Kvennakór Hornafjarðar
Vel heppnaðir vortónleikar Kvennakórsins
Þrátt fyrir mjög gott veður á Höfn, mætti fjöldi manns á vortónleika Kvennakórs Hornafjarðar sem fram fóru í Hafnarkirkju í gær. Tónleikarnir byrjuðu á því að kórkonur voru klappaðar upp og gengu þær inn í kirkjuna í nýjum glæsilegum búningi kórsins. Í ávarpi Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá kom fram að þetta er níunda starfsár og hefur það einkennst að óvæntum breytingum m.a. að undirleikari kórsins til margra ára Jónína Einarsdóttir tók sér frí frá störfum og hélt til náms í Reykjavík. Um síðustu áramót lét svo stjórnandinn Sigjón Bjarnason af störfum fyrir aldurs- og heilsusakir. Nú voru góð ráð dýr og var leitað til nágranna sveitarfélagsins Djúpavogs til að finna undirleikara og síðan stjórnanda. Það reyndist vera sami maðurinn, Svavar Sigurðsson og stjórnaði hann kórnum í fyrsta sinn opinberlega á þessum vortónleikum.
Á efnisskrá tónleikanna var lagaval mjög fjölbreytt m.a. lög eftir Bítlana, miðaldatónlist, jass-standardar, íslensk sönglög, ABBA, Händel og fleiri. Evu Ósk Eiríksdóttur sem lék á klarínett í einu laginu, var veitt viðurkenning ásamt Sigjóni Bjarnasyni fyrrverandi kórstjóra, en hann stjórnaði kórnum á vortónleikunum í frumsömdu lagi hans, Vornæturdansinn, sem einnig var spilað í forsetaheimsókninni í síðasta mánuði.
Fyrir þá sem misstu af tónleikunum í Hafnarkirkju geta bætt það upp með því að hlíða á þær í Djúpavogskirkju í dag kl. 17.



