Jólagestir
Árni Rúnar Þorvaldsson og börn
Árni Rúnar Þorvaldsson og börn
Árni Rúnar Þorvaldsson og börn

21.12.2008 Jólagestir

Jól í útlöndum og Spotted ....

Jólagestur okkar 21. desember er Árni Rúnar Þorvaldsson

Ekki get ég sagt að ég eigi einhverjar sérstakar minningar tengdar jólunum úr æsku aðrar en þær að þetta hafi að mestu verið notalegur og skemmtilegur tími. Ég minnist þess þó að móðir mín og móðurafi hafi alltaf verið upptekin í kórastarfi á jólunum og eftir þeim þurfti mikið að bíða, t.d. á aðfangadag - það var vont. En þau skiluðu sér þó seint og um síðir - að okkur fannst - og þá var hægt að hefja hefðbundið jólahald. Þessar minningar útskýra sennilega hvers vegna ég hef á mér allan vara og hef hinar ýmsu efasemdir um ágæti hvers kyns kórastarfs.

Einna jóla minnist ég þó sérstaklega en þau hélt ég í London þegar ég var sennilega 11 ára gamall og móðir mín var þar við nám - söngnám. Það var mjög athyglisvert að halda íslensk jól á erlendri grund. Þá tók maður eftir því hversu stóran sess jólahátíðin skipar á Íslandi samanborið við önnur lönd. Þó Bretar geri ekkert lítið úr jólahaldinu þá komast þeir vart með tærnar þar sem Íslendingar hafa hælana.
Jólin voru að öllu leyti íslensk - að mig minnir - fyrir utan þá tilraun að í eftirrétt var boðið upp á sígildan og margrómaðan enskan rétt "Spotted Dick". Sú tilraun reyndist eftir á að hyggja vera mistök. Á annan í jólum "Boxing Day" var síðan farið út að borða á flottu Steakhouse og komið við á hverfispöbbnum á leiðinni heim. Það þætti eftirtektarvert á Íslandi. Ekki er ég alveg viss um hvort þessar minningar mínar séu algjörlega sannleikanum samkvæmar, sérstaklega hvað varðar dagsetningar, en efnislega var þetta svona og var afar skemmtilegur tími - hvort sem minningarnar fara alveg rétt með eða ekki.
Í staðinn fyrir að vera með uppskrift í anda hefðbundins íslensks jólahalds ætla ég að benda ykkur á þessa slóð (hér) á veraldarvefnum en þar er að finna uppskrift hins margrómaða breska réttar "Spotted Dick" svona til þess að brjóta þetta nú aðeins upp. Verði ykkur að góðu.

Að lokum óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

- Árni Rúnar Þorvaldsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica