Jólagestir
Desember 2006
Desember 2006
Desember 2006

10.12.2008 Jólagestir

Jólin heima og heiman

Jólagestur okkar 10. desember er Sigurbjörg Sigurðardóttir

Frá barnæsku til þess að við hjónin fluttum til Svíþjóðar árið 1979 með Völu, þá 2ja ára, voru jólin hjá mér með þeim hætti sem flestir íslendingar þekkja, stigmagnandi stress þar til jólin detta inn kl. 18 á aðfangadag með messu og mat. Á Stapa fengu kýrnar og ærnar matinn fyrst eins og gerist og gengur til sveita. Fyrstu jólin lærðum við að sinn er siður í hverju landi og nú vorum við allt í einu bara þrjú, fjarri stórfjölskyldunni á Stapa. Við ætluðum þó að halda okkar striki, þvo þvott og gólf, skreyta, pakka inn gjöfum og elda mat fram til kl. 18. Þennan fyrsta aðfangadag okkar í Svíþjóð svona um tvöleytið vorum við að þvo í þvottahúsinu sem var sameiginlegt fyrir stóran hluta af stúdentagarðinum. Þar mættu okkur leikfélagar Völu, í jólafötunum, búnir að taka upp pakkana og farnir að bíða eftir að horfa á teiknimyndasögurnar í sjónvarpinu kl 4. Þeir voru búnir með jólin.

Það var erfitt að sannfæra litla stúlku um að vegna þess að við værum íslensk mætti hún ekki opna pakkana fyrr en um kvöldið. Messan kom til Svíþjóðar þessi jól í gegnum gamalt Philips lampatæki sem náði stopulum stuttbylgjusendingum frá Íslandi. Á þessum árum var alnetið ekki til en loftnet því nauðsynlegra. Loftnetið var vírherðatré sem búið var að forma til að virka sem best, en mest fór það nú eftir veðri hvernig sendingar náðust. Þegar hátíðin gekk í garð heyrðist ekkert nema brak og brestir í blessuðu tækinu, einstaka gól en ekkert heimsumból. Næstu jól létum við senda okkur segulbandsupptöku af jólamessunni og spiluðum hana æ síðan á jólunum meðan við vorum þar og þá gátu jólin gengið í garð á þeim tíma dags sem best hentaði.

Fyrstu jólin vorum við boðin heim til vinnufélaga Hjörleifs á jóladag. Hann sá aumur á útlendingunum sem voru ókunnir í nýju landi, fjarri fjölskyldu og vinum. Þarna fengum við í fyrsta sinn að koma inn á sænskt heimili og að smakka alla réttina á sænska jólahlaðborðinu. Söltuð svínaskinka, lútfiskur, síld, pylsur, kjötbollur, kæfur, svínasultur og ýmis salöt eru borðuð öll jólin og fyrir svíunum er það eins heilagt og hamborgarhryggur eða rjúpur hjá okkur. Hver einstakur réttur er hversdagsmatur en þessi ofgnótt af réttum í einu er hinn eini sanni jólamatur. Að mörgu leyti er þetta mjög sniðugt. Þar sem flest allt er útbúið fyrirfram þarf ekkert að gera annað en taka matinn út þegar borðað er og setja hann inn í ísskápinn milli máltíða. Matseljan á frí eins og aðrir á heimilinu. Mér er þetta boð ennþá mjög minnisstætt og hugsa hlýtt til gestgjafanna.

Síðustu fimm árin höfum við búið á Akureyri. Háskólinn á Akureyri hefur hýst hluta af Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna. Í honum er fólk frá ýmsum löndum við nám í nokkra mánuði og hafa milli 6 og 12 nemendur dvalið hér yfir jólin. Þau eru til húsa hjá Rögnu Sigfinns í gistiheimilinu Stórholti, en á jóladag höfum við boðið þeim í mat heim til okkar, minnug heimboðsins fyrstu jólin í Svíþjóð. Flest er þetta fjölskyldufólk, komið frá ýmsum löndum Afríku, Kína, Bangladesh, Malaysiu, Iran, Sri Lanka, og Kúbu. Þau tengjast sjávarútvegsmálum í sínu landi og eru hér ýmist að læra um gæðamál, vinnslutækni eða markaðsfræði. Þau eru mjög ólík í útliti og aðhyllast ýmis trúarbrögð. Sum hafa ekki haldið jól, önnur halda jól en eru ekki kristin og þriðji hópurinn er mjög trúaður. Við bjóðum upp á hangikjöt, saltfiskrétti og þeir sem eru grænmetisætur verða að láta sér nægja kartöflugratín, grænar baunir og rauðkál. Sum geta ekki borðað matinn nema hann sé með afar sterku bragði og þeim höfum við boðið rautt karrí úr dós með hangikjötinu. Malt og appelsín þykir öllum gott. Í eftirrétt hef ég marengsbotna með vanilluskyri og þeyttum rjóma til helminga, bláber ofan á og bráðið súkkulaði.
Með þessum sið, sem ég held sé kominn til að vera höfum við eignast vini til lífstíðar í ýmsum löndum því eins og okkur þótti gott að vera boðin heim til svíanna, þykir þessum nemendum gaman að koma inn á íslenskt heimili og þefa af jólaandanum hjá okkur.
Við sendum innilegar jóla- og nýársóskir til Hornfirðinga nær og fjær.

Rúsínukökur Laugu systur.

2 bollar hafragrjón
2 ½ bolli hveiti
2 bollar púðursykur
1 bolli smjörlíki (220 g)
1 tsk matarsódi
½ tsk salt
1 bolli saxaðar rúsínur
2 egg
Allt hnoðað saman, rúllað í lengjur og skorið í passlega bita. Rúllað í kúlur og sett á plötu, bakað í 175°C þar til tilbúið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica