Litla Guinnessflaskan sem var skilin eftir handa jólasveininum var horfin
Jólagestur okkar 12. desember er Emily Rossiter
Nollaig faoi shéan agus faoi mhaoise daoibh go léir! Svona er jólakveðja frá mínu heimalandi, Írlandi.
En hvað það er gaman að hugsa til baka til jólanna sem voru allt öðruvísi en ég upplifi á Íslandi!
Aldrei hvít jól!
Lifandi jólatré með heimaföndruðu skrauti.
Jólaviður með sín oddhvössu laufblöð og skærrauð ber, tákn um þyrnikórónu Jesú og blóð hans.
Eitt kerti út í glugga til að bjóða velkomna þá sem gætu þurft á skjóli að halda, eins og María og Jósep þurftu.
Þegar maður hafði aldur til, var farið með í miðnæturmessu í stóra kirkju með fallegum söng og tónlist. Eftir að hafa reynt að halda sér vakandi allt kvöldið til að mæta í messu, átti aldeilis að reyna að halda áfram að vaka til að fylgjast með er jólasveinninn sjálfur kom með gjafirnar. En það endaði alltaf eins.
Ég vaknaði um morguninn 25.des og gjafirnar í hrúgu við rúmstokkinn. Einu ummerkin eftir jólasveininn var að litla Guinness flaskan sem var skilin eftir handa honum var horfin. Og líka gulrótin sem við vorum sannfærð um að Rúdolf hefði borðað með bestu lyst.
Upp úr hádegi var jólakalkúninn borðaður og svo alltaf heimabökuð ávaxtakaka í eftirrétt.
Annar í jólum er kenndur við Heilagan Stephen á Írlandi. Þann dag er lögð áhersla á að hitta ættingjana. Fullorðið fólk spilar, segir sögur og opnar jafnvel "spari" viskýflöskuna.
Þegar ég lít til baka, var allt frekar einfalt miðað við það sem börnin mín upplifa, en ég er ekki frá því að þessi eina jólasería sem var til á heimilinu þá og lýsti upp jólatréið var bjartari og fallegri en allt sem til er í dag :-)
Ég læt uppskrift fylgja af "koníaksmjöri" (Brandy Butter) sem er borin fram með heitri ávaxtaköku um jólin.
175 g. ósaltað smjör
175 g. púðursykur (má líka nota flórsykur)
ca. 6 matsk. koníak (eða írskt vískí að sjálfsögðu)
hrærið smjörið létt og bætið sykrinum smá saman við. Blandað vel og svo er koníakinu bætt út í.
Kælið í ísskap og berið fram kaldt með heitri ávaxtaköku
Gleðileg Jól!




Skrifa athugasemd