Líður að jólum
Jólagestur okkar 1. desember er Svava Kr. Guðmundsdóttir.
Þá er fyrsti sunnudagur í aðventu liðinn og ég búin að koma upp aðventuljósum heima hjá mér, en í mínum huga er aðventan yndislegur tími. Að fylgjast með jólaljósunum koma upp um allan bæ og sjá hversu fjölbreytt þau eru finnst mér gaman.
Og nú er kominn desember og þá þarf að fara að huga að jólakortum, finna listann frá í fyrra og koma sér svo í skriftarhaminn.
Jólin hjá mér verða ósköp hefðbundin, Sigrún dóttir mín kemur heim og við fjölskyldan verðum saman á aðfangadagskvöld. Í ár verða þó öðruvísi jól hjá okkur, því lítil prinsessa bættist í fjölskylduna í ágúst. Einhvern veginn er það þannig að við komu lítils barns breytist jólahaldið og hlakka ég mikið til að fylgjast með henni skoða jólaheiminn í fyrsta sinn.
Á jólum finnst mér góð bók nauðsynleg, en ég hef alltaf lesið mikið og þar sem ég á afmæli í byrjun janúar fékk ég oft margar bækur í jóla og afmælisgjöf.
Mest um vert er þó að geta verið með fjölskyldunni sinni og eiga góð og notaleg jól, þess óska ég ykkur öllum.
Gleðileg jól
Svava Kr. Guðmundsdóttir




Skrifa athugasemd