Albert hefur alltaf eldað matinn en ég bý til ísinn
Ásta Ásgeirsdóttir er jólagesturinn í dag
Þær jólaminningar sem fyrst koma upp í hugann tengjast jólahaldi og -undirbúningi á Þinghól (Bogaslóð 10), æskuheimili mínu. Um húsið barst jólaangan af eplum og úr eldhúsinu barst kökuilmur frá mömmu sem bakaði t.d. smákökur og kramarhús sem fyllt voru með rjóma og ávöxtum. Sérstakir eplahnífar voru teknir fram aðeins á jólunum og til að viðhalda minningunni nota ég þessa hnífa enn þann dag í dag þegar fjölskyldan kemur saman til að skera út laufabrauð. Mamma steikti alltaf laufabrauð sem ekki var algengur siður hér á Hornafirði í þá daga.
Mamma saumaði oftast á mig jólakjólinn og dúkkan mín fékk meira að segja nýjan kjól sem mamma saumaði úr afgöngum af efninu. Það var ekki það eina sem var gert fyrir dúkkuna því rúmfötin hennar voru alltaf þvegin og straujuð fyrir jólin.
Pabbi var í kirkjukórnum og sat oft við orgelið og söng, okkur heimilisfólkinu til óblendinnar ánægju því ekki hljómuðu jólalögin á mörgum rásum útvarpsins né í öðrum tækjum eins og í dag.
Jólagjafir tengjast ekki svo mikið minningunni enda ekki stórar í sniðum. Þó ríkti alltaf mikil eftirvænting þegar átti að taka þær upp.
Eftir að ég stofnaði fjölskyldu bjuggum við um tíma í Hafnarfirði og frá þeim árum á ég góðar minningar sem tengjast móðursystur minni, Jórunni, sem þá bjó í miðbænum. Á aðventunni í undirbúningi jólanna var oft arkað upp og niður Laugaveginn í kulda og trekki með fangið fullt af pinklum og pökkum. Þá var svo notalegt og alveg sérstök tilfinning að koma inn í hlýjuna til Jórunnar og upplifa stemmninguna sem fylgdi kertaljósunum og fallega dekkaða borðinu með sparistellinu. Að sjálfsögðu var boðið upp á heitt kakó og jólakökur sem Jórunn naut að veita fólki. Ég reikna með að smáfólkið hafi ekki síður notið þess eftir maraþongöngu með móður sinni (en hvar var faðirinn? Alltaf í boltanum).
Ég hygg að í dag sé jólahald fjölskyldunnar svipað og hjá mörgum. Oftast förum við í kirkju á aðfangadag. Við höfum alltaf aspassúpu og hamborgarahrygg á aðfangadagskvöld og heimalagaðan ís á eftir. Albert hefur alltaf eldað matinn en ég bý til ísinn. Á jóladag skiptast fjölskyldur Alberts á að halda fjölskylduboð og á annan í jólum býður Sævar sonur okkar upp á margréttaða humarveislu sem er kærkominn eftir kjötveislurnar.
Við höfum alltaf reynt að muna eftir smáfuglunum á þessum árstíma og gefum þeim aukaskammt yfir hátíðarnar.
Að lokum vil ég óska öllum lesendum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Ég læt fylgja með uppskrift af tertu sem er gott að eiga í frysti.
Mömmutertan góða.
3 eggjahvítur
200 gr sykur
þeytt saman
2 bollar kornflakes
1 tsk. lyftiduft
sett varlega saman við eggjahvíturnar og sykurinn.
bakað í tveimur formum í eina klst. við 150 gráðu hita.
1/4 ltr. rjómi sett á milli
Súkkulaðikrem:
100 gr. suðusúkkulaði
2 eggjarauður
1 dl. rjómi
bræðið súkkulaðið og kælið, þeytið eggjarauðurnar setjið súkkulaðið saman við síðan rjómann. Kremið sett yfir kökuna.
Frystið kökuna .takið úr frysti 1 1/2 klst. áður en hún er borin fram.
Verði ykkur af góðu.




Skrifa athugasemd