Kvennakór Hornafjarðar
Duglegar kvennakórskonur að störfum
Þeir sem áttu leið um Hafnarbrautina fyrir framan Sparisjóð Hornafjarðar í morgun komust ekki hjá því að sjá þar konur sópa stéttina , reita arfa, skríða á fjórum fótum og hreinsa illgresi af mikilli nákvæmni sem hefur myndast á milli hellna frá því síðasta sumar. Ljúfir tónar Kvennakórs Hornafjarðar hljómuðu af geisladisk út um dyr Sparisjóðsins og ómaði söngurinn um nágrennið og veittum þeim aukin kraft við vinnuna. Þetta voru sem sagt kvennakórskonur að störfum en eins og flestum er kunnugt um þá er þeim engin takmörk sett í dugnaði. Þær hafa tekið að sér ýmis verk til fjáröflunar fyrir kórinn og var þetta eitt slíkt.
Það má benda á að hér áður fyrr var það gamla lag Ólafs Hauks Símonarsonar ?Ryksugan á fullu étur alla drullu? sem var mjög vinsælt við þrifin og vinnuna en nú eru það lög Kvennakórs Hornafjarðar sem er góður valkostur að hlusta á því fyrir utan ljúfan söng þeirra þá veita þau hverjum sem á þau hlusta mikinn innblástur og aukinn kraft.



