Jólagestir
Ragnhildur Jónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir

06.12.2005 Jólagestir

Pabbi fór alltaf til rjúpna fyrir jólin og veiddi í jólamatinn

Jólagestur okkar í dag er Ragnhildur Jónsdóttir

Í minningunni voru mín bernskujól afar ljúf og skemmtileg. Það var miklu meira umstang í kringum þau heldur en við höfum í dag. Í byrjun aðventunnar og jafnvel fyrr tók mamma allt húsið í gegn og hreingerði það hátt og lágt. Síðan bakaði hún, saumaði spariföt á okkur systkinin, skrifaði á jólakort í tugavís og skreytti húsið. Pabbi var alltaf á sjó og oft fóru bátarnir í siglingu til Grimsby og Hull og fleiri hafna í Englandi fyrir jólin og komu heim hlaðnir alls kyns framandi varningi og sælgæti. Það var sko ekki lítil sæla að mega opna stóran Macintos dunk á jólunum.

Ég ólst upp á Fiskhól 5 þar til ég var 13 ára. Í því húsi var köld geymsla inn af stofunni og þar geymdi mamma stóra dunka með jólakökum og Macintosdósirnar þegar þær voru til. Ég segi mamma geymdi þetta sælgæti þar, en hún hélt að hún væri að fela það. Við Axel bróðir minn vissum nú lengra en nef okkar náði og laumuðumst annað slagið til að gæða okkur á innihaldinu og héldum að enginn fattaði það. En einn daginn var búið að líma lokin aftur með límbandi. Þar fór sú veisla.

Við settum upp síðustu skreytingarnar á þorláksmessu, skreyttum jólatréð um kvöldið og allan tímann var hlustað á jólakveðjurnar í útvarpinu. Á aðfangadagsmorgunn keyrði pabbi okkur krakkana svo um bæinn til að bera út jólakort og pakka.

Pabbi fór alltaf til rjúpna fyrir jólin og veiddi í jólamatinn. Við borðuðum rjúpur á aðfangadag og hinn klassíska frómas móður minnar á eftir. Erfiðast var að bíða eftir að mega taka upp pakkana. Þá máttum við ekki taka upp fyrr en búið var að vaska upp og ganga frá eftir matinn. Aðfangadagskvöld var eini dagur ársins sem ég man eftir að pabbi hjálpaði mömmu að vaska upp. Og hann var svooooo lengi. Loks var sest inn í stofu og pabbi las pakkana í sundur. Eftir búið var að opna pakkana dáðumst við að innihaldi þeirra þar til mamma töfraði fram dýrindis kvöldveislu með smákökum, rúllutertu með rjóma og einu rauðu kokteilberi ofan á og brauðtertu. Uppáhaldssmákökurnar mínar voru kókoshringirnir hennar mömmu. Svo kom rúsinan í pylsuendanum heitt súkkulaði með þeyttum rjóma. Ekkert kakósull það kvöldið.

Ég man eftir því að eftir að við urðum eldri fannst okkur krökkunum stundum sem aðfangadagskvöld væri alveg óendanlega heilagt. Það mátti ekki spila á spil, ekki hlusta á tónlist nema sálma, ekki vera með nein háreisti og alls ekki fara út úr húsi til að heimsækja vinina. En þetta skipti svo sem litlu máli því nóg var við að vera og aðfangadagskvöld fljótt að líða í hlýjunni við kertaljós, góðgæti og notalegheit með fjölskyldunni sinni.

Svona er nú jólaminningin mín og hér kemur uppskriftin af kókoshringjunum hennar mömmu.

250 gr. hveiti
250. gr. kókosmjöl
250 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
1 tsk. lyftiduft
2 egg
Deigið hnoðað og búnir til hringir í sprautumóti í hakkavél. Bakað við 220 °C hita í 10 mínútur eða það til hringirnir eru orðnir ljósbrúnir að lit.

Með þessu öllu sendi ég ykkur öllum jólakveðjur
Ragnhildur Jónsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica