Jólin hjá afa og ömmu
Jólagestir okkar 22. desember eru hjónin Haukur Ingi Einarsson og Berglind Steinþórsdóttir
Alltaf hlakkaði mig mikið til jólanna sem barn og nú er þessi tími jafn tilhlökkunarverður þar sem ég upplifi jólin með mínum börnum og nánustu fjölskyldu. Það er nauðsynlegt að gæta þess að sjúga í sig stemninguna og njóta stundanna sem koma á þessum rólega tíma í formi samveru og góðra minninga. Ég minnist ferðanna frá Höfn til Reykjavíkur um þetta leiti en upphafsárin á Höfn héldum við fjölskyldan til ömmu og afa í Reykjavík til að halda jólin hátíðleg. Ferðirnar á milli gátu verið langar fyrir stuttan strák en eftir að komið var að Selvogsgrunni 6 og upp stigann og inn í húsið þá vissi ég að jólin voru á næsta leiti. Lyktin sem tók á móti mér tók þétt utan um mig og sannfærði mig um hvaða tími árs var gengin í garð. Þó svo að við héldum upp á jólin hjá pabba og mömmu, mömmu þá var ekki nema tveggja mínútna hlaup yfir til hinna afa og ömmu, mömmu og pappa, pappa. Þessi tími gaf því vel í að hitta alla okkar ættingja sem tóku alltaf brosandi á móti okkur og við frændsystkinin lékum okkur saman. Það var einnig spilað mikið á þessum tíma, Hannsen Hannsen við Ingólf afa og venjulegan manna við Hauk og Öllu.
Pabbi mömmu sem starfaði í Rammagerðinni átti það til að fara með mig í Rammagerðina og sýna mér jólaskrautið sem hann var búinn að stilla upp og sagði mér frá því hversvegna hann væri alltaf fyrstur með jólauppstillinguna. Jólauppstillingin var gerð af ameríska jólasveininum, hreindýrum og litlum jólaálfum.
Amma var alltaf með rjúpur á jólunum, ég man ekki mikið eftir rjúpunum frá henni en maturinn sem hún hanteraði var sá allra besti sem ég hef komist í tæri við. Að loknum matnum var farið í stofuna þar sem jólatréð stóð með pökkunum vel raðað undir, vel skreitt að vanda og afi búinn að koma jólaenglinum á toppinn. Jólatréð var alltaf keypt á sama stað sem ég man ekki nákvæmlega hvað heitir en ég man að það var api í búri í búðinni sem ég dvaldi alltaf lengi við þegar farið var að velja tréð. Eftir að pakkarnir voru opnaðir og kaffi borið fram komu bræður mömmu með sýna fjölskyldu heim til ömmu og afa og við krakkarnir lékum okkur frameftir kvöldi, fórum yfir hvað við fengum jólagjafir og fullorðna fólkið borðaði eftirrétt, konfekt og drakk kaffi. Þessir tímar voru ógleymanlegir og ætíð góðir.
Í allri umræðu um erfiðleika í efnahagsmálum landans er nauðsynlegt að minnast þess hvernig tímarnir voru hér áður fyrr og leggja mat á það hvernig og hvort tímarnir hafi breyst til hins betra eða verra.
Ég læt fylgja uppskrift af jólasósunni með rjúpunum sem ég ætla að hafa um jólin frá ömmu
Haukur Ingi Einarsson
Rjúpnasoð ( Bein, fóarn, hjörtu og leggir af 5 – 6 rjúpum )
Smjörbolla slepjuleg
½ l rjómi
Hrútaberjasulta 2 tsk
1 – 2 mat sk. mysingur
Hvítur pipar og salt eftir smekk



Skrifa athugasemd