Kvennakór Hornafjarðar
Mikið að gera hjá kvennakórskonum
Nú fer að líða að sjöunda Landsmóti íslenska kvennakóra , helgina 25. - 27. apríl, þegar staðurinn fyllist af syngjandi kórkonum.
Undibúningur er á fullu hjá kvennakórskonum og eru þær mjög þakklátar fyrir hvað allir virðast jákvæðir og spenntir fyrir þessum viðburði og tilbúnir að leggja sitt af mörkum á margan hátt.
Hér verða sem sagt tónleikar bæði laugardaginn 26. og sunnudaginn 27.apríl. Á laugardeginum flytur hver kór, lög af sinni dagskrá. Á sunnudeginum verður afrakstur vinnuhópana fluttur, þegar á fjórða hundrað konur syngja saman við undirleik stórhljómsveitar Jóhanns Morávek, sem stofnuð er fyrir þetta tækifæri.
Það verður frumflutt landsmótslag, sem samið var sérstaklega fyrir mótið, af tónskáldinu Þóru Marteinsdóttur, við texta Guðbjartar Össurarsonar , sem 13 kórar hafa verið að æfa og undirbúa og verður án efa skemmtilegt ekki síst fyrir hornfirðinga að hlýða á.
Svo er bara að vona að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir, segja þær í landsmótsnefndinni, svo að fjörðurinn okkar fagri og umhverfið allt skarti sínu og allir geti notið þess sem best. En við höfum haft að markmiði að kynna staðinn hér vel fyrir gestum okkar og fóru nokkrar af okkur á aðalfund Gígjunnar sl. haust, sem er landsamband íslenskra kvennakóra, og kynntum okkur og staðinn hér vel fyrir þeim, svöruðum spurningum sem upp komu og voru undirtektir mjög góðar .
Við vonum svo sannarlega að sem flestir heimamenn geti notið og tekið þátt í þessum viðburði með okkur, segja þær að lokum, sem væri okkur mikils virði og ekki síst Hornafirði og svæðinu í heild.



