Jólagestir
Jenný Reynisdóttir
Jenný Reynisdóttir
Jenný Reynisdóttir

19.12.2008 Jólagestir

Allt varð að vera tandurhreint og fágað áður en jólin gengu í garð

Jólagestur okkar 19. desember er Jenný Reynisdóttir

Minning mín um jólin þegar ég var að alast upp í Reykjavík er sú að það var mjög mikið um að vera og það þurfti að þrífa alla íbúðina hátt og lágt, allt varð að vera tandurhreint og fágað áður en jólin gengu í garð .
Svo var bakaðar lifandi býsn af tertum og smákökum sem settar voru í kökustauka og límt vel fyrir því ekki mátti snerta á þeim fyrir en um jólin. Mamma saumaði jólafötin á okkur krakkana, og það var alltaf tilhlökkun að fá ný föt, en ekki fannst mér nú jafn gaman að þurfa alltaf að vera að máta þau, ( það er nú annað í dag).

Svo fengum við ný náttföt og ný nærföt í skóinn dagana fyrir jólin þá var nú eins gott að vera þæg, annars var ég nú ósköp sniðug í eitt skiptið þá fékk ég kartöflu í skóinn því ég var eitthvað óþekk , ég gerði mér nú lítið fyrir og skipti bara um í skónum við bróður minn, það var auðvelt þar sem ég vaknaði venjulega fyrst af öllum. Mamma greyið gat ekkert sagt því þá hefði allt komist upp en mikið hefur nú verið hlegið af þessu í gegnum tíðina.

Heima hjá mér voru ekki settar upp seríur fyrr en á Þorláksmessu, stofunni var læst á Þorláksmessukvöld á meðan mamma og pabbi skreyttu jólatréð , við fengum ekki að sjá það fyrr en á aðfangadagkvöld það var alltaf voðalega mikill tilhlökkun og spenna í okkur krökkunum.

Við hlustuðum alltaf á útvarpið og biðum eftir að kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin þetta er alltaf svo hátíðleg stund . Sest var niður við matborðið og borðað rjómalöguð aspassúpa og hamborgarahryggur með öllu tilheyrandi og frómas eða ís í eftirrétt og enn í dag erum við systkinin með þennan mat á okkar heimilum.
Ég man eftir einum jólum þar sem foreldrar mínir ákváðu að breyta út af vananum og elda svínalærisneiðar í raspi, þetta voru alveg ónýt jól hjá okkur.

Eftir matinn var farið beint í að opna pakkana ( uppvaskið var látið bíða ) voðalega var maður nú ánægður með allt sem í þeim var, best fannst mér nú ef dúkka leyndist í pökkunum eða góð bók. Á jóladag var farið til föðurömmu minnar í jólaboð, þar hittist öll fjölskyldan. Á annan í jólum var svo farið til móðurömmu minnar þar hitti maður restina af fjölskyldunni.

Í dag er þetta nú allt annað, nú er lítið þrifið og bakað á mínu heimilli bara skreytt með jólaljósum og látið loga á kertum, kökurnar borðaðar á aðventunni ekkert stress bara notið þess að vera í faðmi fjölskyldunnar enda finnst mér jólin vera hátíð ljóss og friðar.

Ég og fjölskylda mín biðjum guð að gefa ykkur öllum gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Jenný Reynisdóttir.

Kókoskökur

200gr hveiti
100gr kókosmjöl
200gr smjörlíki
150gr sykur
¼ tsk hjartasalt
3 tsk kakó
1 st egg
Vanilludropar

Allt hnoðað saman búnar til litlar kúlur bakað við 200°C°




Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica