Kvennakór Hornafjarðar

Velheppnað þjóðarkvöld Kvennakórsins

08.07.2008

Marilyn Monroe
Marilyn Monroe
Marilyn Monroe
Mynd 2 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Þjóðarkvöld kvennakórs Hornafjarðar var haldið 3. júlí sl. í Sindrabæ, fimmtudagskvöld fyrir Humarhátíð, 3ja árið í röð og var orðið uppselt tveim dögum fyrr. Má segja að þessi skemmtun sé komin til að vera og margir sem hafa á orði að humarhátíðin sé fyrst byrjuð þegar búið sé að fara á þjóðarkvöldið! Markmiðið með þjóðarkvöldunum er að skapa stemningu frá hverju landi fyrir sig með mat, drykk, skreytingum, búningum og skemmtiatriðum. Í fyrra var þýskt þema, enda kvennakórinn þá nýkominn frá Þýskalandi, og í fyrsta skiptið var spænskt kvöld.
Í ár var kántríslegið amerískt þema og tókst vel til. Eins og áður sagði var uppselt tveim dögum fyrr í forsölu og var bætt við eins mörgum sætum og hægt var til að anna eftirspurn, en dugði ekki til. Dyggir stuðningsmenn kórsins sem alltaf koma og ekki voru nógu snöggir að ná í miða þurftu að sitja heima og þykir kvennakórskonum það mjög leitt. Var setið þröngt í salnum og varla hægt að skjóta sér á milli borða en að sama skapi myndaðist mjög góð stemning.

Í ár var stór hópur erlendra gesta á vegum Frumu og Menningarmiðstöðvarinnar og einnig voru tveir gestir úr ameríska sendiráðinu sem komu hér á eigin vegum. Hafði undirbúningsnefndin samband við sendiráðið í leit að skreytingum og slíku og fengu vægast sagt góðar undirtektir. Sendu þeir kórnum mikið af dóti sem setti flottan svip á salinn og þessum tveimur leist svo vel á dagskránna hjá kvennakórnum að þeir skelltu sér í ferðalag! Gistu þeir tvær nætur á Hótel Höfn og fóru svo bæði í Fjöruferðir og á Jökulsárlón og voru himinlifandi.
Heyrðist á tali einhverra ameríkana að maturinn væri betri en heima hjá þeim og á Gauti Árnason heiðurinn af hlaðborðinu ásamt konunum í matarnefndinni.
Boðið var upp á veglega skemmtidagskrá, kórinn söng við undirleik Guðlaugar Hestnes, Dolly Parton og vinkonur tóku nokkur lög, Chaplin sló í gegn, Ike og Tina Turner mættu, Danny og Sandy tóku lag úr Grease, Gloria Gaynor tók eitt diskólag, Roy Rogers birtist, og síðust en ekki síst; Marilyn Monroe og Elvis Presley, og þá var þakið að rifna af Sindrabæ! Að lokum var kenndur línudans og þeir sem vildu tóku sporið.
Það hefur heyrst að jafnvel verði framhald á næsta ári þar sem það er af svo miklu að taka og ekki var pláss fyrir ýmsa fræga skemmtikrafta sem vildu koma t.d. Stevie Wonder og Michael Jackson.
Vilja kórkonur koma á framfæri innilegum þökkum til allra sem hjálpuðu þeim og styrktu til að gera kvöldið að veruleika. Það á við um alla ættingja og vini sem lögðu hönd á plóg sem og Snorra Bjarnasyni sem átti forláta bílinn sem var lagt fyrir utan Sindrabæ, sem og hljómsveitinni, Ingólfi, Sigfúsi, Kristínu, Jóa, Hauki, Emil og fleirum og fleirum.

Senda grein

Kvennakór Hornafjarðar

Velheppnað þjóðarkvöld Kvennakórsins

8.7.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica