Kvennakór Hornafjarðar

Jólatónleikar kvennakórs Hornafjarðar

03.12.2007

Kvennakórinn á jólatónleikum
Kvennakórinn á jólatónleikum
Kvennakórinn á jólatónleikum

Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða miðvikudaginn 5. desember kl 20 í Nýheimum á Höfn. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda, rammíslensk jólalög í bland við erlenda smelli. Stjórnandi kórsins er Svavar Sigurðsson og píanóleikari er Jónína Einarsdóttir. Að vanda er boðið upp á tertuhlaðborð þar sem borðin svigna undan hnallþórum og allskyns brauðréttum. Á liðnum árum hefur áhorfendafjöldi aukist svo að ljóst er að tónleikar kórsins skipa veglegan sess á aðventu bæjarbúa. Á tónleikunum verða hljóðfæraleikarar og krakkar úr grunnskólanum sem syngja með kórnum. Hægt verður að nálgast dagatölin vinsælu á tónleikunum þar sem þau verða til sölu við innganginn.

Miðverð er stillt í hóf og er það 1500 kr fyrir fullorðna en ungmenni yngri en 12 ára fá frítt á tónleikana. Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Senda grein

Kvennakór Hornafjarðar

Jólatónleikar kvennakórs Hornafjarðar

3.12.2007 Kvennakór Hornafjarðar

Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða miðvikudaginn 5. desember kl 20 í Nýheimum á Höfn. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda, rammíslensk jólalög í bland við erlenda smelli. Stjórnandi kórsins er Svavar Sigurðsson og píanóleikari er Jónína Einarsdóttir. Að vanda er boðið upp á tertuhlaðborð þar sem borðin svigna undan hnallþórum og allskyns brauðréttum. Á liðnum árum hefur áhorfendafjöldi aukist svo að ljóst er að tónleikar kórsins skipa veglegan sess á aðventu bæjarbúa. Á tónleikunum verða hljóðfæraleikarar og krakkar úr grunnskólanum sem syngja með kórnum. Hægt verður að nálgast dagatölin vinsælu á tónleikunum þar sem þau verða til sölu við innganginn.

Miðverð er stillt í hóf og er það 1500 kr fyrir fullorðna en ungmenni yngri en 12 ára fá frítt á tónleikana. Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica