Jólagestir
Bára Margrét Baldvinsdóttir
Bára Margrét Baldvinsdóttir
Bára Margrét Baldvinsdóttir

13.12.2005 Jólagestir

Eftir pakkaopnunina var alltaf farið út á gamla pósthús til ömmu og afa

Jólagestur okkar í dag er Bára Margrét Baldvinsdóttir

Mínar bernsku jólaminningar eru afskaplegar ljúfar. Eins og hjá flestum voru ákveðnar hefðir sem voru skapaðar og haldast ennþá. Það var auðvitað allt gert hreint, tekið vel til og bakað heil ósköp , sem barn fannst mér reyndar smákökur ekki sérlega góðar, enn í dag borða ég nú meira af þeim. Mamma saumaði oftast á okkur jólafötin og þá reyndi nú stundum á þolinmæðina þegar verið var að máta . Það var mikið um jólaboð í minni fjölskyldu sem er mjög stór og margir sem búa hér. Á aðfangadagskvöld var alltaf farið í kirkju, síðan borðuðu amma og afi sem bjuggu á neðri hæðinni heima, alltaf hjá okkur og síðan var skipst á að opna pakkana á neðri og efri hæðinni. Eftir pakkaopnunina var alltaf farið út á gamla pósthús til ömmu og afa og þangað komu öll systkini mömmu með maka og börn svo þar var nú oft fjör. Síðan var alltaf einhvern tíman á jólum farið í jólaboð í Sandgerði (Höfðaveg 8) en þar bjó frændfólk.

Ég man eftir einhverjum jólum þegar var mikið um rafmagnsleysi þá var farið til Bryndísar og Helga , því þau bjuggu í sama húsi og loftskeytastöðin og þar var alltaf rafmagn þar var hægt að horfa á sjónvarp. Stundum fékk maður gjafir frá útlöndum ef Öddi frændi fór í siglingu það var auðvitað mjög flott.
Síðan nammið sem kom úr siglingum, epla og appelsínulyktin sem var alltaf svo góð.



Hér kemur uppskrift af eftirrétt sem búinn er að vera á borðum á aðfangadagskvöld á þessu heimili mjög lengi


Púðursykurterta

4 eggjahvítur
300 gr ljós púðursykur
1 tsk kartöflumjöl.
eggjahvítur og púðursykur stífþeytt, kartöflumjölið sett varlega saman við . Bakað í tveimur formum við 150° hita í 30 mín.
1/4 rjómi þeyttur og settur á milli, síðan er þetta fryst og tekið út úr frysti ca 1/2 tíma áður en á að borða þetta.

Verði ykkur að góðu.
Bára Margrét Baldvinsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica