Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Hornafjarðar 10 ára
Þann 9. september næstkomandi eru 10 ár frá því að Kvennakórinn var formlega stofnaður og mun verða haldið upp á það með margvíslegum hætti í ár. Laugardaginn 17. febrúar er árshátið Kvennakórsins á Hótel Höfn og verður mikið um dýrðir á afmælisárshátíðinni. Eru fyrrverandi kvennakórskonur hvattar til að koma með sína gesti og taka þátt í hátíðinni. Margs er að minnast frá síðastliðnum 10 árum og verður horft yfir farinn veg og að venju mikið fjör. Hægt er að panta miða í síma 4781240, Hótel Höfn. Farið verður í kórferðalag til Þýskalands í júní. Er undirbúningur fyrir þá ferð í fullum gangi. Meðal annars verður farið til Hamborg og Lübeck. Kórstjórinn Svavar Sigurðsson lærði í Þýskalandi og á þýska konu, Silvia Hromadko. Verður farið í heimsókn í heimaþorp hennar, Verden, sem er rétt fyrir utan Hamborg.
Að venju verður kórinn með vortónleika á sínum stað í maí, svo munu kvennakórskonur standa fyrir skemmtikvöldi í Sindrabæ fimmtudaginn fyrir Humarhátið. Í fyrra var kvöld með spænsku þema, var boðið upp á spænskar veitingar og skemmtiatriði, og er spennandi að sjá hvaða þema verður fyrir valinu í ár.
Von er á frekari hátíðarhöldum í haust þegar afmælisdagurinn nálgast.



