás 1, jólakveðjurnar finnst mér vera ótvírætt merki þess að jólin séu að koma. Lesa meira
 
OlafiaIGisla

Þar var þá sjálfur jólasveinninn mættur með pokann sinn - 05.12.2007 Jólagestir

Já, það leynir sér ekki að jólin nálgast þó manni finnist haustið varla liðið. Reynir og Jóka nágrannar mínir eru búin að vera að setja upp seríur í nokkurn tíma, Reynir byrjaði reyndar fyrir 3 vikum að setja ljós á mæninn meðan ekki fraus og hægt að gera það án þess að fljúga fram af. Hjá hinum nágrönnunum í botnlanganum koma seríurnar upp á hverju húsinu af öðru, meira segja hjá okkur Ara þrátt fyrir mikið þref í gegnum árin. En hann nær sínu fram kveikir ekki fyrr en aðventan gengur í garð. Þetta, til þess að gera mikla ljósahaf á okkar mælikvarða, var sett upp í tilefni af því að Óskar og fjölskylda ætluðu að vera hjá okkur um jólin 2005 og ég heimtaði að fá seríur á húsið þessi fyrstu jól sem barnabarn héldi þau hjá okkur. Og viti menn, það var farið í Kask og keyptar þessar líka fínu seríur með rauðum perum og messingkrókar sem voru skrúfaðir í undir þakskeggið allan hringinn og seríurnar upp og loksins eftir öll árin í myrkrinu á aðventunni vorum við orðin upplýst eins og hinir. Er þetta ekki alveg týpískt „eins og hinir“, maður er nú einu sinni Íslendingur. Lesa meira
 
Gunnþóra Gunnarsdóttir

Með afbrigðum löt að setja upp seríur - 04.12.2007 Jólagestir

Þótt jólin séu ljósanna hátíð þá verð ég að viðurkenna að ég er með afbrigðum löt að setja upp seríur. Það kemur þeim Hornfirðingum líklega ekki á óvart sem muna eftir Hrísbraut 11 þau ár sem ég bjó þar. Ein títlusería í glugganum sem sneri að Hrísbraut 9 og búið. Stakk svona dálítið í stúf við hús nágrannana og annarra íbúa bæjarins. Ég get samt huggað þá með því að mér hefur farið fram. Sem kemur reyndar til af því að ég hef verið í tygjum við rafvirkja síðustu árin er hefur séð um þessa deild. Mér þótti samt alveg nóg um í fyrra þegar hann kom með 576 ljósa seríu úr þriðju ferð sinni í Húsasmiðjuna þann daginn. Þegar til kom voru þau ljós reyndar agnarsmá svo útkoman varð temmileg. Lesa meira
 
Pálmi Guðmundsson

Tímaleysi og minningarbrot úr bernsku - 03.12.2007 Jólagestir

Hvað var ég nú eiginlega að taka að mér? Oh, afhverju sagði ég ekki bara nei, því miður er ég svo upptekinn? Ég kunni ekki við að segja nei við hana Júlíu, þegar hún bað mig svona fallega að vera jólagestur á hornafjordur.is. Næstu dagar liðu án þess að ég kæmi mér að skriftum, var eiginlega búinn að gleyma þessu þegar ég mætti samstarfskonu minni í Nettó í eitt skiptið (henni Dísu Imsland), ó.... ég var búinn að lofa mömmu hennar að skrifa niður einhver minningarbrot frá liðnum jólum í lífi mínu. Ég leiddi hugann að því, hvort það væri ekki ennþá verra að segja já en standa síðan ekki við gefið loforð. Ja... það væri nú þokkalegt að byrja aðventuna með svona ókristilegri framkomu. Nei!, þetta gengur ekki, ég verð að einhenda mér í þetta í kvöld þegar ég kem heim úr vinnunni, ekkert mál. Lesa meira
 
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir

Aðfangadagur leið svo skelfilega hægt - 02.12.2007 Jólagestir

Mér dettur fyrst í hug þegar ég hugsa til jólanna á Neskaupsstað var þegar að nokkru fyrir jól þurfti mamma að innsigla jólabaksturinn vegna mikillar ágengdar okkar systra og þó sérstaklega pabba sem var og er mikill sykurgrís, í smákökurnar. Pabbi var að vinna á vöktum í bræðslunni á Neskaupsstað og sáum við hann yfirleitt ekki fyrr en á Þorláksmessu þannig að allur jólaundirbúningur var í höndunum á mömmu. Mér er það í fersku minni að þegar pabbi kom í frí á Þorlák þá drifu þau hjónin sig og versluðu í flýti allt til jólanna og meðal annars jólagjafir fyrir alla í fjölskyldunni. Síðan fengum við systur að hjálpa mömmu að pakka inn öllum jólapökkunum. Þar sem ég er ákaflega forvitinn og mikið jólabarn þá vildi ég helst vita hvað var í öllum pökkunum og reyndi gjarnan að finna út með miklu þukli( náttúrlega þegar enginn sá til ) hvað hver pakki innihéldi og stundum voru gerð göt til að kíkja bara aðeins! Lesa meira
 
Hildigerður Skaftadóttir

Og kirkjugestir syngja saman jólasálmana - 01.12.2007 Jólagestir

Það líður að aðventunni, haustið varla liðið og stutt síðan nýútsprunginn fífill kinkaði til mín kolli, neðan við Fiskhólinn. |Framundan tími ljósanna, tæpur mánuður þangað til sólin fer að hækka aftur á himninum og hlýja okkur í bakið. Fyrir nokkrum árum rakst ég inn í verslun á Ítalíu og lenti í skrýtnu og skemmtilegu spjalli við eigandann. Skemmtilegast fyrir það að konan talaði eiginlega bara ítölsku. Hún rak augun í mynd af Jökulsárlóni á kortinu mínu, og fór að spyrja mig hvaðan ég væri, jú hún hafði hugmynd um að Ísland væri í norðri og var full af áhuga að vita meira um lífið okkar þar, hvort ekki væri dimmur og langur veturinn. Lesa meira
 
Hólmgrímur E. Bragason

Ástríkur Gallvaski oft upp úr jólapökkunum - 25.12.2006 Jólagestir

Þegar ég lýt til baka og minnist jólanna frá æskuárum mínum hlýnar mér um hjartarætur. Ég er einn af þeim heppnu sem hef fengið að njóta þeirra forréttinda að tilheyra kærleiksríkri fjölskyldu. Ég ólst upp á Snæfellsnesi, nánar tiltekið á Rifi og Hellissandi. Þar stundaði faðir minn sjóinn og móðir mín vann hin ýmsu verkamannastörf auk þess að sjá um heimilið. Við erum þrír bræðurnir og þegar ég hugsa til jólanna okkar dettur mér fyrst í hug þeir siðir sem litla fjölskyldan tileinkaði sér og gerði að sínum. Jólin hófust á Þorláksmessu þegar pabbi var sendur út í bæ til þess að gæða sér á vestfirskri skötu. Notuðum við hin tækifærið og gæddum okkur á sérvöldu lambaketi sem ávallt bragðaðist einstaklega vel. Ég man það að einu sinni var reynt að hafa skötu á Þorláksmessu heima og boðið var góðum gestum. Það var aldrei reynt aftur þar sem ég skilaði henni sömu leið og hún kom yfir allt og alla sem þarna voru í sínu fínasta pússi. Lesa meira
 
Matthildur Þorsteinsdóttir

Gleymum ekki Jesú - 24.12.2006 Jólagestir

Hugurinn reikar heim á Norðurbraut 10 til mömmu og pabba. Þar áttum við systurnar alltaf friðsæl og kærleiksrík jól og eigum enn. Ég man að ég og Anna systir fengum tuskur og skál með Ajaxblönduðu vatni inn í herbergið okkar í kringum 10. desember. Við drifum í að þrífa glugga og hillur, og allt sem þoldi vatn var dýft miskunnarlaust ofan í sápuvatnið. Ég myndi segja að Ajax kæmi næst á eftir mandarínum og greni... hvað jólalyktina varðar. Svo man ég eftir þessari árlegu baráttu við jólaseríurnar. Fyrst var að leysa þessar endalausu flækjur og svo að stinga í samband. Ef einhverjar perur voru bilaðar þá voru þær “skrúfaðar” úr og brunað í kaupfélagið til að kaupa nýjar. Lesa meira
 
Valdemar Einarsson

Rafmagnsleysi og bið eftir hvort pabbi yrði heima á jólunum - 23.12.2006 Jólagestir

Þegar maður hugsar til baka kemur nú margt upp í hugann í sambandi við jólin og undirbúninginn þeirra. Ég er alin upp í Keflavík, yngstur fimm systkina. Það var því tilhlökkunarefni þegar systkinin komu heim í jólafrí og svo var það spurning hvort pabbi kæmi eður ei, en hann var sjómaður á fragtskipum mín fyrstu 10 ár. Ég minnir að hann hafi einungis verið heim ein jól þessi ár og fannst manni nú þetta frekar súrt í broti og ef maður kvartaði þá var manni nú bara bent kurteisilega á það “að það væru nú ekki allir svo heppnir að eiga pabba “ Jólahaldið gekk annars sinn vanalega gang með fjölda allan af smákökum, hamborgarahrygg á aðfangadagskvöld og hangikjöti á jóladag og svo náttúrulega heimalagaður ísinn með heitri karmellusósu. Ekki má nú gleyma rauðu jóla eplunum og svo síðar mandarínum og svo náttúrulega öllu Makkintosinu. En aldrei sá ég skötu á Þorláksmessu sem betur fer. Þessir hlutir hafa svo sem lítið breyst en í minningunni finnst mér að alltaf hafi verið skammtað rafmagn þegar allar Rafa eldavélarnar voru í botn að græja steikurnar. Lesa meira
 
Sigurður Hannesson

Jólin í sveitinni um miðja síðustu öld - 22.12.2006 Jólagestir

Ég er ekki mikið jólabarn ef ég skil rétt það sem átt er við með því hugtaki. Ég er ekki mikið fyrir skraut og prjál, veislur og húllumhæ eða messur og sálmasöng. Ég held að ég hafi alltaf verið svona pínulítill sérvitringur eða ég man ekki annað. Hitt er annað mál að ég kann vel að meta góðan mat og að slappa af yfir góðri bók eða njóta lífsins með fjölskyldu minni um jólin. Jólin koma mér líka í hátíðarskap og þá færist yfir mig friður, ró og gleði. Það fyrsta sem ég man eftir í sambandi við jólin er eplalykt. Ég ólst upp á Mýrunum og á þeim árum voru oft erfiðar samgöngur til og frá þeirri sveit. Það var beðið eftir því með eftirvæntingu hvort bílhald yrði komið á Fljótin fyrir jól svo hægt væri að komast í kaupstað með góðu móti. Ef það brást komust jólaávextirnir kannsi ekki í tæka tíð fyrir jólin Oftast held ég þó að Frosti gamli hafi staðið við sitt, sem sýnir hve veðurfar hefur breyst því það held ég að heyri til undantekninga nú til dags. Lesa meira
 
Ingibjörg Gísladóttir

Auðvita hélt maður þá að hvergi á jarðríki væri jafn jólalegt eins og á Höfn - 21.12.2006 Jólagestir

Það er fátt sem lifir jafnlengi og vel i endurminningunum eins og jólaundirbúningurinn, aðventan og auðvita jólin,þegar ég var að alast upp á Höfn. Auðvita hélt maður þá að hvergi á jarðríki væri jafn jólalegt eins og á Höfn,og vorkenndi ég öllum þeim sem ekki nutu þeirra gæfu að búa á Höfn i desember. Þeir höfðu ekki ljósadýrðina hjá Unnsteini Guðmunds og því síður mastrið fyrir innan hæð því þegar var búið að kveikja á ljósunum þar þá vissi maður að jólin voru i nánd. Jólaundirbúningur í Björk var með hefðbundnum hætti mamma bakaði kynstrin öll af smákökum, tertum og lagkökum, saumaði kjóla fram eftir kvöldum og pabbi sá um að draga i búið epli, appelsínur, malt og aðra gosdrykki. Í endurminningunni var allt þetta keypt i kassavís nema þegar fyrst voru keyptar perur til jólanna, sennilega hafa þær verið dýrar enda bara keyptur hálfur kassi. En mikið var erfitt að láta þær i friði, enda tíðar ferðir niður i bílskúr þar til maginn sagði stopp. Lesa meira
 
Páll Þór Imsland

Tíminn er til að koma í veg fyrir að allt gerist í einu - 20.12.2006 Jólagestir

Jæja, hann er bara rétta að skella á með jól eina ferðina enn. Og alltaf kemur þetta manni meir og minna í opna skjöldu. Já tíminn, hinn undarlegi förunautur okkar, lætur ekki að sér hæða og heldur sínu striki, hvað sem maður tekur sér fyrir og hvernig sem maður fer að. Hann kemur aftan að manni, þegar maður gætir sín ekki nógu vel, þrífur í öxlina á manni og segir sem svona. “Hvað er þetta maður? Heldur þú, að þú ráðir ferðinni? Nei góði, ekki aldeilis. Hér er það ég sem ræð og ég hvorki spyr þig álits né geri við þig samning um eitt eða neitt. Ég er nefnilega eitt af náttúrulögmálunum og framhjá mér verður því ekki gengið, eins og þú veist.” Lesa meira
 
Björg Erlingsdóttir

Skipulagðir leiðangrar voru farnir í leit að jólabakkelsinu sem mamma hafði falið - 19.12.2006 Jólagestir

Þegar ég var lítil voru síðustu dagarnir fyrir jól með sérstöku sniði. Við bjuggum á Akureyri og foreldrar mínir ráku verslun þar sem unnið var fram á kvöld dagana fyrir jól og fram að hádegi á aðfangadag. Við krakkarnir vorum því oft ein heima þessa síðustu daga fyrir jól. Skipulagðir leiðangrar voru farnir í leit að jólabakkelsinu sem mamma hafði falið haganlega á hinum ólíklegustu stöðum, stundum svo vel að hún fann það ekki fyrr en á vormánuðum. Mömmu var sérstaklega annt um laufabrauðið og það voguðum við okkur ekki að snerta. Það þurfti ekki að eyða tíma í að leita jólagjafa, þeim héldu foreldrarnir nær sér en bakkelsinu enda ástæða til, slík var snilli okkar í bakkelsisleitinni. Við eins og önnur börn fengum ný föt fyrir jólin og mamma sem saumaði venjulega á okkur jólafötin. Litli bróðir minn var einkar mótfallinn nýjum fötum og mamma byrjaði að venja félagann við nýju fötin uppúr miðjum október. Fyrst var reynt að láta hann vera í fötunum í 5 mínútur og svo var þessi tími aukinn hægt og hægt þar til hann hélt út heilt kvöld. Svona var hann frá blautu barnsbeini og mamma hafði lent í því að henda fötum af honum og finna hann svo í þeim aftur næsta dag. Ný föt vildi hann ekki – nema ef í boði var KA-galli, þá var annað hljóð í strokknum. Lesa meira
 
Zophonias Torfason

Í nánd jóla - 18.12.2006 Jólagestir

Sólargeislar varpa gullinni slikju á klettabelti. Snjór er lítill á jörðu, dálítið frost í lofti og ísskildir og klakabunkar eru áberandi þegar litið er til skorninga og lækjarfarvega í fjallinu. Sólin skreiðist lágt yfir sléttan hafflötinn. Veður er stillt og bjart og dálítið sjávarhljóð berst til eyrna. Það er Þorláksmessudagur og ég hef heyrt talað um það undanfarna daga að ær með tveimur lömbum sé austan í Gerðistindi nokkru fyrir neðan miðja kletta. Menn eru tvístígandi og það gætir óþreyju í rödd þegar þeir ræða þetta sín á milli. Hvað er til ráða? Nú getur brugðið til hins verra með veðrið og gert snjóalög og tekið fyrir alla beit handa fé á þeim takmarkaða bithaga sem þarna er. En það er ekki greiðfært um klettana eftir nokkra samfellda frostdaga og fjallasprænur lagðar ísi og klappir með svellalögum og því varasamt að hætta sér í slíkan björgunarleiðangur. Lesa meira
 
María Gísladóttir

Að skapa sínar eigin hefðir fyrir fjölskylduna er mikilvægur þáttur í jólahaldinu. - 17.12.2006 Jólagestir

Við komumst að því í minni fjölskyldu þegar við bjuggum í Nova Scotia, Kanada, hvað maður er tilbúinn að leggja mikið á sig til að halda jól að íslenskum sið. Til þess að sýna lit og jákvæðni reyndum við þó fyrst þetta með kalkúninn en það gekk bara alls ekki upp hjá okkur. Þegar það þótti fullreynt að kalkúni væri ekki gjaldgengur sem jólamatur hjá okkur varð að taka til annarra ráða. Það var mjög strangt eftirlit með allri matvöru sem flutt var til Kanda á þessum tíma vegna gin og klaufaveiki, kúariðu eða öðrum sjúkdómum sem herjuðu á svín og nautgripi í evrópu. Það skipti engu máli þótt kjötið væri reykt, vakúmpakkað og frá Íslandi, allt slíkt var fjarlægt úr farangri og pökkum umsvifalaust. Það var meira að segja gert veður út af franskri gæsalifur í niðursuðudós sem við fengum þó að taka með inn í landið eftir töluvert mas og múður. Lesa meira
 
Birna Jensdóttir

Jól í Sól - 16.12.2006 Jólagestir

Það var sumarið 99 sem mér datt í hug að við skyldum breyta til og fara til Kanaríeyja um jólin. Ég var búin að heyra að það væri einfaldlega svo ljúft þar um jólin,við vorum búin að vera þar á öðrum tíma. Síðan var það í ágúst að þetta var ákveðið og allir sáttir við að prufa. Við fórum 17desember og komum heim 3. janúar. Við vorum hræddust við að vera þarna úti yfir áramótin 99-2000 út af öllu því ógurlega sem átti að geta skeð þá. Tíminn leið, það var komin aðventa og við á fullu við að hreingera, kaupa gjafir og skrifa jólakort. Allt átti að vera klárt þó að við yrðum ekki heima. En ég sleppti samt að baka og skreyta. Senn leið að brottför og stundum nagaði efinn okkur:,,vorum við kannski að fara þarna út og svo yrðu engin jól” ÚFF þetta var dálítið erfitt. Og svona til vara þá pakkaði ég niður nokkrum jólapökkum, fallegum jóladúk, kertastjaka og geisladisk með fallegum jólalögum, þar á meðal Heims um Ból. Stelpurnar voru með geislaspilara meðferðis eins og venjulega ef við brugðum okkur út af bæ. Farið var á flugvöllinn tímanlega til að versla ef eitthvað væri sem okkur vantaði. Lesa meira
 
Þorbjörg Arnórsdóttir Hala

Þá voru Fljótin ekki brúuð - 15.12.2006 Jólagestir

Í viðtölum mínum við erlenda ferðamenn, sem heimsóttu Þórbergssetur síðast liðið sumar gætti oft undrunar hversu stutt er síðan að íbúar Skaftafellssýslu bjuggu við einangrun og erfiðleika í samgöngum. Það eru aðeins rúmlega 40 ár síðan að beljandi jökulfljót lokuðu af á báða vegu, og íbúar Öræfa, Suðursveitar og Mýra komust sjaldan akandi á eigin bílum í kaupstað. Samgöngur og búsetuskilyrði hafa breyst með slíkum ógnarhraða að segja má að íbúar svæðisins hafi stigið frá fornöld yfir í tækniveröld nútímans á hálfri öld. Lesa meira
 
Grétar Már Þorkelsson

Nýju jólanærfötin lentu ofan í klósettinu - 14.12.2006 Jólagestir

Þegar ég hugsa til jólahaldsins á mínum bernskuárum þá detta mér fyrst í hug hefðir. Líkt og hjá öðrum fjölskyldum voru ákveðnar hefðir í hávegum hafðar fyrir og um jólin og það er kannski þess vegna sem maður hugsar hlýlega til jólanna frá sínum uppvaxtarárum. Ég hef verið að lesa frásagnir þeirra sem hafa verið jólagestir á þessum vefmiðli og haft gaman af og þá hef ég einnig verið að bera saman þessar frásagnir við jólahald á mínum uppvaxtarárum. Eftir þennan lestur hef ég komist að því að ég tilheyri ungu kynslóðinni því ég man t.d. ekki eftir því að það hafi verið vandamál með að fá ávexti á hvaða tíma ársins sem var þó svo að skamturinn hafi verið aukinn á jólunum og eplin jafnvel sett í skál inn í stofu. En óneitanlega tengir maður alltaf mandarínur við jólin og var mikið borðað af þeim á mínu heimili, eplin voru aðeins táknrænn hlutur á stofuborðinu því ég man ekki til þessa að þau gerðu annað en að skemmast þar. Lesa meira
 
Ragna Pétursdóttir

Brún randalín og þá eru komin jól - 13.12.2006 Jólagestir

Ég hef alltaf verið talsvert jólabarn í mér og haft gaman að undirbúningi jólanna. Ég ólst upp við að allt var gert hreint úti sem inni fyrir jól, fjárhúsin voru extra vel sópuð fyrir jólahátíðina og allt sem mátti brenna var týnt til og safnað í áramótabrennu. Ég er einnig alin upp við að við systkinin vorum flest í heimavistaskóla og var alltaf mikil tilhlökkun að allir yrðu heima og þá var spilað á spil næstum á hverju kvöldi og t.d lærðum við eldri systkinin að spila Lomber og alltaf upp á gamlar krónur en einnig var oft spilað vist, kani og einnig ýmis önnur spil eins og kasína, rommý, marías. Þegar við vorum yngri var aldrei spilað á aðfangadagskvöld vegna gamallar hjátrúar sem var að. Það kæmi illur andi í spilin og tigulkonginn myndi fjölga í spilunum. Lesa meira
 
Pálína Þorsteinsdóttir

Aldrei var svo hart í ári að jólasveinninn birtist ekki á jólaballinu - 12.12.2006 Jólagestir

Aðventa bernskujóla minna var undirbúningstími jóla af sama toga og alla tíð síðan, en það eru breyttir tímar sem hafa áhrif á margt við jólahaldið. Þegar ég var barn, voru áreitin ekki eins mörg og núna. Einu fjölmiðlarnir sem ég man eftir á okkar heimili á þessum árum voru Ríkisútvarpið og Tíminn. Það fór líka fátt framhjá heimilisfólkinu í þessum fjölmiðlum og eitthvað af því gátum við systkinin nýtt okkur til gamans, og nutum þess jólaefnis sem flutt var í útvarpinu. Einhver tímarit voru líka keypt á þessum árum, en mikilvægust voru að mati okkar krakkanna Æskan og Heima er best, því að frá þeim bárust bókalistar nokkru fyrir jól, og alltaf var pantað eitthvað af bókum. Mamma sá aðallega um jólafötin á okkur, en við vorum 10 í heimili svo að allir sem gátu hjálpuðust að. Lengi vel var allt saumað og prjónað heima, nema kannski ein og ein flík sem hafði verið fengin úr kaupstað eða pöntuð úr Hagkaup eftir að verðlistar tóku að berast þaðan. Lesa meira
 
Svanfríður Eygló Arnardóttir

Þegar jólin næstum gleymdust - 11.12.2006 Jólagestir

Árið 1993 upplifði ég jólin í fyrsta skipti án foreldra minna. Ég var skiptinemi í Austurríki og hafði ég kviðið jólunum í nokkra mánuði vegna fjarlægðar milli mín og alls þess sem ég þekkti og vissi ég því ekki við hverju ég gæti átt von á. |nl|Húsmóðirin á bænum sem ég bjó á, bakaði eina smákökusort fyrsta sunnudag í aðventu og var hún borðuð upp til agna þann daginn á meðan allt heimilisfólkið sat inni í betri stofu í kringum aðventukransinn á meðan ég spilaði jólalög á píanóið. 21.desember fékkst jólafrí úr skólum og þann daginn fór ég með húsbóndanum út í skóg, sem honum tilheyrði. Við fundum fallegt grenitré, hjuggum það í sameiningu í snjó og kulda, bundum það aftan í dráttarvélina og fluttum það heim. Á Þorláksmessu skreytti fjölskyldan svo tréð í sameiningu en á aðfangadag voru kertin sett á það og þau svo tendruð um kvöldið. Lesa meira
 
Sigrún Bergsdóttir

Alltaf er minningin um bernskujólin sveipuð helgri birtu og yl - 10.12.2006 Jólagestir

Þau eru orðin ansi mörg jólin, sem ég hef upplifað. Alltaf er minningin um bernskujólin sveipuð helgri birtu og yl sem gerði lágreistu baðstofuna í Austurhúsum að höll, þegar allir voru komnir í sparifötin og settust hver á sitt rúm og hlýddu á jólaklukkurnar hringja til messu í Dómkirkjunni í Reykjavík. Það var mikið tækniundur í þá daga að geta fylgst með helgri jólamessu frá höfuðborginni, sitjandi á rúminu sínu austur í Öræfasveit. Það reyndi á þolinmæðina hjá okkur krökkunum að bíða eftir jólamatnum, sem þá var kalt hangikjöt með kartöflum í uppstúf og gulum baunum. Hangikjötið og pokabaunirnar voru alltaf soðnar á Þorláksmessu og fengu allir að smakka á því þá. Að sjálfsögðu voru kaffi og kökur um jólin, þó ekki væru eins margar sortir eins og nú. Lesa meira
 
Guðlaug Hestnes

Jólin eru ekki bara tré og matur - 09.12.2006 Jólagestir

Jólabarn.... Það er það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar jólin nálgast. Sem barn fór ég gjarnan með pabba niður á Austurvöll til að fylgjast með þegar ljósin voru tendruð á stóra jólatrénu. Eftir það fengum við heitt kakó hjá gömlum frænkum á heimleiðinni. Þá kviknaði gleðin, og ef eitthvað er þá ágerist hún með hverju árinu sem líður. Jólin heima voru hefðbundin og mikil kyrrð var yfir öllu og öllum, allt var svo auðvelt í þá daga. Það eina sem hugsanlega gat riðlað hefðinni var ef kaupmaðurinn átti ekki appelsínur. Man eftir einu slíku tilviki, og var það stórmál. Mamma saumaði sjálf fötin á mig, og man ég oft eftir saumavélahljóði langt frameftir Þorláksmessukvöldi, stundum þurfti ég jafnvel að máta jólafötin löngu eftir venjulegan háttatíma. Það kvöld vissi ég að jólasveinninn kæmi og setti í skóinn minn, hann gerði það alltaf á Þorláksmessu. Jólasveinninn færði mér yfirleitt nærföt, sokka eða annað sem litlar stelpur þurfa að eiga til að fara ekki í stóra jólaköttinn. Eitt kvöldið gat ég hreinlega ekki sofnað fyrir spenningi og lá því vakandi þegar sveinki kom. Úpps! þá missti ég trúna.--- Lesa meira
 
Heimir Þór Gíslason

Jólin í "Hell’s kitchen". - 08.12.2006 Jólagestir

Þriðjudaginn 3. desember 1940 kom norski strandgæslubáturinn “Nord Cap” brunandi inn til Breiðdalsvíkur. Eins og allir vita geysaði þá síðari heimsstyrjöldin og breskt setulið var komið til landsins og þessi norski bátur var nokkurs konar flóabátur fyir það á Austfjörðum og kannski víðar. Erindi bátsins á þessa litlu “krummavík” var að flytja 3 breska hermenn þangað. Þeim var ætlað að vera hlekkur í keðju varðstöðva sem raðað var á strandlínuna landið í kring. Lesa meira
 
Haukur Þorvaldsson

Jólin fyrir austan - 07.12.2006 Jólagestir

Þegar Júlía hringdi í mig sl. föstudag og spurði hvort ég væri ekki til í að skrifa jólaminningu á vefinn hornafjordur.is tók ég því ekki fjarri ef ég þyrfti ekki að leggja helgina undir í þankagang með tilheyrandi tölvupikki. Við sömdum um að ég reyndi að koma þessu frá mér í þessari viku og hún skaut því líka að mér í leiðinni að svona til að krydda jólaminningarnar væri ekki verra ef mér tækist að fá frúna til að gefa eina uppskrift af einhverju gómsætu á jólaborðið. Svo heppilega vildi til að frúin sat við hlið mér er Júlía hringdi og sagði ég henni að nú yrði hún að koma mér til bjargar eins og svo oft áður og setja punktinn yfir i..ið með því að fatta upp á (eins og krakkarnir gjarnar segja) einhverri góðri uppskrift í lok jólaminninganna. Lesa meira
 
Arnþór Gunnarsson

Fyrir sunnan um jólin - 06.12.2006 Jólagestir

Þegar ég reyni að rifja upp jólin og jólaundirbúninginn hér áður fyrr vilja minningarnar renna saman í einn meðalstóran jólapakka sem inniheldur flest það helsta sem aðrir Hornfirðingar af minni kynslóð upplifðu, þessa venjulegu rútínu á heimilinu, litlu jólin í skólanum, jólaball hjá Kananum á Stokksnesi og jólaball í Sindrabæ. Og þó, upp í hugann kemur mynd af Arnbirni Jónssyni nágranna okkar í gervi blaðskellandi jólasveins færandi epli og annan smáglaðning. Þá voru forréttindi að búa við Kirkjubrautina og fá hann í heimsókn. Lesa meira
 
Borgþór Arngrímsson

Útiserían á Sólhól og fleiri jólaljós - 05.12.2006 Jólagestir

Það hefur líklega verið árið 1956 ( ég var þá sex ára) að svilarnir á Sólhól (Bogaslóð 6) pabbi og Alli, ákváðu að rétt væri að koma upp útiseríu á Sólhól fyrir jólin, en seríur voru þá að komast í móð. Slíkt var flóknara viðureignar en nú, seríur ekki fáanlegar í búðum og því ekki annað að gera en búa þær til. Ákveðið var að strengja seríuna frá tveimur húshornum um flaggstöng sem nýbúið var að setja upp á blettinum (smíðuð hjá Guðmundi Jónssyni). Þessu fylgdi sá fyrirsjáanlegi ókostur að ekki yrði hægt að flagga á meðan serían héngi uppi en ekki þýddi að fást um það. Mér er mjög minnisstætt þegar verið var að búa til seríuna en það fór að mestu fram á eldhúsgólfinu niðri á Sólhól. Lesa meira
 
Þórgunnur Torfadóttir

Það var mikið spilað og lesið um jólin á Hala - 04.12.2006 Jólagestir

Aðventan og jólin er sá tími sem flestir halda í gamlar hefðir, annaðhvort frá sínu bernskuheimili eða hefðir sem þeir hafa sjálfir komið sér upp. Frá mínum bernskujólum er það eplalyktin, bækurnar, bridsið og smákökurnar sem eru mér efst í huga en þó fannst mér smákökudeigið nú alltaf betra en smákökurnar sjálfar. Epli voru oft til á sumrin en sjaldnar á veturna og ég man að mamma reyndi stundum að fela þau þegar þau komu í hús en með misjöfnum árangri. Eplin fann ég á ótrúlegustu stöðum þegar nefið rak mig eftir eplalyktinni. Kannski áttum við Gáttaþefur eitthvað sameiginlegt en það hefði ég þó aldrei viljað heyra sem barn því ég var óstjórnlega hrædd við jólasveinana, Grýlu og Leppalúða og þær voru margar martraðirnar sem ég fékk út af því hyski. Það var mikið spilað og lesið um jólin á Hala og afi og amma gáfu alltaf bækur í jólagjöf. Það var mikill heiður þegar ég var orðin nógu stór til að hjálpa þeim að pakka inn jólagjöfunum og ekki var það nú minni heiður þegar ég þótti orðin boðleg í bridge. Lesa meira
 
Bryndís Hólmarsdóttir

Ljósin gefa lífinu lit í bókstaflegri merkingu - 03.12.2006 Jólagestir

Í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og fólk farið að setja ljós utan á hús sín og í glugga til að lýsa upp skammdegið. Ljósin gefa lífinu lit í bókstaflegri merkingu því myrkrið er svo mikið sérstaklega þegar enginn snjór er á jörðu. Þegar maður lætur hugann reika til baka og hugsar til liðinna jóla, bernskujóla, þá var alltaf snjór og hægt að leika sér allan daginn úti. Ég er alin upp í sveit nánar tiltekið á Erpsstöðum í Dalasýslu og finnst mér að það hafi verið snjór allan veturinn að vísu mismikill en alltaf snjór. Jólaundirbúningur var líkt og hjá öðrum, húsið gert hreint og mikið bakað og gerði mamma þetta allt, að minnsta kosti finnst mér það og man ekki eftir að hafa gert mikið. Lesa meira
 
Sigrún Kapitola

Fjölskyldan um jólin - 02.12.2006 Jólagestir

Jólin eru mikill fjölskyldutími í minni minningu heima á Rifi. Allt gekk sinn vana gang í desember en á þorláksmessu fór allt að gerast. Þá tókum við systurnar og pabbi síðustu þrifin fyrir jólin og þegar því var lokið var ráðist í að skreyta húsið. Alltaf var skata í matinn á Þorláksmessu og sagði mamma að henni fyndist ekki koma jól nema fá smá skötulykt í húsið. Ég hef nú aldrei verið mikið sammála henni í því en skötuna borða ég þó með bestu lyst, en samt þara þennan eina dag á ári. Klukkan fimm á Þorláksmessu var og er alltaf haldið jólahappadrætti af Lionsmönnum í félagsheimilinu. Við systurnar fórum alltaf á þetta happadrætti og pabbi fór með okkur. Leifur afi var í Lions og hann var mjög oft að stjórna því sem fram fór á sviðinu í úrdrættinum. Það var alltaf svo gaman og þarna komu allir bæjarbúar saman og oftast pabbarnir með börnin því að mömmurnar voru heima að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn. Lesa meira
 
Guðný Eiríksdóttir

Amma bjó til sauðskinnsskó á alla fjölskylduna - 01.12.2006 Jólagestir

Jólaminningarnar eru dýrmætar og ljúft að láta hugann reika til baka þegar þessi árstími er kominn og jólaljósum fjölgar dag frá degi. Þegar ég var barn fannst mér jólin koma klukkan sex á aðfangadagskvöld, þá hlustuðum við á messu í útvarpinu og borðuðum steiktan lambahrygg eða lambalæri og heimatilbúinn ís. Á þeim árum höfðum við alltaf gervijólatré og fyrstu árin sem ég man eftir voru kerti fest á greinarnar og þá þurfti að vakta tréð meðan logaði á kertunum og ég man hvað heitt varð inni í stofunni af öllum þessum kertaljósum. Lesa meira
 
Sigurður Kr. Sigurðsson

Jólalyktin var af eplum og svo var stundum kveikt í smá grenigrein sem gaf sérstakan ilm í húsið. - 24.12.2005 Jólagestir

Ég man fyrst eftir jólahaldi í litla timburhúsinu á Grímsstaðaholtinu í Reykjavík. Þá var nú ekki byrjað eins snemma og núna að undirbúa jólin og það var ekki fyrr en á Þorláksmessu að húsið var skreytt og þá líka jólatréð. Þegar við systkinin vorum lítil sáu foreldrar okkar um að skreyta jólatréð á Þorláksmessukvöld eftir að við vorum sofnuð og stóð það skreytt og fallegt í stofunni á aðfangadag. Ég man að ár eftir ár var sama skrautið á trénu þó alltaf væri bætt einhverju við fyrir hver jól og sumir hlutir áttu alltaf sinn sama stað á trénu. Jólalyktin var af eplum og svo var stundum kveikt í smá grenigrein sem gaf sérstakan ilm í húsið. Ég held að jólahald á okkar heimili hafi verið með hefðbundnu sniði með jólamessunni í útvarpinu, miklum og góðum jólamat og gjöfum frá vinum og vandamönnum. Lesa meira
 
Halldóra B. Jónsdóttir

En hvorki kynntist ég laufabrauði eða rjúpum - 23.12.2005 Jólagestir

Lyktin af greni og Delicious eplum vekur alltaf upp minningar um jól bernskunnar. Epli fengust yfirleitt ekki nema fyrir jólin. Þegar ég man fyrst eftir mér var ég eina barnið á heimilinu, systkinin komu svo eitt af öðru þegar ég var orðin 7 ára. Við erum fimm systkinin Jólaundirbúningurinn var nokkuð hefðbundinn. Allt varð að vera hreint út úr dyrum og mamma bakaði og bjó til rjómaís. Á aðfangadagskvöld var hamborgarahryggur í matinn og hangiket á jóladag, en hvorki kynntist ég laufabrauði eða rjúpum. Á aðfangadag var stofan lokuð og læst og spenningurinn var mikill.. Ættingjar komu í heimsókn og skipst var á pökkum. Dagurinn leið svo við undirbúning, en klukkan 6 var allt tilbúið þegar jólin hringdu inn í útvarpinu þá var stofan opnuð og dýrðin blasti við. Jólatréð skreytt og pakkar undir. Stundum voru afi og amma hjá okkur og kvöldið leið í ró og kyrrð. Lesa meira
 
Hulda Laxdal Hauksdóttir

Mamma sá um að töfra fram allar krásirnar sem við gæddum okkur á um jólin - 22.12.2005 Jólagestir

Blessuð bernskujólin, mikið er nú gott að eiga þau í huga sínum og hjarta. Ég held að undirbúningur jólanna heima í Áshlíð hafi verið nokkuð hefðbundinn og byrjaði með allsherjar þrifum á húsinu. Við systkinin tókum nú eitthvað þátt í þeim verkum og mér er það minnisstætt hvað það var gott þegar pabbi var í landi þá daga sem þrifin stóðu yfir, því hann tók nefnilega að sér að þvo loftin. Mamma sá um að töfra fram allar krásirnar sem við gæddum okkur á um jólin. Hún var snillingur í öllu því sem viðkom matargerð og var mikið lagt í jólamatinn, hvort sem það var á aðfangadag eða aðra daga hátíðarinnar. Sitthvað kunni hún líka fyrir sér varðandi sætindadeildina og voru kókosbollurnar hennar og gráfíkjukúlurnar óviðjafnanlegar. Hún sá líka um það, með smá aðstoð frá okkur systkinunum, að fylla fjölmarga dunka af margvíslegum smákökum. Það kom sér vel að þeir voru margir því talsverð rýrnun varð nú á innihaldinu fram að jólum. Lesa meira
 
Aðalheiður Geirsdóttir

Ljósin í bænum voru litlir steinolíulampar - 21.12.2005 Jólagestir

,,Jólafötin á hundinn eru komin’’ þessi auglýsing berst á öldum ljósvakans inn á hvert heimili nú á síðustu dögum fyrir jól. Ósjálfrátt verður mér hugsað til þeirra Kols og Laxa, sem voru hundar bernsku minnar. Sé þá ekki fyrir mér íklædda fötum – hvað þá jakkafötum! Held reyndar að þeirri hlutdeild í jólahaldi hafi verið sú ein að fá e.t.v. eitthvað meira og betra í svanginn en venjulega. Já það eru breyttir tímar. Á þriðja áratug liðinnar aldar þegar ég man fyrst til jóla, finnst mér að myrkrið í desember hafi verið ákaflega svart. Ljósin í bænum voru litlir steinolíulampar, ekkert mjög margir, því olíuna þurfti að spara. Í fjósi og fjárhúsum var notast við ,,týrur og kolur’’. Það var reyndar stór og fallegur hengilampi litlu stofunni niðri í gamla bænum á Reyðará í Lóni. Lesa meira
 
Stella Sigfusdottir

Fyrstu jólin í ókunnu landi - 20.12.2005 Jólagestir

Árið 1995, hélt ég, ásamt eiginmanni mínum og dætrum, fyrstu jólin í ókunnu landi, en þau áttu eftir að verða mörg á komandi árum. Fyrsta árið okkar í Bandaríkjunum bjuggum við á 300 ára gömlum herragarði í bænum Greenville, í Rhode Island, sem er skammt fyrir utan Providence,höfuðborg fylkisins. Þar leigðum við ibúð hjá Adler fjölskyldunni, sem reyndust okkur afskaplega vel og voru ávallt reiðubúin til þess að rétta okkur útlendingunum hjálparhönd. Við undirbúning jólahalds komu fljótt í ljós ólíkir siðir afkomenda víkinganna borið saman við hefðbundna ameríska fjölskyldu. Við skreyttum ekki jólatréð okkar fyrr en 22. desember og það þótti Adler fjölskyldunni hin mesta fásinna. Flestir í Ameríku setja nefnilega upp jólatréð og skreyta heimilið innan og utan, á Þakkargjörðarhátíðinni, sem er síðasta helgin í nóvember. Síðan taka þau jólatrén venjulega niður þann 26.desember, þegar okkar jólahátið er enn í algleymingi. Lesa meira
 
Páll Björnsson

Ekkert sást eða heyrðist til jólasveina, eða foreldra þeirra - 19.12.2005 Jólagestir

Þar sem meira en hálf öld er liðin frá því að ég man fyrst eftir jólum þá er rétt að taka fram að jólahald í sveitum í Húnavatnssýslu var þá töluvert ólíkt því sem nú gerist. Rafmagn var ekki nema á sára fáum bæjum og þau sveitaheimili sem höfðu rafmagn fengu það frá vindrafstöðvum, ljósamótorum, eða þar sem best gerðist, frá heimilisrafstöðvum. Allar samgöngur voru erfiðari og stopulli og ég man einungis eftir einum rauðum jólum, en oft man ég eftir illviðrum og ófærð, þó aldrei svo mikilli ófærð að fólk gæti ekki farið í sérstaka kaupstaðarferð fyrir jólin. Það var altaf farið á Blönduós og ekkert annað. Þessu til viðbótar þá vorum við systkinin mörg og stutt á milli okkar svo enginn hægðarleikur hefur verið að fara af bæ með allan skarann. Kirkjuferðir voru því ekki margar um jól, enda þurfti presturinn að sinna nokkrum kirkjum og messaði því oftast í okkar kirkju milli hátíða. Hins vegar var töluvert hlustað á guðsþjónustur í útvarpinu bæði um jól og áramót. Útvarpið gekk hins vegar fyrir rafhlöðum svo ekki kom til mála að hlusta á það í tíma og ótíma. Lesa meira
 
Séra Einar Jónsson

Ætli eplalyktin hafi ekki boðað komu jólanna - 18.12.2005 Jólagestir

Það er komið fram í Aðventu. Jólin eru í nánd enn einu sinni. Tíminn líður svo hratt og fyrr en varir erum við farin að undirbúa jólahátíðina. Orðið Aðventa er komið til okkar úr latínunni, Aðventus Domíne, eða koma Drottins, ef orðrétt er þýtt. Aðventutíminn eða jólafastan öðru nafni, er tími undirbúnings og eftirvæntingar. Aðventuboðskapurinn felst í því að benda á konung konunganna, sem kom, kemur og mun koma. Hann kom í barninu litla sem var lagt í jötu í Betlehem, hann kemur í fagnaðarerindinu á hverjum jólum, og hann kemur við endi aldanna, þegar tíminn er ekki framar til, eins og við játum í trúarjátningunni. Lesa meira
 
Guðbjartur Össurarsson

Um kvöldið voru alltaf á borðum reyktir bringukollar - 17.12.2005 Jólagestir

Ég var beðinn að minnast jóla bernsku minnar með nokkrum orðum. Þá er fyrst að nefna, að ég ólst upp í vík vestur á fjörðum, þar sem nútíminn hafði ekki að fullu haldið innreið sína þegar ég var barn. Í víkinni voru á þessum tíma þrjú býli, þó að nú hafi þar enginn fasta búsetu lengur. Vegasamband var ófullkomið og oft ófært til og frá víkinni um lengri eða skemmri tíma yfir vetrarmánuðina. Rafmagn höfðum við heima á Láganúpi frá lítilli 12 volta ljósavél, sem rétt dugði til brýnustu lýsingar í íbúðarhúsinu, en rafknúin heimilistæki voru ekki til þá. Upphitun var frá stórri olíueldavél, en við hana voru ofnarnir tengdir. Hlýtt var og notalegt í gamla íbúðarhúsinu, en ekki teldist það stórt á nútímamælikvarða miðað við íbúafjöldann. Fyrst þegar ég man eftir mér voru í heimilinu yfir vetrartímann foreldrar mínir, föðurafi minn aldraður og móðuramma mín. Ég er elstur fimm bræðra, en þar sem Valdi bróðir er aðeins rúmum tveimur árum yngri en ég, get ég ekki sagt að ég muni eftir jólahaldi áður en hann fæddist. Til viðbótar heimilisfólkinu dvöldu oft móðurbræður mínir hjá okkur Lesa meira
 
Þórdís Einarsdóttir

Það mátti alls ekki borða kökurnar fyrr en á jólunum - 16.12.2005 Jólagestir

Jólin eru yndislegur tími. Og í minningunni þegar ég var að alast upp í Þinganesi, var alltaf nóg af jólasnjó. Tilhlökkun var mikil og eftirvænting. Mamma var á fullu að baka og þrífa húsið hátt og lágt og við systkinin að hjálpa til. Það mátti alls ekki borða kökurnar fyrr en á jólunum, en þá tók maður nokkrar smákökur með sér upp í rúm þegar farið var að lesa á kvöldin og mjólk með. Þegar von var á Stekkjastaur þá vorum við Halldór bróðir oft að hugsa um hvernig hann kæmist upp í gluggann til okkar (3 hæð). Einu sinni settum við stiga upp að húsinu til að auðvelda honum að komast, daginn eftir fórum við að athuga með sporin og þar voru þau auðvita og þau lágu beint niður í fjöru, hann hafði komið á bát. Lesa meira
 
Friðþór Harðarsson

Aðfangadagur byrjaði á að ég fór með frænda mínum Sæmundi Hallsyni í fjárhúsin - 15.12.2005 Jólagestir

Við hengjum seríur upp í kringum 1. des. eins og flestir Hornfirðingar gera nú orðið og finnst mér það bara notalegt, gott að létta á skammdegis drunganum og svo látum við loga lengur og lengur fram eftir janúar mánuði. Þetta var allt öðruvísi um og eftir 1970 í Laufási, þá hengdi pabbi útiseríuna upp nokkrum dögum fyrir jól, mestalagi viku fyrir. Og seríurnar sem voru með stórum perum, sem pabbi málaði með perulakki því ekki fengust litaðar perur í þá daga, þær tóku mikið rafmagn og fólk leyfði sér ekki að bruðla með rafmagnið frekar en annað og slökkt var á seríunni yfir nóttina. Á Þorláksmessudag var klárað að skreyta og við krakkarnir hjálpuðu til, svo var endað á jólatrénu og pakkarnir settir undir tréð og Fúsi bróðir var óendanlega lengi að pakka gjöfunum sem hann keypti í jólasiglingunni, kannski af því að gjafirnar voru svo stórar eða til að stríða litla bróður, gæti verið, en svo komu pakkarnir niður stigann og minn eðlilega síðastur og langstæðastur og þarna sat ég og góndi á pakkana sem næstum huldu jólatréð enda er svolítið af pökkum þar sem eru 9 manns í heimili. Lesa meira
 
Anna María Kristjánsdóttir

Þegar ég hafði aldur til þá var ég sett í að pússa silfrið - 14.12.2005 Jólagestir

Á mínu æskuheimili var aðventan yfirleitt mjög ljúf í minningunni. Jú, mamma að þrífa og baka en aldrei neitt stress. Ég fékk að hjálpa til við baksturinn og þegar ég hafði aldur til þá var ég sett í að pússa silfrið, sem alltaf var mjög fyrirkvíðanlegt. Og alltaf var mikil tilhlökkun þegar pabbi kom heim með eplakassann, já þó ég sé ekki nema 33 ára gömul þá man ég eftir þessum stóru eplakössum og gómsætum rauðum eplunum sem voru ákveðinn fyrirboði jólanna. Á Þorláksmessu var húsið alltaf skreytt og þá fengum við krakkarnir að hjálpa til, og svo eftir að systkini mín fluttu að heiman þá voru það bara ég og pabbi sem sáum um það. Ekki síður en á aðfangadag eru fastir siðir á Þorláksmessu. Þá sauð mamma alltaf hangikjötið og sýslaði í eldhúsinu á meðan við skreyttum jólatréð og lokahönd var lögð á heimilið, og alltaf vakti mamma frameftir til að búa til kertaskreytingar og skreyta grenigreinar. Lesa meira
 
Bára Margrét Baldvinsdóttir

Eftir pakkaopnunina var alltaf farið út á gamla pósthús til ömmu og afa - 13.12.2005 Jólagestir

Mínar bernsku jólaminningar eru afskaplegar ljúfar. Eins og hjá flestum voru ákveðnar hefðir sem voru skapaðar og haldast ennþá. Það var auðvitað allt gert hreint, tekið vel til og bakað heil ósköp , sem barn fannst mér reyndar smákökur ekki sérlega góðar, enn í dag borða ég nú meira af þeim. Mamma saumaði oftast á okkur jólafötin og þá reyndi nú stundum á þolinmæðina þegar verið var að máta . Það var mikið um jólaboð í minni fjölskyldu sem er mjög stór og margir sem búa hér. Á aðfangadagskvöld var alltaf farið í kirkju, síðan borðuðu amma og afi sem bjuggu á neðri hæðinni heima, alltaf hjá okkur og síðan var skipst á að opna pakkana á neðri og efri hæðinni. Eftir pakkaopnunina var alltaf farið út á gamla pósthús til ömmu og afa og þangað komu öll systkini mömmu með maka og börn svo þar var nú oft fjör. Síðan var alltaf einhvern tíman á jólum farið í jólaboð í Sandgerði (Höfðaveg 8) en þar bjó frændfólk. Lesa meira
 
Magnús Jónasson

Auðvitað var verið að bíða eftir pökkunum - 12.12.2005 Jólagestir

Eins og svo hjá mörgum öðrum þá er það í minningunni um jólin, þegar pabbi kom með eplin og appelsínurnar þá voru jólin loksins að koma þá voru þessir ávexti ekki á borðum nema á jólum og smákökurnar sem mamma bakaði einkver ósköp af, margar gerðir. En auðvitað var verið að bíða eftir pökkunum sem ekki mátti opna fyrr en eftir mat og fannst manni það frekar ósanngjarnt að þurfa að bíða eftir því að allir væru búnir að borða, en í seinni tíð hefur maður látið þennan sið bitna á sinum eigin börnum. Lesa meira
 
Birna Þ. Skarphéðinsdóttir

Ekki man ég eftir öðru en að alltaf hafi verið snjór í desember - 11.12.2005 Jólagestir

Desember er án efa sá tími ársins er minningar liðinna ára hellast yfir mig en ég hef verið svo lánsöm að þær eru allar ljúfar þó svo að maður óneitanlega sakni ástvina sem eru horfnir og þeirra sem eru fjarri tvist og bast um Evrópu. Flestallir eru löngu byrjaðir að undirbúa komu jólanna, löngu áður en aðventan byrjar, það er búið að kaupa flestallar jólagjafir, það er jafnvel búið í September, það er búið að baka, kaupa jólamatinn og setja jólaljós í glugga og garða. Persónulega vil ég hafa undirbúning jólanna á rólegu nótunum og að öll fjölskyldan sé saman í þeim undirbúningi og njóti aðventunnar saman í gleði og friði þó svo að óneitanlega spenningurinn fylli huga barnanna rétt eins og spenningurinn hertók huga minn fyrir rúmlega 50 árum þegar ég var lítil hnáta á bernskuslóðum mínum á Barónsstígnum alveg við Laugarveginn í Reykjavík. Þegar ég hugsa til þeirra ára finnst mér allt hafa verið öðruvísi þá enn nú. Lesa meira
 
Gudrún Gudmundsdóttir Hólmi

Jólahamingjan og Handy Andy - 10.12.2005 Jólagestir

Mínar fyrstu minningar um aðventuna og jólin, tengjast hreingerningaræði, mörgum smákökustaukum, eplalykt, og bókaflóði. Hún, mamma mín, bókstaflega sótthreinsaði æskuheimili mitt, í aðventubyrjun. Ég held hún hefði sómt sér vel í góðri auglýsingum um hreinsiefni. Í þessu tilfelli man ég eftir grænum Handy Andy brúsa sem fylgdi henni. En, svei mér þá, hún virtist bókstaflega njóta þessarra stunda, og söng oftast við þessa iðju. Eftir sótthreinsunina, tók við baksturinn. Ég man en ilminn af kökunum hennar, og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir við að ná þessum ilmi fram, þegar ég baka, er þessi mömmukökulykt alltaf númer eitt í huga mér. Hún saumaði líka, oft á okkur systkinin jólaföt, og svo fengum við alltaf ný náttföt fyrir jólin. Man sérstaklega eftir svona pelableikum bangsímon flónelsnáttfötum sem ég fékk einu sinni. Vá........... hvað þau voru sérlega flott. Vildi alveg eiga þau í dag bara töluvert stærra númer. Lesa meira
 
Gudmundur-Ingi-Sigbjornsson

Epli og appelsínur fengust ekki í kaupfélaginu nema fyrir jól. - 09.12.2005 Jólagestir

Á bernskuheimili mínu byrjaði jólaundirbúningurinn venjulega með því að allt var gert hreint hátt og lágt. Síðan tók við gríðarlega mikill bakstur. Kökur fylltu dunka og stauka og hillur svignuðu undan tertum af óendanlegum breytileika. Fyrir jólin var húsið skreytt. Ekki voru nú til jólaseríur líkt og nú er heldur var þetta mest pappírsskraut sem hengt var upp. Jólatré var með hefðbundnum hætti. Jólagjafir fengu allir. Við bræður fengum gjarnan einhver leikföng og bækur. Jólafötin saumaði móðir okkar enda var hún góð saumakona. Jólamaturinn var hangikjöt, heimalagaður ís, stundum rjúpur og annað góðgæti. Lesa meira
 
Hreinn-og-Kristin

Á fyrsta jólatrénu sem ég man eftir heima á Grímsstöðum voru logandi kerti - 08.12.2005 Jólagestir

Jólin nálgast og minningar um liðin jól koma og fara. Það er mikil blessun fyrir okkur á okkar kalda landi að jólin skuli haldin í svartasta skammdeginu, þegar við höfum mesta þörf á ljósi í kringum okkur. Á fyrsta jólatrénu sem ég man eftir heima á Grímsstöðum voru logandi kerti. Pabbi kveikti á þeim á aðfangadagskvöld og við sátum hljóð og horfðum á kertalogana og gengum síðan í kringum tréð og sungum sálm. Þetta var mikil kyrrðarstund, allir vissu að það þurfti að fara gætilega fram hjá kertaljósunum. Ég held það hafi svo verið þegar ég var 8 ára að Guðmundur Pálsson tengdasonur pabba bjó til jólatrésseríu, líka þeim sem við þekkjum nú. Hann bjó til kertin út einhverjum pappír sem hann rúllaði saman og málaði og pabbi hefur sennilega hjálpað honum við rafmagnið. Þetta var mikill munaður og okkur þótti óskaplega gaman að geta haft kveikt á jólatrénu allt kvöldið. Ég vildi helst ganga sem oftast í kringum jólatréð og syngja. Mamma kenndi mér jólalög og sálma og við sungum mikið tvær saman fyrir jólin. Mér er í fersku minni þegar ég heyrði Bing Crosby í fyrsta skipti syngja White Christmas í útvarpinu, mér fannst ég aldrei hafa heyrt neitt eins fallegt, ég sveif um í hrifningu. Lesa meira
 
Björn Arnarsson

Jólasveinninn í alveg eins úlpu og pabbi átti - 07.12.2005 Jólagestir

Það rifjast ýmislegt upp þegar hugsað er til baka um jólin í sveitinni það er að segja jólin á Reynivöllum í Suðursveit en þar er ég upp alinn Í minningunni var alltaf mikill tilhlökkun þegar jólin nálguðust . Eftir gegningar á Þorláksmessukvöld var farið að skreyta húsið og þá fengum við bræður að hengja það skraut á Jólatréð sem ekki var brothætt. Einu sinni man ég eftir því að það kom jólasveinn í heimsókn til okkar bræðra en það þótti mér verst að pabbi skildi ekki vera inni þegar hann kom því að jólasveinninn var nefnilega í alveg eins úlpu og pabbi átti og það þótti mér merkilegt (en hvar skildi nú pabbi hafa verið ?) jú hann var niðri í Fjárhúsi að gefa rollunum sagði mamma. Svo var það eitt sinn að Mamma var að gera gjafir fyrir okkur bræður og hafði lokað að sér inn í stofu og þá voru litlir menn nú frekar forvitnir og reyndu ýmislegt til að komast inn í stofuna og sjá nú alla dýrðina og eitthvað hafði mamma verið að föndra við körfugerð úr tágum og ég var svo ótrúlega heppnir að finna nú tág á ganginum og nú var ég viss um að nú væri ég komin með lykilorðið að stofudyrunum og með tágna að vopni fór ég að stofuhurðinni og sagði mamma ég fann tág en ekkert gekk ekki opnaðist hurðin sama hvað ég bar mig illa með tágna í höndunum. Lesa meira
 
Ragnhildur Jónsdóttir

Pabbi fór alltaf til rjúpna fyrir jólin og veiddi í jólamatinn - 06.12.2005 Jólagestir

Í minningunni voru mín bernskujól afar ljúf og skemmtileg. Það var miklu meira umstang í kringum þau heldur en við höfum í dag. Í byrjun aðventunnar og jafnvel fyrr tók mamma allt húsið í gegn og hreingerði það hátt og lágt. Síðan bakaði hún, saumaði spariföt á okkur systkinin, skrifaði á jólakort í tugavís og skreytti húsið. |Pabbi var alltaf á sjó og oft fóru bátarnir í siglingu til Grimsby og Hull og fleiri hafna í Englandi fyrir jólin og komu heim hlaðnir alls kyns framandi varningi og sælgæti. Það var sko ekki lítil sæla að mega opna stóran Macintos dunk á jólunum. Lesa meira
 
Jóhanna og Garðar

Amma lét okkur krakkana alltaf taka virkan þátt í smákökubakstri - 05.12.2005 Jólagestir

Ég ólst upp á Skútustöðum í Mývatnssveit með stór fjölskyldunni. Þetta er lítil þyrping húsa og allt nánasta frændfólk föður míns bjó þar og býr enn. Jólanna biðum við alltaf í eftirvæntingu. Í byrjun desember var byrjað að æfa jólaleikrit í grunnskólanum og var hver bekkur með leikrit eða annað atriði. Mikið var lagt upp úr að við lærðum rulluna rétt og búninga- og leikmunagerðin var ekki af lakari endanum. Leiklistin skipaði alltaf stóran sess í jólaundirbúningnum og voru skólabækurnar lagðar til hliðar svo sköpunargleðin gæti notið sín. Einnig var mikið lagt upp úr bakstri. Stór fjölskyldan kom alltaf saman eina helgi í byrjun desember og gerði laufabrauð – fleiri hundruð kökur. Konurnar löguðu deigið, flöttu kökurnar út og röðuðu þeim á hjónarúm afa og ömmu og settu lök yfir svo rakinn héldist í kökunum. Síðan voru kökurnar skornar út og var það oftast yngsti bróðir afa sem fékk þann heiður að skera fyrir okkur krakkana, síðan munduðum við hnífana og úr urðu hinar fegurstu kökur, sem voru svo steiktar og pressaðar. Ávallt biðum við eftir að afskorningarnir færu í pottinn, þeir voru þykkir og mjúkir undir tönn. Að þessu loknu var kökunum skipt upp og hver fjölskylda fékk sinn part. Síðan var haldin veisla og spilin tekin upp. Lesa meira
 
Auður Lóa Magnúsdóttir

Það var sko bakað og bakað, heill hellingur, smákökur, lagtertur og botnar. - 04.12.2005 Jólagestir

Það er ýmislegt sem rifjast upp þegar ég fer mörg, mörg ár aftur í tímann og rifja upp jólin sem barn í sveitasælunni í Svínafelli í Öræfum. Allt var gert hreint hátt og lágt, allir skápar, skúffur og silfurteskeiðarnar hennar Ingu ömmu pússaðar (man að það var ekkert skemmtilegt) Yfirleitt held ég að mamma hafi saumað á okkur jólafötin, svo tókum við yngri við fötum af eldri systrum. Það var sko bakað og bakað, heill hellingur, smákökur, lagtertur og botnar. Ekkert af þessu var snert fyrr en um jólin. Á þessum tíma var svo margt fólk í heimili og man ég að mamma bakaði svo aftur milli jóla og nýárs. Lesa meira
 
Anna og Stebbi

Um nóttina vaknaði ég og læddist á tánum fram - 03.12.2005 Jólagestir

Jólasagan mín er svona.,, Þetta var 21. desember heima á Rauðabergi, í sveitinni minni. Allur jólaundirbúningur var að verða búin, allar smákökurnar komnar í box og búið að líma fyrir þau, mamma búin að sauma á okkur systurnar jólafötin, búið að senda alla jólapakka og kort og húsið að verða hreint. Það eina sem var eftir var að fara í verslunarferð í kaupfélagið og kaupa matvörur þar með talda ávexti og svo jólatré. Við systur vorum mjög spenntar að fá jólatréð í hús því okkur fannst það undirstrika stemminguna. Næsta dag ætluðu pabbi og mamma í kaupstaðarferð og við allar með. Það var mjög spennandi að fara þessa síðustu ferð fyrir jól þar sem við fengum að kaupa eitthvað smáræði hver fyrir aðra. Við lögðumst á koddann þetta kvöld með smá fiðring í maganum af spenningi og áttum frekar erfitt með að sofna. Lesa meira
 
Gulla um jól

Á Þorláksmessu eða daginn fyrir gerði amma líka alltaf ísinn - 02.12.2005 Jólagestir

Já bernskujólin, þegar maður eldist þá fer maður smá saman að sjá þau í rósrauðum bjarma minninganna. Ég átti mitt bernskuheimili að Stóru – Mörk undir Eyjafjöllum og þaðan á ég margar af mínum bestu minningum og margar þeirra tengjast jólunum. Mér finnst til dæmis þegar ég hugsa til baka að það hafi alltaf verið snjór á jólunum. Þegar ég hugsa mig betur um þá veit ég ósköp vel að það getur nú ekki hafa verið svo. Ég man líka vel eftir einum jólum, ætli ég hafi ekki verið svona 10 ára. Það hafði lítið sem ekkert snjóað það sem af var vetrar og lítið útlit fyrir snjókomu en rétt um kl. 17:00 á aðfangadag byrjaði á snjóa í logni þessum stóru blautu flyksum sem heima hjá mér var kölluð hundslappadrífa. Á jóladag var enn að snjóa og áður en yfir lauk var allt komið á kaf í snjó. Lesa meira
 
Vilborg Einarsdóttir

Fengum alltaf ný náttföt fyrir jólin - 01.12.2005 Jólagestir

Það er ljúft að minnast bernskujólanna heima á Geithellum í Álftafirði og mikil er breytingin síðan ég var barn. Við systkinin vorum ekki gömul þegar við fórum að hjálpa til og ég held að öll börn hafi mjög gott af því að taka þátt í jólaundirbúningnum sem nú er ólíkur því sem áður var. Í nóvember var farið að hugsa fyrir því sem sauma þurfti fyrir jólin því þar var í mörg horn að líta, fjölskyldan stór og öll föt voru saumuð heima. Mamma var dugleg að sauma og ekki hafði hún sniðablöð heldur tók mál af þeim sem sauma átti á og sneið eftir þeim. Ég man hvað það var spennandi að fá nýjan kjól eða pils og við fengum alltaf ný náttföt fyrir jólin. Í desember var allt húsið gert hreint, þvegið hátt og lágt, þá voru notaðar kolavélar með tilheyrandi sóti og reyk, og ég verð að segja að það var gaman að sjá hvað allt varð bjart á eftir. Heima var mikill gestagangur og fyrir kom að fólk var að fara heim til sín rétt fyrir jól og t.d .komu einu sinni 20 manns, sem voru að fara til Hornafjarðar með skipi frá Reykjavík, en urðu að fara í land á Djúpavogi og landleiðina til Hafnar og vegna ófærðar þurfti fólkið að gista á Geithellum. Lesa meira
 
Séra Fjölnir Ásbjörnsson

Jólagjafirnar frá afa voru þær stórkostlegustu sem sést hafa - 24.12.2004 Jólagestir

Foreldrar mínir fluttu til Sauðárkróks þegar ég var lítill en vildu samt sem áður lengi vel verja jólunum í Reykjavík. Ég man vel hvað það var erfitt að ferðast á milli landshluta á þessum tíma. Þar sem foreldrar mínir átt ekki bíl var oftast nær reynt að fljúga en það gekk ekki alltaf samkvæmt áætlun og oft þurfti að bíða og vona að veðrið lagaðist. Svo þegar tími var kominn til að halda til baka eftir jólin var yfirleitt það sama upp á teningnum og við þurftum að sitja heilu og hálfu dagana úti á Reykjavíkurflugvelli í von um að komast heim. |nl|Þegar við vorum í Reykjavík bjuggum við hjá ömmu sem bjó ein í Meðalholtinu og hafði verið ekkja síðan 1963. Mér þótti mjög vænt um ömmu mína og henni sömuleiðis um mig, mér þótti þess vegna ágætt að vera hjá henni yfir jólin. Amma bjó í lítilli íbúð og átti auk þess eitt herbergi í kjallaranum þar sem við sváfum yfirleitt, foreldrar mínir og ég þegar við komum í heimsókn. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því af hverju foreldrar mínir vildu endilega hafa þetta fyrirkomulag á hlutunum en mér þótti þetta ágætt. Jólin með gömlu konunni voru hátíðlega og góð þrátt fyrir óþægindin sem fylgdu þessu jólaflakki. Lesa meira
 
Laufey Guðmundsdóttir

Skapti í Hraunkoti var jólasveinninn - 23.12.2004 Jólagestir

Það er nokkuð merkilegt að ætla að skrifa um jólin ,,í minningunni” en þegar litið er yfir farinn veg,með fullri virðingu fyrir þeim leiðum sem farnar hafa verið,, þá er ekki svo erfitt að finna eftirminnilegustu jólin að skrifa um. Mín besta minning frá jólum er úr bernskunni að Stafafelli í Lóni þar sem ég er fædd og uppalin að hluta. Undirbúningur jólanna var ekki mjög flókinn, farið var á Höfn í desember, ekki neinn sérstakur dagur notaður í það, bara sá sem hentaði í það og það skiptið. Þó var reynt að hafa ferðin fyrri hluta mánaðarins. Ferðalagið tók, í þá daga nokkrar klukkustundir, ekki var bifreiðin nein rosaleg spíttkerra, svo bættist við, holóttir vegir, kíkja fram af Skarðinu til að vita hvort einhver væri á móti, ef ekki, þá var lagt í fjallveginn rosalega. Fastir liðir í Hafnarferðinni voru að heimsækja móðursystur mínar og þeirra fjölskyldur,fara í Kaupfélagið, og svo það sem var mest spennandi ,að fara til Hrafnhildar og Agga. Lesa meira
 
Ingibjörg L. Ragnarsdóttir

Ég fékk alltaf bækur í jólagjöf frá því að ég man eftir mér - 22.12.2004 Jólagestir

Mér er mjög ljúft að minnast jólanna úr bernsku, undirbúningurinn byrjaði með bakstri á jólasmákökunum mamma bakaði alltaf margar sortir og fullt af gómsætum tertum. Mamma saumaði alltaf nýjan kjól handa mér fyrir jólin. Pabbi og mamma fóru í kaupstaðinn fyrir jólin og sáu um að versla það sem til þurfti og stundum fékk ég að fara með. Jólahátíðin gekk í garð þegar búið var að sinna skepnunum eins og títt er í sveitum og var þeim alltaf gefið heldur meira en í annan tíma og eftir að rafmagnið kom var látið loga ljós hjá kúnum fram eftir. Lesa meira
 
Emil Þorsteinsson

Undirbúningur hófst að stórfelldri söfnun á Þvolbrúsum - 21.12.2004 Jólagestir

Á fyrstu bernskuárunum komu jólin, þegar Uni Meik ( Unnsteinn Guðmundsson) úr Sólbæ safnaði okkur strákunum saman og undirbúningur hófst að stórfelldri söfnun á Þvolbrúsum. Sú söfnun gat tekið nokkra daga og það sem gerði það líka mjög spennandi var að fara í söfnunarleiðangur akandi um alla Höfn í Fólksvagninum hans Una, sem var náttúrulega aðal farartækið í götunni ,,okkar” í þá daga. Stór þáttur af þessari stórkostlegu ljósasýningu hjá Unnsteini upplifði ég að Reynigerði (Hagatún 12), sem var æskuheimili mitt varð hluti að þessari ljósadýrð þar sem Unnsteinn fékk leifi til að hengja þvolbrúsaljósakeðjuna úr Reynigerði yfir í Sólbæ. Mér er líka minnisstætt frá þessum tímum þegar Hornfirskir bátar fóru í siglingar til Þýskalands og Englands, þegar maður smakkaði í fyrsta skipti, enskar Toffee karamellur og Makkintoss úr stórum járndunkum, það var þegar það var bragð af sælgætinu og maður fékk það, ef maður var heppin einu sinni ári. En það fór náttúrulega allt eftir því hvort pabbi hafði náð að safna saman blýi og kopar og semja um við einhverja sjómenn að taka þetta með í siglinguna og fá gott verð fyrir þegar út vær komið. Lesa meira
 
Svandís Bogadóttir

Bræður mínir fimm voru duglegir við uppvaskið eftir matinn - 20.12.2004 Jólagestir

Undirbúningur jólanna þegar ég var að alast upp heima á Djúpavogi var hefðbundinn allt þrifið hátt og lágt, mikið bakað bæði smákökur og tertur og kökudunkarnir innsiglaðir með límbandi því ekki var boðið upp á smákökur fyrr en á aðfangadagskvöld með súkkulaðinu. Ég man eftir að sérlega vinsælar voru málsháttakökur, alltaf spennandi að heyra hvaða málshátt hver fékk. Mamma saumaði jólafötin á okkur systkinin og heklaði eða prjónaði vesti á strákana, og ný náttföt fengum við alltaf fyrir jólin. Einn var siður á mínu heimili þegar jólasveinarnir fóru að týnast til byggða þrettán dögum fyrir jól að skrifa nöfn þeirra á blað í réttri röð og síðan var sá gestur sem fyrstur kom í heimsókn þann daginn jólasveinn dagsins, svo þegar allir sveinarnir voru mættir voru nöfn gestanna sett í skál og eitt nafn dregið út og fékk sá gestur smá gjöf. Lesa meira
 
Ásdís Gunnarsdóttir Hofi

Alltaf tekið sauðahangikjöt í jólamatinn - 19.12.2004 Jólagestir

Þegar ég lít til baka og rifja upp mín bernskujól á Hnappavöllum kemur upp í hugann að alltaf fengum við systurnar nýja kjóla fyrir hver jól og lagði mamma oft mikið á sig til að ljúka við saumaskapinn í tæka tíð. Ég man sérstaklega eftir kjól úr bleiku tafti, sem pantað hafði verið eftir prufum sem komu frá KS Vík. Ég var mikið búin að skoða efnið og strjúka og fylgdist vel með þegar verið var að sníða kjólana en þeir voru með hringskornu pilsi og miklum pífum á blússunni. Það var alltaf bakað mikið fyrir jólin bæði smákökur, jólakökur og sneiddar tertur og oft var verið að fram á nótt því rafmagnið var af skornum skammti á bæjunum og því oft hærri spenna á nóttunni Þá fengum við einnig epli rauð og gljáandi og fylgdi þeim sérstakur ilmur sem var ótvírætt vitni um að jólin væru að nálgast. Lesa meira
 
Ásta Ásgeirsdóttir

Albert hefur alltaf eldað matinn en ég bý til ísinn - 18.12.2004 Jólagestir

Þær jólaminningar sem fyrst koma upp í hugann tengjast jólahaldi og -undirbúningi á Þinghól (Bogaslóð 10), æskuheimili mínu. Um húsið barst jólaangan af eplum og úr eldhúsinu barst kökuilmur frá mömmu sem bakaði t.d. smákökur og kramarhús sem fyllt voru með rjóma og ávöxtum. Sérstakir eplahnífar voru teknir fram aðeins á jólunum og til að viðhalda minningunni nota ég þessa hnífa enn þann dag í dag þegar fjölskyldan kemur saman til að skera út laufabrauð. Mamma steikti alltaf laufabrauð sem ekki var algengur siður hér á Hornafirði í þá daga. Lesa meira
 
Laurey Helgadóttir

Desember mánuður var eitt ævintýri heima - 17.12.2004 Jólagestir

Að minnast sinna bernskujóla er mér afar ljúft.Ég er fædd og uppalin á Höfn, ég er elst þriggja systra. Foreldrar mínir eru Helgi Hálfdanarson og Vilborg Einarsdóttir.Þegar ég man jólin og undirbúning jólanna bjuggum við á Hafnarbraut 37 þar sem foreldrar mínir búa enn. Höfn var þá lítill bær og maður þekkti nánast alla. Foreldrar mínir unnu mikið og var ekki oft að pabbi væri heima bæði á laugardögum og sunnudögum, ég held að það hafi verið algjör undantekning ef svo bar við. Í minningunni var miklu kaldara í veðri en kannski eru fötin sem við eigum í dag hlýrri.Við krakkarnir biðum eftir að jólaljósin á Grísstaðarhæðinni og Sólbæ væru sett upp, og mikið voru þau falleg. Lesa meira
 
Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi

Ekkert jafnast á við að geta verið heima með krökkunum. - 16.12.2004 Jólagestir

Þegar ég átti heima í Skaftafelli var það á þeim árum þegar snjóaði á veturna. Þá varð vegurinn upp í Hæðir oft ófær, því þó að hægt væri að brjótast á bíl upp í Bölta, komu oft stórir skaflar á veginn þar fyrir ofan, svo það var með öllu ófært. Þessi vetur sem ég minnist á hér, var snjóþungur og því ófært upp. Þess vegna var |bíllinn okkar geymdur í skemmu við brekkurnar, sem var fyrir austan varnargarð Skeiðarár. Síðan gengum við upp Drangana og komum upp túnið fyrir neðan Selbæinn. Þennan vetur höfðu foreldrar mínir gert jólainnkaupin í búðinni á Fagurhólsmýri eftir að ófært var orðið heim. Við höfðum borið með okkur eitthvað af viðkvæmustu vörunum s.s. jólagjafir og ávexti upp brekkurnar þegar úr verslunarferðinni kom en skilið s.s. niðursuðuvörur og þess háttar eftir í bílnum. Lesa meira
 
Inga Jónsdóttir jólagestur

Frá því að ég man eftir mér hefur síld alltaf tengst jólamatnum - 15.12.2004 Jólagestir

Það er misjafn hvenær jólaundirbúningurinn hefst hjá mér, aðalatriðið er að njóta undirbúningsins og komu jólanna. Halda gleðinni á lofti, muna tilgang gjörðanna og gerast ekki þræll hefða. Mín bernskujól átti ég flest í Hveragerði með tilheyrandi jólaboðum til ömmu og afa á Selfossi og til ömmu í Reykjavík. Allan okkar búskap höfum við Þorgils ekki búið í sama bæ og foreldrar okkar eða nánasta fjölskylda og ákváðum við strax að halda okkar eigið aðfangadagskvöld en þegar færi gefst reynum við að eiga jólastundir með stórfjölskyldunni. Það tekst þó ekki alltaf, því oftast erum við bundin á öðru landshorni og þar áður erlendis. Utan Íslands höfum við haldið jól í Danmörku og Þýskalandi og í báðum löndunum höfum við kynnst nýjum hefðum, sem sumar laumast inn í okkar hefðir. Lesa meira
 
Vigdís Guðbrandssóttir

Allir nutu þess að líta í bók eða horfa á ljósin skæru. - 14.12.2004 Jólagestir

Minningar mínar eru frá jólunum milli 34-39 á Heydalsá í Strandasýslu. Bernskujólin mín voru mikið tilhlökkunarefni og undirbúningurinn mikill eins og enn þann dag í dag, þó með öðru sniði. Ekki fórum við sveitabörnin í neina verslun en ég man eftir því að pabbi sat hjá okkur börnunum og sneið úr fallegum blöðum, rauðum, grænum og hvítum. Úr þessu voru svo búin til hjörtu, kramarhús og körfur sem áður vöru gerðar úr þunnum pappa. Í þetta lét svo mamma súkkulaði (suðu), gráfíkur sem voru lostæti, og fallegan brjóstsykur. |nl|Jólatré sem ég man fyrst eftir var heimasmíðað og stóð á gólfi og var sett lyng á það og á armana voru sett kerti og svo auðvitað körfurnar og hjörtun. Það var ógleymanleg stund er rennihurðin var opnuð og tréð blasti við, en það varð nú að bíða þar til öllum verkum var lokið. Lesa meira
 
Gísli Már Vilhjálmsson

Háma í sig konfekt og drekka mikið jólaöl - 13.12.2004 Jólagestir

Það er mjög stór hluti af mínum jólaundirbúningi fólgin í gömlum og nýjum hefðum sem í dag mætti kalla okkar hefðir. T.d í gamla daga heima hjá mömmu var skreytt á Þorláksmessu en núna byrjum við miklu fyrr, jólatréð þó alltaf skreytt á Þorláksmessukvöldi. Í gamla daga voru öll jólakort opnuð strax til að engin myndi gleymast en núna opnum við þau á aðfangadagskvöld þannig veist þú lesandi góður, ástæðuna ef þú færð ekki kort fyrr en milli jóla og nýárs !! Jólasmákökurnar voru geymdar sem hernaðarleyndarmál til jóla. Síðan var þessu úðað í sig ef ég var ekki of seinn þar sem ég á tvo eldri bræður þurfti nú oft að taka tillit til þeirra fyrst en síðan komu mínar þarfir eða svo minnir mig allavega. Lesa meira
 
Magnhildur Gísladóttir

Ég held enn þann sið að borða hangikjötið hjá mömmu á jóladag. - 12.12.2004 Jólagestir

Mér finnst aðventan vera yndislegur tími. Aðventan hefur breyst mjög mikið frá því ég var lítil. Núna finnst mér þetta vera sá tími sem fólk er duglegt að búa sér til notalega stund. Á æskuheimili mínu breyttist móðir mín í stórvirka hreingerningarvél. Hún þvoði allt hátt og lágt inn í skápum og alls staðar svo það var eins gott að verða ekki á vegi hennar. Einnig voru bakaðar smákökur en þær mátti ekki borða fyrr en jólin voru gengin í garð því allt var innsiglað í staukum. Á aðfangadag voru jólakortin borin út en eftir það var spennan alveg að ná hámarki. Þá tók móðir mín á það ráð að leyfa þessu óþolinmóða barni sínu að taka upp einn pakka sem var yfirleitt frá móðursystir minni henni Ástu. Það var alltaf borðað svínakjöt á aðafangadagskvöld frá því ég man eftir en síðan hangikjötið á jóladag. Og ég man alltaf eftir hvað mig langaði alltaf að heimsækja Dísu vinkonu mína Imsland á aðfangadagskvöld til að sína henni gjafirnar en eins var þá Lesa meira
 
Ingólfur Einarsson

Ég hef eldað jólahrygginn frá því ég var í gaggó - 11.12.2004 Jólagestir

Jóla undirbúningurinn hefst þrem vikum fyrir jól en þá eru fyrstu jólahlaðborðin og einkennist desember af því að vinna allar helgar, börnin ekki alltaf ánægð en svona er þetta. Hér úr fortíðinni voru það jólaböllin á Stokksnesi og hjá Lions sem var beðið eftir það var mikill eftir vænting að fara með Ingólfi afa útá nes á jólaball og fá stóru rauðu eplin sem voru á stærð við handbolta eða kannski eru þau bara svona stór í minningunni og svo kom jólasveininn með þyrlu. Þar var allt í boði, matur, nammi og skemmtun, Lions jólaböllin standa enn og nú fer maður með sín eigin börn þangað um hver jól. Lesa meira
 
Ragnhildur Guðmundsdóttir

Aðventan er mikill uppáhalds tími hjá mér - 10.12.2004 Jólagestir

Ég er í kirkjukór og í byrjun nóvember erum við farin að æfa jólalögin og þá kemur alltaf svo góð tilfinning. Svo koma jólabækurnar og þá les maður meira en á öðrum tíma. Þegar ég hugsa til baka um jólin og aðventuna þegar ég var barn, þá kemur Unnsteinn bróðir minn fyrst upp í hugann. Hann var og er einstaklega lagtækur. |nl|Við áttum heima í Sólbæ (Hagatúni 14) og þar breyttist húsið og garðurinn í ævintýraland. Við Gyða vinkona vorum sendar í hús til að fá tóma þvolbrúsa (undan uppþvottalegi), sem svo voru notaðir sem skermar yfir perur sem vafðar voru utanum flaggstöngina og blikkuðu. Uppi á húsinu var stór stjarna með grænum perum og líka stór hringur með lituðum perum og blikkandi ljósum. Síðan var sería úr okkar húsi yfir götuna til Dadda og Ollýar. Þetta var glæsilegt, maður var ekki vanur svona miklu skrauti eins og er í dag. Lesa meira
 
Jóhanna Arnbjörnsdóttir

Við erum búin að baka nokkrar sortir af smákökum - 09.12.2004 Jólagestir

Í dag, þegar ég skrifa þetta, er 1 des og það er svolítið sérstakur dagur hjá okkur, Alexander Jósep og Elisabeth María voru fædd þann dag fyrir 7 árum, þegar litið er til baka hafa þessi 7 ár liðið ótrúlega fljótt. Það eru löngu komin jól hér ef miðað er við allt skrautið bæði á götum og í öllum verslunum og allt er rosalega ýkt, já bara eins og í þessum amerísku jóla bíómyndum, það er eins og þegar að einn nágranni byrjar þá geta hinir ekki beðið og hér eru að spretta upp svona jólaskreytingar í hverjum garði, þetta er eins og allir séu "Öddar" hér en þó er hann nú bara hóflegur á miðað við þetta. Ég hef nú vanist því að það sé allavega komin desember þegar jólaskrautið er sett upp og þannig verður það á okkar heimili, við byrjum að skreyta á morgun. Við erum búin að baka nokkrar sortir af smákökum en svo fannst mér ekki vera jól af því að mig vantaði hunangstertuna hennar mömmu, hún var vön að gera þær og þær eru bestar. Lesa meira
 
Birna Aðalsteinsdóttir

Allt er tekið með stökustu rólegheitum - 08.12.2004 Jólagestir

Hér i Danmörku er jólaundirbúningurinn hafinn en langt frá að það sé stress i kringum hann eins og heima (Þá hefur Island breyst) hér er ekki kappsmál um hver er búinn að baka mest og þvo og þrifa mest. Hér eru heldur ekki jólaljós í öllum gluggum, þökum, grindverkum og þakskeggjum og alls ekki litaðar perur í seríum. Allt er tekið með stökustu rólegheitum og allir að hugga sig (eins og það er kallað hér). Julefrukosten er hér i fullum gangi og ég er að fara á einn slíkan á morgun með gömlum og nýjum ekta dönskum mat og með honum er drukki öl og skálað í snafsi. Það stóð i dagblaðinu i gær að julefrokosten væri að tröllríða Danmörku um þessar mundir. Lesa meira
 
Geirlaug Ottósdóttir

Á aðventunni er súkkulaðidrykkja tekin mjög alvarlega. - 07.12.2004 Jólagestir

Jólin á mínu æskuheimili mótuðust af því að foreldrar mínir unnu alltaf mikið fyrir okkar sóknarkirkju, Bústaðakirkju. Það má segja að kirkjan hafi verið órjúfanlegur hluti af jólum og jólaundirbúningi í foreldrahúsum. Mamma var í kirkjukórnum og ég skottaðist alltaf með henni í allar messur og á flestar æfingar. Á fyrsta sunnudag í aðventu var aðventukvöld í kirkjunni þar sem alltaf var flutt mikil og hátíðleg tónlist. Í lokin voru ljósin slökkt í kirkjunni og allir fengu lítið kerti til að kveikja á, á meðan Heims um ból var sungið. Þetta fannst mér sannkölluð jólastemning og í raun inngangur að jólahátíðinni. Lesa meira
 
Ástríður Sveinbjörnsdóttir Jólagestur dagsins í dag.

Jólagestur vefsins í dag er Ástríður Sveinbjörnsdóttir. - 06.12.2004 Jólagestir

Ég var svo lánsöm að alast upp í stórum systkinahópi á Valgeirsstöðum þar sem foreldrar mínir bjuggu ásamt afa og ömmu, Valgeiri og Sólveigu. Eins og nærri má geta var mikið að gera fyrir jólin en mest var tilhlökkunin þegar eplakassinn var kominn í hús. Hann átti sinn sess á vissum stað í húsinu og afi átti það til að sækja eitt og eitt epli og gefa okkur bita. En það kom að sjálfsögðu í hlut kvennanna að undirbúa allt innanhúss, þrífa, baka og sauma fötin á öll börnin. Margt kvöldið í desember sofnaði ég við saumavélarhljóð hjá ömmu og síðan hjá mömmu þegar við vorum flutt í Hagatúnið. Og svo vaknaði maður við þennan líka yndælis ilm frá bakstrinum á morgnana. Það var lítið um sælgæti en brúnu kökurnar (loftkökur) hennar mömmu voru það besta sælgæti sem við fengum. Það var sko ekkert smáræði sem var bakað af þeim fyrir jólin og ég man ekki betur en Júlli í Sólbæ fengi einn kökustauk fullan af þessu lostæti fyrir hver jól frá mömmu. Lesa meira
 
Jólagesturinn í dag er Birna Ingólfsdóttir sem stödd er í Noregi.

Jólagestur vefsins í dag er Birna Ingólfsdóttir sem búsett er í Noregi. - 05.12.2004 Jólagestir

Jólaundirbúningurinn hérna í Noregi er á svipuðum nótum og á Íslandi. |nl|Við Íslendingarnir hérna keppumst við að fá sendan jólamat frá Íslandi, en að sjálfsögðu eru engin jól án hangikjöts og flatbrauðs. Malt og appelsín verða mikilvægustu drykkirnir og Nóa konfektið tekur konunglegu norsku konfekti langt fram. Allar íslenskar venjur verða tvöfalt mikilvægari þegar maður býr í útlöndum. Pakkarnir verða að komast tímalega í póst og líka jólakortin. Hérna þýðir ekkert að vera með allt á síðustu stundu í þeim efnum. Smákökurnar eru bakaðar að íslenskri fyrirmynd og uppskriftum hefur nú verið dreift til vina í Noregi, því ekkert jafnast á við þær íslensku. Lesa meira
 
Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ

Á aðfangadagskvöld var alltaf lambasteik - 04.12.2004 Jólagestir

Það er ljúft að líta til baka og rifja upp jólahald á bernskuheimili mínu. Ég fæddist og ólst upp á Herjólfsstöðum í Álftaveri í Vestur Skaftafellssýslu. Á heimilinu voru auk foreldra minna og systkina, föðurafi og amma. Föðursystkini mín, þau Lára og Loftur áttu þar einnig heimili en stunduðu vinnu fjarri heimahögum, einnig ungur piltur sem kom inn á heimilið fermingarárið sitt og dvaldi þar upp frá því, en stundaði nám yfir veturinn, fyrst í Skógaskóla og nam síðan skipasmíði. Afi lést þegar ég var sjö ára en ég var tvítug þegar amma kvaddi þennan heim. |nl|Í byrjun jólaföstu drógum við Þura systir fram jólasveinabókina okkar. Við vorum elstar en síðar tóku yngri systkini okkar við. Í hana skrifuðum við niður alla gesti sem komu fram til jóla og snemma var nú metnaðurinn kominn fram og spenningurinn snérist um það hvort við heimtum fleiri jólasveina heldur en krakkarnir í vesturbænum. Lesa meira
 
Guðný Svavarsdóttir

Jólasveinninn sískrifandi í glugga Kaupfélagsins - 03.12.2004 Jólagestir

Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann þegar jólin eru annarsvegar, skrýtið hvað jólaminningar eru ofar í huganum en aðrar minningar. Ég man til dæmis eftir jólaböllum í Hafnarskóla, það var nú ekki langt að fara þangað heiman frá mér. Einnig er mér minnisstæður jólasveinninn sískrifandi í glugga Kaupfélagsins, hvað hann gat skrifað allann guðslangann daginn og virtist alls óþreytandi. Og talandi um Kaupfélagið þá var nú aldeilis góð lyktin sem kom með eplunum og appelsínunum fyrir jólin, alveg gat maður gleymt sér þar. Ennþá minnir þessi lykt mig á jólin og notalegheitin sem fylgja þeim. Lesa meira
 
Asdis-Marteinsdottir_IMG_46

Jólamaturinn var hangikjöt og saltkjöt - 02.12.2004 Jólagestir

Jólagestur vefsins í dag er Ásdís Marteinsdóttir. “Ég er ekki byrjuð á jólaundirbúningnum ennþá en það kemur að því. Nú er enginn fatasaumur eða stórhreingerningar fyrir jólin eins og áður var. Ég baka ekki orðið nema 1-2 kökusortir og einhverjar tertur. Þegar ég var að alast upp í Ási í Nesjum var margt sem varð að gera fyrir jólin, þá var allstaðar þvegið og skrúbbað hátt og lágt, fægt og pússað því allt varð að vera tandurhreint þegar jólin gengju í garð. Við krakkarnir fengum alltaf ný föt sem mamma saumaði og prjónaði. Það var mikið bakað heima í þá daga, margar sortir af kökum og randalínur. Ég man ekki eftir rjómatertum fyrr en ég var orðin 11-12 ára og þær voru skornar í stykki áður en rjóminn var settur á þær, þá þekktust ekki svampterturnar. Jólamaturinn var hangikjöt og saltkjöt en engar steikur fyrr en frystigeymsla kom á Höfn og hægt var að geyma nýtt kjöt. Epli og appelsínur fengum við aðeins um jólin, þá barst eplailmurinn um húsið,nokkuð sem ekki finnst af eplunum núna. Lesa meira
 
Svava Bjarnadóttir

Jólagestir og uppskriftir á Hornafjorður.is - 01.12.2004 Jólagestir

Flestir hafa gaman af að heyra um jólahald vina og kunningja og hvernið það var í ,,gamla daga” og höfum við á hornafjörður.is ákveðið að vera með einn jólagest hvern dag til jóla, fá hann til að rifja upp jólaundirbúning hér áður fyrr og einnig að gefa okkur góða og auðvelda uppskrift af jólakökum, en eins og allir vita er aldrei of mikið af þeim. |nl|Fyrsti jólagesturinn er Svava Bjarnadóttir. Ég er og hef alltaf verið mikið jólabarn og alltaf þurft að gera allt sem íslenskar húsmæður halda að þurfi að gera fyrir hver einustu jól,þ.e.a.s. henda út úr öllum skápum hreingera allt húsið hátt og lágt, jafnvel láta skipa um hitt og þetta,. baka 25 smákökusortir og að minnsta kosti brúna og hvíta randalínu, gera ísinn og allt þar fram eftir götunum. Það var líka yfirleitt þannig að þegar allir voru búnir að borða á aðfangadagskvöl og taka upp pakkana þá lá mamman í roti eftir allt erfiðið á aðventunni. Lesa meira
 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica