Jólagestir
Jólamarkaður í Nesjum
Jólamarkaður í Nesjum
Kristjana Ragna Jensdóttir jólagestur á Hornafjörður.is

12.12.2007 Jólagestir

Beðið eftir stóra kassanum frá Ísafirði.

Jólagestur okkar 12. desember er Kristjana Ragna Jensdóttir

Við vorum 7 systkin ásamt pabba og mömmu og bjuggum í Reykjavík. Ein af mínum sterku jólaminningum eru þær að ekki voru til tveir umgangar af sængurfötum á öll rúmin þannig að mamma tók alltaf af öllum rúmunum á þorláksmessu og um nóttina sváfu allir með engin sængurver, og þá fannst manni sko jólin vera að koma.
Á aðfangadagsmorgunn var sett hreint á öll rúmin og allir fengu ný nærföt og náttföt. Þessum sið hef ég síðan haldið, þrátt fyrir að eiga fullan skáp af sængurverum og mínar stelpur eru vanar því að sofa með ekkert sængurver á sínum sængum á þorláksmessunótt. Einnig er önnur sterk minning úr æsku, það varð alltaf rafmagnslaust í ca.klukkustund um miðjan dag á aðfangadag, örugglega vegna mikils álags. Þá fengu allir hvert sitt kerti og skapaði þetta vissa aðfangadagsstemningu.

Pabbi var Ísfirðingur, þaðan kom alltaf stór kassi fyrir jólin og var beðið hans með mikilli eftirvæntingu fyrir hver jól, þessi kassi innihélt jólagjafir, hangikjöt, skötu og alvöru vestfirska hnoðmör búin til af afa mínum. Jólapakkarnir frá Ísafirði voru því alltaf vel "ilmandi".

Ógleymanlegar eru jólatrésskemmtanir sem haldnar voru í gamla Sigtúni. Það þurfti að kaupa miða fyrirfram á þessar skemmtanir og á þessum miðum sást í hvaða holli maður lenti í til að fara í veitingasalinn, fyrsta, öðru eða þriðja holli. Þar var sko veisla, stóru langborðin svignuðu undan heitu súkkulaði, rjómatertum, smákökum og randalínum.

Ég er alin upp við marga jólasiði og ég held þeim öllum, því fyrir mér tilheyra þessir siðir jólunum.

Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári,

- Kristjana Ragna Jensdóttir.

Uppskriftin mín er jólaísinn hennar mömmu:

3 eggjarauður
3 msk sykur
pínulítið salt
½ líter rjómi, þeyttur.
1 bolli saxað súkkulaði

Eggjarauður, sykur og salt þeytt mjög vel saman, síðan er þeyttum rjómanum hrært saman við, að lokum er söxuðu súkkulaðinu blandað varlega þar saman við. Sett í form og fryst.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica