Jólin eru góður tími, hátíðleiki og gleði og ég hlakka alltaf til jólanna.
Jólagestur okkar 17. desember er Sigríður Kristinsdóttir
Mig langar að deila með ykkur bestu minningunum um aðfangadag í æsku.
Þegar ég var yngri þá var mamma um tíma hjúkrunarforstjóri á Sólvangi í Hafnarfirði. Í nokkur ár vorum við systur, en við erum tvær, “dressaðar upp” í jólasveinabúning á aðfangadag. Fórum við svo til allra vistmanna á Sólvangi, heilsuðum upp á þá og gáfum þeim jólagjöf. Þetta var mjög skemmtilegt og gefandi. Þegar þessu var lokið var kominn tími til að gera sig klára fyrir jólin heima.
Seinna varð mamma síðan hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og þá kom nýr siður á aðfangadag. St. Jósefssystur voru þá enn starfandi við spítalann og sveif ávallt helgiandi yfir spítalanum, sem magnaðist um jólin. Um 2 leytið á aðfangadag var maður komin í jólafötin og um 3 leytið mætti öll yfirstjórn spítalans ásamt fjölskyldum sínum og söng jólalög ásamt St Jósefssystrum fyrir þá sem voru á spítalnum yfir jólin. Priorinan (yfirnunnan) las jólaguðspjallið. Var þetta einstaklega hátíðleg stund og heilagleikinn kominn í hjartað þegar farið var heim.
Ég óska öllum gleðilegra jóla.
Sigríður Kristinsdóttir
Læt fylgja með uppskrift af trifflinu hennar ömmu sem alltaf var í jólaboðinu hjá henni á jóladag.
Trifli
1 pk Vanillubúðingur (Royal)
1 peli Rjómi
1 pk Makkarónukökur (ca 250 gr)
1 stk Epli (grænt)
1 stk Appelsína
2 stk Bananar
100 gr Suðusúkkulaði
Sherry eftir smekk eða appelsínusafi
Aðferð
Brjóta makkrónukökurnar og dreifa þeim í botninn á skálinni vökva með Sherry eða appelsínusafa.
Brytja ávextina smátt ásamt súkkulaðinu og setja ofan á kökurnar
Þeyta saman 1 pk vanillubúðing og 2,5 desl. mjólk.Þeyta 1 pela rjóma. Þessu er blandað saman og sett ofan á blönduna í skálinni.
Gott er að búa triflíið til daginn áður og geyma í ísskáp
Skreytt með ferskum jarðaberjum eða súkkulaði spónum þegar borið er fram.




Skrifa athugasemd