Hó Hó Hó Merry Christmas
Jólagestur okkar 7.desember er Gunnhildur Imsland
Þegar ég hugsa til baka eru jólaböllin hjá varnarliðinu á Stokksnesi er mér efst í huga.
Lengi trúði ég því að Ameríski jólasveininn væri hinn eini sanni, hann sagði Merry Christmas og gaf alltaf réttan pakka, ég skildi ekkert hvernig hann gat vitað hvað var stelpu eða strákagjöf því allir pakkarnir voru eins fyrir mér. Að orðin boy eða girl eins og stóð ævinlega utaná pökkunum væri vísbending grunaði mig ekki.
Trúin á íslensku jólasveinana var þó til staðar enda gáfu þeir í skóinn. Þó skildi ég aldrei hvernig þeir fóru að því að klöngrast upp á þakið á Hafnarbraut 33 til að gefa í skóinn, nógu mikið mál var fyrir pabba að klifra upp til að skipta um peru í útiljósaseríunni eða bara að festa aftur upp stjörnuna sem mér finnst að hafi fokið alla vegna einu sinni um hver jól. Í minningunni var alltaf svell á þakinu og snjóföl ofaná.
Pabbi fékk alltaf handa okkur nammi hjá kananum sem að útdeilt var eftir að pakkarnir voru opnaðir á aðfangadagskvöld. Ein jólin eru mér sérstaklega minnisstæð en þá fengum við þrjú yngstu systkinin útvörp frá mömmu og pabba og ég sat öll jólin og hlustaði á langbylgjuna þar sem að hljómsveitin Bony M hljómaði meira og minna öll jólin. Á Hafnarbrautinni var iðulega mikið bakað og mikið skreytt, og enn þann dag í dag er ég mikið jólabarn og finnst allur undirbúningur fyrir jólin mjög skemmtilegur, ég þríf sem mest í Nóvember svo að ég geti dundað mér við undirbúning jólanna á aðventunni.
Í dag höldum við Smári jólin að okkar sið en segja má að reykti hamborgarahryggurinn á aðfangadag sé frá okkar uppeldisheimilum og kalkúninn á gamlárskvöld komi frá mínu heimili. Þó að kalkúninn hjá okkur sé ekki amerískt steratröll eins og hann var hjá mömmu. Ég fer og syng í messunni á aðfangadag eftir að við höfum borðað forréttinn. Við borðum forréttin fyrir jól til að stytta biðina fyrir börnin og minka hungrið fyrir okkur fullorðna fólkið.
Kalkúnafyllingin var 5 ár í þróun og er nú loksins eins og ég vil hafa hana og ég læt uppskriftina fylgja með.
3 ristaðar brauðsneiðar
200gr svínahakk
1 bréf beikon
½ box sveppir
½ paprika
½ laukur
1 dl. rjómi
½ lítil dós maís baunir
1 teskeið Oregano
1 teskeið basilikum
steinselja
1/2 dl. hvítvín
salt og pipar
allt saxað smátt og öllu blandað í skál.
Megi guð gefa ykkur öllum gleðilega jólahátíð.
Gunnhildur Imsland




Skrifa athugasemd